15.03.1984
Sameinað þing: 66. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3790 í B-deild Alþingistíðinda. (3215)
Um þingsköp
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Ef allir hv. alþm. kæmu fram eins og hæstv. iðnrh. hefur gert hér í dag yrðu þingstörfin ærið erfið og torsótt. Hvað er það sem hæstv. iðnrh. hefur gert hér í dag? Hann hefur fyrst flutt með afbrigðum skriflega till. um leið og umr. er byrjuð, þótt málið hafi verið á dagskrá, eins og hann hefur sjálfur upplýst nú, vikum saman. Hann hefur haft ærinn tíma til að flytja þessa till. skriflega. Hann upplýsti það fyrr í umr. að hann hefði ekki flutt hana fyrr vegna þess að hann hefði ekki fyrr fengið að vita frá þingflokki Framsfl. að þar væri ekki stuðningur við málið. Væri þess vegna fróðlegt að vita hvenær þingflokkur Framsfl. tjáði honum það svo að menn fái nú allar tímasetningar frá hæstv. ráðh.
En hann lætur ekki þar við sitja, hæstv. ráðh., heldur hagnýtir sér það hér í umr. að hann hefur sjálfur fengið samþykkta með afbrigðum slíka till. og óskar eftir því að n. taki málið á ný til meðferðar vegna þessarar till. sem svona seint er fram komin.
Það sem ég átti við áðan var að ef stjórnarandstöðuþingmenn færu að leika þennan sama leik og hæstv. ráðh. hefur leikið f dag í fjölmörgum málum, að flytja inni í miðjum umr. brtt. og óska síðan eftir að n. sem lokið hafa störfum um málin færu að nýju að starfa, mundi æðiseint vinnast í þinginu. Þess vegna skulum við vona þingsins vegna og reyndar einnig ríkisstj. vegna að menn taki ekki upp þau vinnubrögð almennt sem hæstv. iðnrh. hefur talið sér sæma í dag, hvað oft sem hann endurtekur að hann hafi verið hér í forsetastóli. Þau eru allóvenjuleg og þau eru með þeim hætti að ef aðrir færu eftir þeim yrðu þingstörfin mjög torsótt. Þess vegna er það úr hörðustu átt að hæstv. iðnrh. skuli svo koma hér með derring út af þessum vinnubrögðum og stærilæti og telja þetta sjálfsagt og eðlilegt og hann vera að framkvæma það sem helst til eftirbreytni mætti verða.
Ég vil svo að lokum, herra forseti, aðeins segja það og leiðrétta þar með, sem kom fram hjá hæstv. forseta, að ég hafði það ekki eftir hæstv. forseta að þessari umr. hefði verið frestað vegna fjarveru stjórnarþm. Ég gat þess hins vegar að hæstv. forseti hefði bent á að margir þm. væru fjarverandi. Það voru algjörlega mín orð að vekja athygli á því hvernig í þeirri fjarveru lægi.