19.03.1984
Efri deild: 63. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3793 í B-deild Alþingistíðinda. (3219)
178. mál, sala lagmetisiðju ríkisins á Siglufirði
Frsm. meiri hl. (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Virðulegi forseti. Iðnn. hefur fjallað um það frv. sem hér er til umr. á nokkrum fundum.
Þótti n. rétt að leita umsagnar nokkurra aðila um frv. og var því leitað umsagna iðnrn., stjórnar lagmetisiðju ríkisins, verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði og bæjarstjórnar Siglufjarðar. Það þótti rétt hjá n. að kveðja á sinn fund fulltrúa frá iðnrn. Kom deildarstjóri frá iðnrn. á nefndarfund til þess að skýra ýmis atriði frv. sem leitað var skýringa á og til þess að tjá sig um önnur atriði sem fram komu hjá öðrum aðilum sem leitað var umsagna hjá.
Á fund nefndarinnar kom formaður stjórnar lagmetisiðju ríkisins. Hann gagnrýndi frv. en tjáði n. að stjórn fyrirtækisins hefði ekki sem slík fjallað um málið. Formaðurinn gagnrýndi ýmis atriði í frv., svo sem að fyrirtækið væri of lágt metið við söluna og að það væri ekki nægilegt áhættufé í fórum kaupanda eða Sigló hf. Nokkur önnur atriði ræddi formaður lagmetisiðju ríkisins og mælti gegn frv.
Nefndin kvaddi á sinn fund fulltrúa frá verkalýðsfélaginu Vöku, Siglufirði. En það kom enginn á fund nefndarinnar frá þeim aðila. Hins vegar var nefndinni send ályktun sem samþykkt var á fundi í stjórn verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði 25. febr. s. l. Í þessari ályktun kemur fram að stjórn verkalýðsfélagsins Vöku telji að ríkið hefði ekki átt að selja lagmetisiðjuna Siglósíld á Siglufirði. Einnig kemur fram í þessari ályktun að stjórn verkalýðsfélagsins telji eðlilegt að ríkið eigi og reki ýmis fyrirtæki í landinu og bendir í því sambandi á Síldarverksmiðjur ríkisins.
Nefndin óskaði einnig eftir að á sinn fund kæmi fulltrúi frá bæjarstjórn Siglufjarðar, en af því varð ekki. Hins vegar barst nefndinni svohljóðandi símskeyti frá Siglufirði sem ég les hér upp, með leyfi hæstv. forseta:
„Bæjarráð Siglufjarðar fjallaði 27. þ. m. um fundarboð yðar og samþykkti einróma eftirfarandi: Bæjarráð Siglufjarðar álítur að skoðun bæjaryfirvalda nú um sölu Siglósíldar skipti ekki máli og telur því ekki ástæðu til að senda fulltrúa til þessa fundar. Bæjarráð hefur að öðru leyti ekki ályktað um sölu eigna lagmetisiðjunnar Siglósíldar til Sigló hf.
Óttar Proppé
bæjarstjóri.“
Ég hef hér greint frá vinnubrögðum hv. iðnn. við umfjöllun um það frv. sem hér er til umr. Nefndin varð ekki sammála. Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt.