15.03.1984
Sameinað þing: 66. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3787 í B-deild Alþingistíðinda. (3208)
Um þingsköp
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Það skal tekið fram að allt sem kom fram um þetta efni hjá hv. 10. landsk. þm. er reginmisskilningur. Í fyrsta lagi tók forseti fram varðandi það að vísa málinu til n. að hann kvæði ekkert á um það og n. réði sínum vinnubrögðum í því efni. En forseti tók fram að eðlilegt væri að fresta umr. um þetta mál vegna þess að við umr. hefur komið fram skrifleg dagskrártillaga, sem var of seint fram komin, en var tekin til umr. vegna þess að afbrigði voru veitt. Hér er ekki nema nokkur hluti þingheims. Það eru eðlileg vinnubrögð að öllum þm. sé gert kleift að sjá þá dagskrártillögu sem fram hefur komið áður en lokið er umr. Það verður gert með því að fresta umr. til næsta fundar. Það væru óeðlileg vinnubrögð að ljúka umr. undir þessum kringumstæðum.