14.03.1984
Neðri deild: 57. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3766 í B-deild Alþingistíðinda. (3177)
144. mál, lánsfjárlög 1984
Ólafur G. Einarsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins gera grein fyrir þeim samkomulagsumleitunum sem hafa átt sér stað milli formanna þingflokka núna seinni partinn í dag. Við höfum rætt þann möguleika að ljúka 2. umr. hér sem fyrst en hafa atkvæðagreiðslu á morgun og 3. umr. þá væntanlega á mánudag, en þá því aðeins að um það verði samkomulag að henni ljúki og málið verði afgreitt á mánudaginn. Það er öllum ljóst að samkomulag getur ekki orðið á öðrum grundvelli en þeim að málið verði afgreitt í báðum deildum. Það þarf að fara aftur til Ed. til einnar umr. þar og afgreiðslu málsins ljúki á mánudag. Ef ekki næst samkomulag um þetta núna eða þá um hádegisbil á morgun verðum við að reikna með fundi á föstudag til að koma málinu áfram.