19.03.1984
Efri deild: 63. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3802 í B-deild Alþingistíðinda. (3230)

129. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Stefán Benediktsson:

Virðulegi forseti. Ég fagna þeim hreina tón sem heyrðist hér áðan frá hv. 9. þm. Reykv. Það er ekki úr vegi að ræða þessa hluti hér hreint út í stað þess að ákveða þá í einhverju bakherbergi.

Það var vitað fyrir áramót að fjárlögum samþykktum, þrátt fyrir andmæli ýmissa, að ríkisbúskapurinn mundi tolla saman þetta árið með þeim álögum sem þá var áætlað að leggja á menn. Það sem hefur breyst er að annars vegar hækkar eigin launakostnaður ríkisins meir en gert var ráð fyrir. En ríkisstj. hefur lýst því yfir að hún telji að hún fái þann aukinn launakostnað að mestu leyti inn aftur í formi aukinnar skattaveltu og einkaneysluveltu. Samt sem áður er alveg greinilegt að hér á að sigta mjög hart upp í vindinn. Yfirlýsingar um að ekki eigi að auka skattbyrði hafa reyndar verið útgefnar, en þegar myndast smáborð fyrir báru og hægt væri að taka örlítið minni skatta en raunverulega hafði verið stefnt að er það ekki gert, heldur er heimtað að fá að elta þessa fáu aura uppi, sem fólki hefur áskotnast, þannig að blessaður ríkisbúskapurinn fái nú sitt.

Fyrir skömmu sáum við bréf, sem hæstv. fjmrh. hefur skrifað ríkisstofnunum, þar sem hann er að biðja um tillögur um sparnað í rekstri. Við munum að það var margyfirlýst af hálfu þessarar ríkisstj. að hún ætlaði sér að draga stórlega saman og spara í rekstri ríkisstofnana. Nú stöndum við frammi fyrir þeirri staðreynd að fjórðungur ársins er búinn og ekkert er farið að gera í þeim málum. Hér er því á mjög áberandi hátt verið að krefjast ólíkt meira af þegnum þessa lands en ríkisstj. krefst af sjálfri sér.

Í sjálfu sér er þetta mál ekkert flóknara en hv. 9. þm. Reykv. skýrði það. Hér er einfaldlega verið að seilast lengra en góðu hófi gegnir.