19.03.1984
Neðri deild: 59. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3816 í B-deild Alþingistíðinda. (3247)

144. mál, lánsfjárlög 1984

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Þau eru eiginlega dæmigerð fyrir hv. 7. þm. Reykv. hans síðustu orð. Þau hafa verið rauði þráðurinn í hans ræðum í mörg ár. Allt það sem kemur frá öðrum en honum sjálfum er dautt og ómerkt. En hann er áreiðanlega hér um bil einn um þá skoðun. Ég hef stundum sagt, og það er rétt hjá virðulegum 7. þm. Reykv., að mistakist stefna ríkisstj., að lækna það sem lækna þarf eftir óstjórnartímabil það sem á undan er gengið, þá eigi ríkisstj. að segja af sér — og ég þá kannske fyrst og fremst. Ekki vegna þess að ég búist við því að ríkisstj. hætti að stjórna, heldur vegna þess að fólkið í landinu á að staðfesta að það vilji þá stefnu aðhalds og þann lækningamátt sem í henni felst fyrir íslenskt þjóðfélag, en ekki að hún sé hrakin í burtu. Því það fer ekkert á milli mála að fólkið í landinu vill aðgerðir. Það skilur betur en Alþb.-menn hvernig ástandið er eftir það stjórnartímabil þegar þeir réðu mestu um fjármál landsins.

Talað er um að erlendar lántökur megi ekki fara fram úr ákveðnu marki miðað við þjóðarframleiðslu. Það er alveg rétt. Það er sú prósentutala sem við tókum við. Sú prósentutala hefur ekki hækkað. Hækki hún er enn þá meiri vá fyrir dyrum en þó er og erum við þó löngu komin yfir hættumörk. Þess vegna er það óráð að haga sér á þann hátt að frekari erlendar lántökur eigi sér stað. Það sjá allir. Þeir þurfa jafnvel ekki að vera prófessorar til þess. Þjóðin öll skilur þetta. En lán sem eru nú í hættu, vegna þess að lánsfjárlagafrv., sem lagt var fram fyrir áramót um líkt leyti og fjárlög, er enn á dagskrá og komið langt fram í marsmánuð, eru skuldbreytingalán en ekki viðbót við þá óstjórn í erlendum lántökum sem átti sér stað hjá fyrrv. ríkisstj. þar með er þeirri spurningu svarað:

Þá var talað um yfirdrátt til viðbótar við þann yfirdrátt sem þessi ríkisstj. tók við, um 200 millj. kr. á viðskiptareikningi á fjórum vikum. Hvaða blekkingartala er þetta? Hvert einasta fyrirtæki, hvort sem það heitir ríkisfyrirtæki eða íslenska þjóðfélagið og ríkissjóður, sem hefur viðskiptareikning í Seðlabanka Íslands, notar sinn viðskiptareikning fram og til baka yfir árið. Það er niðurstaða ársins, og hún liggur alls ekki fyrir núna, sem við getum borið saman við niðurstöður s. l. árs, en ekki hvernig hreyfingar eru inn og út á viðskiptareikningum frá einu tímabili til annars innan ársins.

