14.03.1984
Neðri deild: 57. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3765 í B-deild Alþingistíðinda. (3176)
144. mál, lánsfjárlög 1984
Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Ég hafði skilið það svo að samkomulag hefði verið milli þingflokka um að ljúka þessari umr. nú fyrir kvöldmat. Erindi mitt í ræðustólinn var einmitt þetta, að taka það fram að ég mundi í upphafi 3. umr., sem mér skilst að verði í upphafi fundar á morgun, að fundur í Sþ. víki fyrir Nd. — (Forseti: Mér þykir rétt að leiðrétta strax þennan misskilning hjá hæstv. ráðh. Meiningin var sú að ef þessari umr. lyki nú, 2. umr., yrði atkvæðagreiðslu frestað til morguns — segjum þegar kl. vantar korter í tvö. 3. umr. yrði síðar, kannske á föstudag.) Já, einmitt það. En sem sagt það var eins og mig grunaði, 3. umr. mun fara fram.