19.03.1984
Neðri deild: 59. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3812 í B-deild Alþingistíðinda. (3246)

144. mál, lánsfjárlög 1984

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Það hefur komið fram að hæstv. ríkisstj. óskar eindregið eftir því að það frv. sem hér er til umr. verði afgreitt frá Alþingi í dag sem lög. Meginrökin sem fram eru færð fyrir þessari beiðni eru að verði frv. ekki samþykkt sem lög frá Alþingi í dag muni ekki vera kleift að ganga frá erlendu láni sem hæstv. ríkisstj. hefur ákveðið að taka.

Það sýnir satt að segja sérkennilega fjármálastjórn á íslenska ríkinu og stjórn á þingstörfum hér að það skuli vera orðið spurning um nokkrar klst. hvort hæstv. ríkisstj. tekst að taka stórt erlent lán eða ekki. Svo knöpp er fjármálastjórn íslenska ríkisins orðin að hæstv. ríkisstj. verður að koma til Alþingis og biðja um að meðferð þessa máls ljúki á þessum sólarhring til að lántökuferillinn geti haldið áfram. Þessi ósk er ærið sérstæð. En hún er einnig mjög slæm vegna þess, eins og hér hefur greinilega komið fram í ræðu hv. þm. Guðmundar Einarssonar, að hæstv. ráðh. hafa hvergi nærri veitt nægileg svör við þeim grundvallarspurningum sem fram hafa verið bornar um þetta frv.

Þetta frv. er annað meginfrv. ársins í efnahagsstjórn íslenska ríkisins. Ásamt fjárlögunum veitir þetta frv. megininnsýn inn í stjórn íslenskra efnahagsmála. Nú er gerð tilraun til þess að negla hv. Alþingi niður við það að ef það afgreiði ekki þetta frv. á þessum sólarhring eyðileggist möguleikar hæstv. ríkisstj. til að taka tiltekið erlent stórlán. Þess vegna er alveg ljóst að ef stjórnarandstaðan á Alþingi á verða við óskum hæstv. ríkisstj. og stuðla þannig að áframhaldandi erlendri lántöku skv. ósk ríkisstj. er frumskilyrði að ráðh. taki á eðlilegan hátt þátt í umr. og veiti skýr og greinargóð svör við þeim lykilspurningum, sem hafa verið bornar upp nú þegar í þessari umr. og verða bornar upp í þeim ræðum sem hér á eftir að flytja. Það er hvorki sæmandi hv. Alþingi né hæstv. ríkisstj. að ganga svo frá þessu frv. til lánsfjárlaga að ríkisstj. svari því ekki hvernig hún ætlar að fylla í þau stórvægilegu göt á lánsfjáráætluninni sem nú þegar liggja fyrir í þessu frv.

Þegar þetta frv. var til umr. í hv. Nd. Alþingis 15. febr. s. l., 1. umr. um málið hér í hv. deild, gaf hæstv. fjmrh. út mjög skýra og afdráttarlausa yfirlýsingu fyrir hönd sjálfs sín og hæstv. ríkisstj. Þessi yfirlýsing var stutt en skýr. Hún fól í sér meginstefnuyfirlýsingu. Hún var á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Erlendar lántökur verða ekki auknar og það verður ekki aukinn yfirdráttur í Seðlabankanum frekar en orðið er og ríkissjóður er ekki afgreiddur með halla. Frekari álögur á fólkið koma ekki til greina.“

Ég vakti athygli á því við þessa 1. umr. að hér væri á ferðinni mjög merkileg yfirlýsing hjá hæstv. fjmrh., yfirlýsing sem væntanlega ætti að taka mark á því hún væri afdráttartaus og skýr snerti fjóra hornsteina í stefnu þessarar ríkisstj. Sá fyrsti var: Ekki aukning á erlendum lántökum. Annar var: Ekki verður aukinn yfirdráttur í Seðlabankanum. Sá þriðji var: Ríkissjóður verður ekki afgreiddur með halla. Sá fjórði var: Frekari álögur á fólkið koma ekki til greina.

