31.10.1983
Neðri deild: 9. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 441 í B-deild Alþingistíðinda. (318)
Umræður utan dagskrár
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Spurt er um umboð þm. og embættismanna þings til að gegna störfum lengur en þingið hefur umboð til, og menn svara, eins og hér hefur heyrst, ævinlega með því að leita fordæma í þeim efnum.
Nú vil ég vekja athygli á því, að það hafa verið lagðar fram till., bæði í umfjöllun stjórnarskrárnefndarinnar við breytingar á stjórnarskrá og hér á hv. Alþingi, sem svara þessum spurningum.
Í fyrsta lagi höfum við Alþfl.-menn lagt fram till. um að heimildin til útgáfu brbl. verði afnumin. Í öðru lagi höfum við um leið lagt fram till. um að starfstími Alþingis verði endurskoðaður, þannig að Alþingi starfi samfellt og nefndir þingsins starfi samfellt. Það sé hins vegar á valdi meiri hl. þings að ákveða, hvenær þingið geri hlé á störfum sínum. — Þetta svarar bæði fsp. hæstv. viðskrh. sem og athugasemd hv. þm. Halldórs Blöndals.
Því næst verð ég að gera eina aðra athugasemd. Hv. þm. Halldór Blöndal vitnaði í Ólafslög, þar sem kveðið er á um að kostnaðarmat skuli fylgja framlögðum frv. á Alþingi, og taldi þetta vera röksemd fyrir því að sjálfsagt væri að veðdeild Búnaðarbanka Íslands eða einhver önnur útlánastofnun úti í bæ auglýsti eftir umsóknum vegna vitaðra áforma um að ríkisstj. ætlaði hugsanlega að leggja fram lög á Alþingi. Þetta er endemis rugl og fyrir neðan virðingu hv. þm.