Ég veit ekki til þess að ég hafi kallað einn einasta blaðamannafund saman um fjárlögin. Ég veit ekki til þess að ég hafi kallað saman neitt annað en stjórnarandstöðuna til að skýra henni frá hvernig fjárlagadæmið stóð og hvernig útlitið var. Við erum hér að ræða þann vanda sem er uppsafnaður frá fyrri tíð, þann vanda sem kom í ljós eftir að fjárlög voru gerð, til þess, eins og ég hef marglýst, að bæði stjórn og stjórnarandstæðingar viti hvað blasir við. Og það eru breytt vinnubrögð frá því sem áður var þegar fjmrh. sat og gerði sín viðbótarfjárlög út allt árið og tilkynnti svo í lok ársins hvernig staðan var. Ég er að tilkynna núna hvernig hún hugsanlega verður, til að reyna að koma í veg fyrir að hún verði eins slæm og hún hugsanlega getur orðið. Ef menn kalla það slæm vinnubrögð að vera með fyrirbyggjandi vinnu í staðinn fyrir að standa uppi með vandann í lok tímabilsins þá þeir um það. Ég finn það á fólkinu í landinu að það kallar það ekki slæm vinnubrögð að fá að vita fyrir fram hvaða vanda er verið að sigla þjóðarskútunni út í ef ekkert er að gert. Þannig að skuldastaðan nú, eða má segja á hvaða tíma árs sem er fram að uppgjöri við Seðlabankann, er bara blekkingartala, m. a. af því að tekjur ríkissjóðs eru oftast nær minni í byrjun árs en í lok árs af eðlilegum ástæðum. Þetta er því einn blekkingarvefur virðulegs 7. þm. Reykv. í viðbót við alla hina.

Ég vona að okkur takist að finna leiðir til að fylla þau göt sem talað er um í fjárlögum án þess að grípa til mikillar erlendrar lántöku. En ég er ekkert að útiloka að verið geti að önnur leið sé ekki til, ef ekki næst samstaða um aðgerðir, sem eru meira í því fólgnar að afla lánsfjár innanlands, draga saman á einhvern hátt.

Hrakspár hv. 7. þm. Reykv. standast ekki vegna þess að stjórnin stendur sterk. Í stjórninni er algjör samstaða og Alþb., sem ekki hefur nein mál að flytja, tekst ekki með nokkurri þeirri leið sem því er töm og það reynir að beita að efna til sundrungar milli ráðh. Stjórnin stendur sterk. Hún stendur sterk saman um að stjórna þessu landi og hún er að mínu mati ekkert hrædd við það að fara í kosningar þegar í stað, ef á þarf að halda til þess að láta þjóðina dæma um þær leiðir sem hún fer nú til að komast frá þeim fjárlögum sem ég fékk hér og ég ætla að biðja hv. 7. þm. Reykv. að líta á. Það er gjöf frá Alþb., mér afhent af blaðamanni Þjóðviljans, og hann benti mér sérstaklega á gatið hér í miðjunni sem væri frá mér. Hin götin hljóta þá að vera frá ykkur, Alþb., frá Ragnari Arnalds. Hvað skyldu þau vera mörg? Eitt, tvö, þrjú, fjögur, fimm, sex, sjö, átta, níu — þau eru bara tíu. Og það eru þessi göt sem við verðum að reyna að fylla upp í sérstaklega. (Gripið fram í: Þetta er málefnaleg umræða.) Þetta er málefnaleg umræða. Við erum að tala um göt á fjárlögunum, við erum að tala um göt sem við tókum við, við erum að tala um vanda sem þessi ríkisstj. tók við. Vandann sem við tókum við og nú hefur fengið nafnið Gat á fjárlögum. Ég kalla það sömu nöfnum og þið.

Hvað snertir ásakanir um frekari álögur og hækkandi tekjuskatt vil ég undirstrika að ríkisstj. stefnir að því að skattbyrði hækki ekki á milli ára á fólki. Það hefur verið stefna ríkisstj. Það stendur í okkar plöggum. Og við það stöndum við.

Ég vil leyfa mér að svara virðulegum 4. landsk. þm. sem heldur því fram að stjórnin sé ekki sú styrka fjármálastjórn sem lýst var í fjárlögunum. Sýnir það veikleikamerki að koma fram með vandann fyrir alþjóð og segja: Þetta er það sem við erum að glíma við.— Í staðinn fyrir að bíða til loka ársins og kynna þá vandann eins og hann þá er, í staðinn fyrir að segja frá honum eins og hann hugsanlega verður ef ekkert er að gert. Ég tel að ríkisstj. standi á þennan hátt sterk og samstæð. Hún ætlar hvorki að blekkja Alþingi né þjóðina. Hún kemur fram og segir: Þetta er það sem við verðum að horfast í augu við. Við verðum að finna leið út úr þessum vanda. Það er ekki veikleikamerki.