Í þingtíðindum taka þessar fjórar grundvallaryfirlýsingar aðeins fjórar línur en þær eru, eins og ég sagði áðan, mjög skýrar og augljósar. Það er höfuðnauðsyn, eigi að afgreiða þetta frv. í dag, að hæstv. ráðh. geri Alþingi skýra og afdráttarlausa grein fyrir því hvernig þeir ætla að framkvæma þessi fjögur höfuðatriði. Það er sérstaklega nauðsynlegt vegna þess að skv. upplýsingum sem ég fékk frá Seðlabankanum í morgun er einn af þessum fjórum hornsteinum nú þegar brostinn. Það hefur ekki verið staðið við þetta atriði.

15. febr. s. l., sama dag og hæstv. fjmrh. gaf yfirlýsingu sína var skuldastaða ríkissjóðs við seðlabankann 2 milljarðar 564 þús. kr. Mánuði síðar, 15. mars, hefur skuldastaða ríkissjóðs við Seðlabankann aukist um nær 200 millj. kr. 15. mars var skuldastaða ríkissjóðs við Seðlabankann 2 milljarðar 759 millj. kr. Nú spyr ég hæstv. fjmrh.: Hvernig getur það gerst þegar hæstv. ráðh. gefur út á Alþingi 15. febr. s.l. þá skýru og afdráttarlausu stefnuyfirlýsingu, svo notuð séu hans óbreyttu orð: „Það verður ekki aukinn yfirdráttur í Seðlabankanum frekar“, þá blasir það við að á fjórum vikum hefur hann aukist um nær 200 millj.? Hvað hefur gerst? Hvað hefur farið úrskeiðis? Hvernig stendur á því að þessi hornsteinn er nú brotinn? Er hæstv. fjmrh. ekki fær um að tryggja framgang þeirra stefnumiða sem hann hefur lýst hér á Alþingi?

Hæstv. ráðh. hefur ekki kallað neinn blaðamannafund saman til þess að tilkynna að þessi hornsteinn sé brostinn. Hæstv. fjmrh. hefur heldur ekki kallað á fulltrúa stjórnarandstöðunnar til að tilkynna þeim að honum hafi ekki tekist að standa við þessa yfirlýsingu. Nei, þm. stjórnarandstöðunnar verða sjálfir að afla sér upplýsinga um að þetta hafi ekki tekist.

Þess vegna liggur ljóst fyrir að á þeim fjórum vikum sem liðnar eru síðan hæstv. fjmrh. gaf þá yfirlýsingu að yfirdráttur í Seðlabankanum yrði alls ekki aukinn hefur hann aukist um 200 millj. króna. Ég spyr hæstv. fjmrh.: Hverjar eru skýringarnar? Hverjar eru ástæðurnar? En það sem er kannske meira virði: Hvernig stendur á því að hæstv. fjmrh. kom ekki í veg fyrir þessa aukningu á yfirdrættinum? Hæstv. ráðh. var búinn að skýra Alþingi frá því að það yrði gert, hann yrði ekki aukinn frekar. Alþingi á kröfu á að fá skýringar á því nú fjórum vikum seinna hvað brást.

