19.03.1984
Efri deild: 63. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3806 í B-deild Alþingistíðinda. (3237)
129. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. minni hl. (Ragnar Arnalds):
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að lengja þessar umr., en vegna þess að hæstv. fjmrh. var enn einu sinni að segja þingheimi ýmsar draugasögur úr fjmrn. og öðrum rn. frá þeirri tíð þegar hann tók við völdum og vegna þess að hann tók svo til orða áðan að ýmsir skólar hefðu verið lokaðir þegar hann kom að og kippti málum í lag, þá vildi ég í allri hógværð biðja hann um að upplýsa þingheim um hvaða skólar þetta voru — eða getur hann nefnt einn skóla í landinu sem var lokaður á þessum tíma vegna þess að hann væri í slíkum fjárhagskröggum að ekki væri hægt að halda uppi rekstri? Ég vildi biðja hæstv. fjmrh. að koma hér og rökstyðja þessa sögusögn svolítið betur því að ég hygg áð ef hann treystir sér ekki til þess að nefna a. m. k. einn skóla sem svona var ástatt um muni þessi fullyrðing hans falla á sama öskuhaug fullyrðinga sem margar aðrar sem hann hefur slegið fram hér í þinginu og ekki hafa reynst ýkjainnistæðumiklar.