15.03.1984
Sameinað þing: 66. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3788 í B-deild Alþingistíðinda. (3212)

Um þingsköp

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það er fullkominn misskilningur, sem kom fram í máli hv. 7. þm. Reykv., að ákvörðun um frestun umr. væri byggð á því að hér væru ekki stjórnarþm. viðstaddir. Það hefur ekkert að segja um ákvörðun um frestun umr.

Það skal tekið fram að líta verður svo á að það sé eðlilegt undir hvaða kringumstæðum sem er að öllum þm. sé gert mögulegt að vita um og fylgjast með ágreiningsmálum, sem tekin eru fyrir í þinginu, áður en umr. er lokið. Og með því að það hefur komið fram dagskrártillaga í þessu máli, sem ágreiningur er um, og enn frekar þar sem nú er upplýst að ætlunin var að bera fram brtt. að auki á þessum fundi, þá treysti ég mér ekki sem forseti að útiloka að þeir sem ekki eru á þessum fundi geti tjáð sig um það sem er að fara fram um slík ágreiningsmál. Þess vegna var umr. frestað.