Hæstv. fjmrh. gaf einnig þá yfirlýsingu fyrir hönd hæstv. ríkisstj. í sömu ræðu á sama degi að erlendar lántökur verði ekki auknar. Því er spurt hér á Alþingi: Hvernig hyggst ríkisstj. og fjmrh. sérstaklega og forsrh., sem bera meginábyrgð á þessum málum, annars vegar fylla í það tveggja milljarða gat sem upplýst hefur verið að er í fjárlögunum og hins vegar fylla upp í þau göt og standa við þau fyrirheit sem fyrir liggja í þeirri lánsfjáráætlun sem hér er verið að fjalla um, en sem rækilega hefur verið rakið að ekki er til fjármagn fyrir án þess að auka erlendar lántökur? Stöndum við kannske líka frammi fyrir því innan fáeinna vikna að erlendu lántökurnar hafi hlaupið upp úr öllu valdi á sama hátt og við stöndum nú skýrt og greinilega skv. upplýsingum Seðlabankans frammi fyrir því að yfirdráttur ríkissjóðs hjá Seðlabankanum hefur haldið áfram upp úr öllu valdi? Hvar er festan í efnahagsstjórninni? Hvar er hin ábyrga fjármálastjórn? Hvar er hin trausta stjórn á ríkisfjármálunum? Hver er afstaða ríkisstj. sem hefur lýst því yfir að hún ætli sýknt og heilagt að gera þjóðinni grein fyrir því hvað hún er að gera? (HBl: Það er nú ekki hægt að komast að til að gera það.) Jú, það er alveg hægt að komast að til þess að gera það, hv. þm. Halldór Blöndal, því að ekki eru liðnar nema um 40 mínútur af þessum fundi og ég mun innan tíðar ljúka máli mínu. Þá mun á það reyna hvort þeir hæstv. ráðh., sem hv. þm. Halldór Blöndal hefur kosið að styðja hér á Alþingi, veita svör við þessum spurningum eða hvort í ljós kemur við lok þessara umr. að þessir hornsteinar eru allir meira og minna brostnir.

Þeir voru fjórir. Ég hef nú þegar rakið að einn þeirra er brostinn. Yfirdrátturinn í Seðlabankanum hefur aukist um 200 millj. á fjórum vikum og er nú 2 milljarðar 759 millj. kr. og hefur ekki verið annað eins í áraraðir. Það er eins og ráðh. sé búinn að fá sér sérstaka brunaslöngu úr seðlabankanum sem sprauti fjármagni látlaust inn í ríkiskassann og þessi fyrrv. gagnrýnandi Seðlabankans uni nú glaður við það að sitja á ríkiskassanum þar sem Seðlabankinn dælir inn fjármagni svo hundruðum millj. skiptir í hverjum mánuði til viðbótar við algjört met í skuldasöfnum ríkissjóðs við Seðlabankann. (HBl: Það heitir slökkvistanga, ekki brunaslanga.) Það heitir brunaslanga fyrir vestan og verður kallað brunaslanga hér vegna þess að það á sérstaklega við þegar bruninn í ríkisfjármálunum er til umræðu.

Fjórði hornsteininn sem hæstv. fjmrh. gat um var að frekari álögur á fólkið komi ekki til greina. Nú gerðist það á síðasta degi þingsins í síðustu viku að ríkisstjórnarmeirihl. í fjh.- og viðskn. Ed. lagði fram brtt. á skattafrv. hæstv. ríkisstj. Skv. þessum brtt. ætlar hæstv. ríkisstj. nú að hækka álagðan tekjuskatt á landsmenn. Við munum það allir, þm. í þessari hv. deild, að þegar hæstv. ríkisstj. lagði fram frv. sitt um tekju- og eignarskatt fyrir áramót bentum við rækilega á að í þessu frv. fælist íþynging skatta. Í fyrstu var reynt að bera á móti því uns í ljós kom að jafnvel ráðh. og sérstakir aðstoðarmenn þeirra, formaður og varaformaður Sjálfstfl., treystu sér ekki lengur til að halda því fram og viðurkenndu í verki við meðferð mátsins hér að nauðsynlegt væri að lækka þessa skattstiga.

Almenningur í landinu gekk frá sínum skattaframtölum og almenningur í landinu gerði kjarasamninga í samtökum sínum mörgum hverjum, þó alls ekki öllum, en m. a. þó í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, í þeirri góðu trú að þeir skattstigar, sem tilkynntir höfðu verið á Alþingi af hæstv. ríkisstj. nokkrum vikum áður, mundu standa óbreyttir.

