19.03.1984
Efri deild: 63. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3804 í B-deild Alþingistíðinda. (3234)
129. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Ólafur Jóhannesson:
Virðulegi forseti. Hv. þm. Lárus Jónsson kvaðst ekki vita annað en, að þær brtt. sem hér væru á borð lagðar hefðu verið samþykktar í báðum þingflokkum stjórnaraðilanna. Að sjálfsögðu veit hann hvað hefur verið samþykkt í þingflokki Sjálfstfl. og þar hefur þá verið samþykkt og það liggur fyrir að hækka skatta. Hins vegar vil ég taka skýrt fram að ég hef lýst því hreint og klárlega yfir í þingflokki framsóknarmanna að ég mundi ekki greiða atkv. með slíkum skattahækkunum sem þessum. Þannig að mér leikur forvitni á að vita frá hvaða hv. þm. Lárusi Jónssyni hefur borist vitneskja um afstöðu Framsfl.
Það er misskilningur hjá hæstv. fjmrh. að ég sé á móti þessum skattahækkunum af því að þær séu andstæðar hans yfirlýsingum. Að sjálfsögðu harma ég það um svo góðan dreng sem hæstv. fjmrh. að honum skuli ekki reynast kleift að standa við þær yfirlýsingar sem hann hefur gefið um þessi efni. En það ræður ekki minni afstöðu til þessa máls. Ég er á móti þessu af því að ég tel það ósanngjarnt að láta slíka skattahækkun, þó ekki sé stórvægileg, koma í kjölfarið á mjög tilfinnanlegri kjaraskerðingu, kjararýrnun, sem hefur verið framkvæmd hér og allir viðurkenna að hefur verið framkvæmd hér. Ég vara við því. Mér sýnist að svo geti farið að þolinmæði fólks verði ofboðið.
Ég ætla annars ekki að fara að ræða um þessi mál frekar. Ég vildi aðeins gefa þessa yfirlýsingu hér af því að ég taldi ekki annað heiðarlegt en að láta það koma fram áður en atkv. væru greidd hver mín afstaða væri. Hitt er svo allt annað mál að fullkomin ástæða er til þess að fara að ræða fjármálapólitík hæstv. ríkisstj. og fá á henni ýmsar skýringar. Til þess er kominn tími, en það ætla ég ekki að gera í þetta skipti.