En nú gerist það í síðustu viku að hæstv. ríkisstj. laumar inn í þingið till. um hækkun á þessum skattstigum, aukna skattinnheimtu af fólkinu í landinu. Ósvífnin er slík að í nál. meiri hl. fjh.- og viðskn. Ed. er þessi nýja skattahækkun rökstudd með því að í nýgerðum kjarasamningum hafi fólk fengið meiri tekjur en reiknað var með í forsendum fjári. og þess vegna sé nauðsynlegt að hækka skattprósentuna. Þess vegna er atveg ljóst, hæstv. fjmrh., að þessi fjórði hornsteinn, um að frekari álögur á fólkið komi ekki til greina, brestur ef þær brtt., sem fulltrúar hæstv. ríkisstj. lögðu fram í Ed. s. l. fimmtudag, verða samþykktar.

Það er satt að segja ærið sérkennilegt að þessir fulltrúar Sjálfstfl. skuli hér hvað eftir annað leggja fram till. um skattahækkanir. Ferill þessa tekjuskattsfrv. í þinginu var orðinn nægilega hróplegur fyrir þótt ríkisstjórnarmeirihl. bætti nú ekki um með því að sækja röksemdafærslu sína fyrir hækkaðri skattprósentu í nýgerða kjarasamninga.

Mér er kunnugt um að þessi skattahækkun hefur komið forustumönnum í samtökum launafólks mjög á óvart. Þeir eru þeirrar skoðunar að með þessari skattahækkun sé komið aftan að þeim. Þeir hafi gert þessa kjarasamninga í trausti þess að skattarnir yrðu eins og tilkynnt hafði verið á Alþingi upp úr áramótum að ríkisstj. stefndi að. En með því að flytja skattahækkunartill. fyrir helgina í Ed. er verið að stuðla að því að taka hluta af þessari launahækkun beint inn í ríkissjóð. (HBl: Hver segir að þetta sé skattahækkun?) Hv. þm. Halldór Blöndal hefur ekki enn þá gert sér grein fyrir því að hækkun á skattprósentum skattstigans felur í sér hækkun á þeim sköttum sem greiddir eru, en hv.þm. kemst að því þegar hann greiðir skattana sína. (Gripið fram í.) Nú heyri ég að sérstakur aukaaðstoðarmaður fjmrh., varaformaður Sjálfstfl. sem er sífellt ýmist hlaupandi hér um sali eða gjammandi fram í ræður til að bjarga fjmrh., er farinn að tyggja röksemdir inn í umr. um hlutfall af launum. Var launafólkinu sagt það þegar kjarasamningur ASÍ og VSÍ var gerður að það ætti að taka ákveðið hlutfall af þessu í skatta? (Gripið fram í:) Það hefur hvergi legið fyrir, hv. þm. Friðrik Sophusson.

Ég skora á þm. að vitna í ræður á Alþingi, fara í samanlagðan texta sem hæstv. fjmrh. hefur flutt þjóðinni á undanförnum vikum og mánuðum, og finna því stað að sagt hafi verið að í kjölfar kjarasamninganna kæmi hækkun á skattstiganum. Hvar hefur það verið sagt að í kjölfar kjarasamninga kæmi hækkun á skattstiganum? Er einhver hér inni sem hefur heyrt ráðh. eða þm. ríkisstjórnarflokkanna segja það? Getur hv. þm. Friðrik Sophusson nefnt stað og stund þar sem sagt var að í kjölfar kjarasamninganna kæmi hækkun á skattstiganum? Auðvitað getur hann það ekki vegna þess að það var hvergi sagt. Það kom ekki í ljós fyrr en þessari brtt. var laumað inn í Ed. s. l. fimmtudag rétt áður en þm. gengu til veislu. Það verður ekkert burtu skafið með frammíköllum eða útúrsnúningum um hlutfall af launum að hæstv. ríkisstj. hefur ákveðið að hækka skattstigann í kjölfar kjarasamninganna. Það er eins skýrt eins og nokkuð getur verið. Það er greinilega sérstök framkvæmd á þeirri skattastefnu sem Sjálfstfl. telur sé sæma að hampa gagnvart þjóðinni.

Herra forseti. Ég hef sérstaklega beint spurningum til hæstv. fjmrh. varðandi þessar tvær meginyfirlýsingar sem hann gaf hér, að yfirdráttur í Seðlabankanum og frekari álögur á fólkið kæmu ekki til greina. Ég vil svo að lokum ítreka þá spurningu sem hér hefur verið borin fram til bæði hæstv. forsrh. og hæstv. fjmrh.: Telja þeir kleift að ráða bót á þeim götum sem komið hafa í ljós á fjárlagafrv. og ráða bót á þeim lánsfjárvanda og þeirri lánsfjárvöntun sem mjög rækilega hefur verið rakin hér í umr. að er fyrir hendi, bæði gagnvart því frv. sem hér er til umr. og gagnvart vanda útvegsins, gagnvart vanda bænda og öðrum vanda atvinnuveganna? Telja þeir kleift að ráða bót á honum án frekari erlendrar lántöku? Ef þeir telja það væri mjög æskilegt að fá nánari skýringar á því í ræðustól á Alþingi með hvaða hætti því Alþingi er ekki sæmandi að afgreiða þetta frv. án þess að það komi skýr og greinileg svör við því.

Hæstv. fjmrh. lýsti því yfir í vetur mjög skýrt og greinilega að ef erlendar lántökur færu yfir 60% markið ætti ríkisstj. að segja af sér. Þá ætti hann að segja af sér. Þá ætti hæstv. forsrh. að segja af sér. Þá ætti ríkisstj. öll að segja af sér. Þessa yfirlýsingu sína hefur hæstv. fjmrh. síðan ítrekað. Við höfum upplýsingar um það að nú þegar sé markið komið upp í rúmlega 59% þannig að ljóst er að ekki er nema innan við eitt prósent eftir í þetta 60% mark.

Í ljósi þessara yfirlýsinga, þessa stefnumiðs, er því nauðsynlegt að fá skýr svör við þeim spurningum sem bæði hv. þm. Guðmundur Einarsson og ég höfum borið fram.

Ég vil svo að lokum vekja athygli hv. þingdeildar á svörum sem birt eru með nál. minni hl. fjh.- og viðskn. á bls. 23 við fsp. sem Ólafur Ragnar Grímsson og Páll Pétursson báru fram við iðnrh. á fundi í fjh.- og viðskn. þessarar deildar. Skv. þeim svörum sem þar eru gefin virðist það vera áform ríkisstj. að fjárfestingar til orkuframkvæmda verði á næstu þremur árum í kringum 1 milljarð kr. á hverju ári og árinu 1988 600 milljónir til 1 milljarður króna.

Það er alveg ljóst að skv. þessum tölum verða ekki á þessu kjörtímabili neinar sérstakar stórframkvæmdir í orkumálum. Þess vegna vildi ég beina þeirri fsp. til hæstv. iðnrh. og ef hann er fjarstaddur til hæstv. fjmrh. hvort að baki þessum tölum, sem hæstv. iðnrh. hefur afhent Alþingi, liggi fyrir skýr og eindregin stefnumótun af hálfu ríkisstj. um orkuframkvæmdir á þessu tímabili. Ef svo er er alveg ljóst að ráðh. Sjálfstfl. og þingmenn Sjálfstfl. hafa hlaupið frá öllum sínum fyrri stóryrðum um nauðsyn stórra átaka í orkumálum á Íslandi og öll sú gagnrýni, sem þeir höfðu fram að færa á Alþingi á árinu 1980–1983, fellur dauð og ómerk og var þó ekkert eitt atriði sem þeir gagnrýndu eins harðlega í tíð þeirrar ríkisstj. og þetta.