Og þegar rn. skrifar öðrum rn. og stofnunum og fylgir eftir þeirri sparnaðarstefnu sem ríkisstj. hefur samþykkt, þá er það ekki veikleikamerki. Við erum að biðja um að fá að vita hvernig hvert og eitt rn. og hver stofnun ætlar að leysa það verkefni sem Alþingi Íslendinga hefur samþykkt að fela þeim. Það er að skera reksturskostnað niður um 5% og spara í launagjöldum um 2.5%. Það er ekki veikleikamerki. (Gripið fram í: Hvernig ætli það gangi?) Hvernig ætli það gangi, er spurt hér af hv. 3. þm. Reykv. á miðju ári, ekki einu sinni miðju ári, eftir tveggja og hálfs mánaðar vinnu í þá veru. Ég verð að segja það alveg eins og er að ég veit ekki hvernig það gengur, en ég veit að það er vilji til þess að vinna að þessu, að þessari stefnu, en hver niðurstaðan verður er spurning sem er tímabær um næstu áramót.

Þá er deilt á það hvernig fjárlög hafi verið undirbúin. Fjárlögin eru undirbúin á hefðbundinn hátt. Þau eru ekki undirbúin á annan hátt nú en oft áður, alls ekki, nema þá kannske að því leytinu til að ég boðaði fund með stjórnarandstöðunni áður en fjárlögin voru lögð fram, áður en lánsfjáráætlun var lögð fram, til þess að hún gæti fylgst með því sem var að ske. Það getur verið að þar með sé brugðið út af hefðbundinni vinnu.

Það er líka spurt: Eru eðlileg vinnubrögð að afgreiða lánsfjárlög með þeim götum sem lýst er í bréfi, líklega fjmrn., frá 3. mars? Ég álít að það sé. Ég álít að það sé eðlilegt að afgreiða lánsfjárlög eins og þau liggja fyrir. Ég er ekki kominn til með að segja að innlend lánsfjáráætlun, sem mest hefur verið deilt á, standist ekki. Ég var ásamt hæstv. félmrh. á fundum með forustumönnum lífeyrissjóðanna og við lögðum þar fyrir þá þá spurningu hvort þeir teldu raunverulega hægt með góðum vilja að ná þeirri skuldabréfasölu sem um gat í lánsfjárlögum. Það var talið hægt. Ég ítrekaði þá spurningu á seinni fundinum og það kom engin athugasemd við það. Þeir aðilar sem við vorum að ræða við, forustumenn sjóðanna, samþykktu að beina þeim tilmælum til þeirra sem ráða kaupunum. Annað gátu þeir ekki gert. Þar kemur spurningarmerkið inn í þessa mynd. En meðan ég hef ekki aðrar upplýsingar en þær sem ég fékk frá þessum aðilum, forustumönnum lífeyrissjóðanna, á fundum með þeim í fjmrn. breyti ég ekki minni trú á því að þessi árangur náist. Og sé spurt hvort ég ætli að halda fund með blaðamönnum og stjórnarandstöðu til að lýsa götum lánsfjárlaganna er því til að svara að ég hef ekki haldið einn einasta blaðamannafund og ég hef ekki hugsað mér að gera það. En það getur vel verið að ég biðji stjórnarandstöðuna um að koma á minn fund til þess að upplýsa hana, ef ég sé ástæðu til, og ég vona að ég liggi ekki undir ádeilu fyrir þau vinnubrögð frá stjórnarandstöðunni.

Síðan er spurt: Er ríkisstj. skuldbundin að tryggja 1050 millj. kr. framtag til húsnæðismálakerfisins skv. lánsfjárlögum? Mitt svar hefur alltaf verið og er enn: Ef ríkisstj. nær ekki þeirri fjárhæð með sölu á skuldabréfum sem á að fara til húsnæðismálanna þá hef ég ekki peninga frá Alþingi til að greiða þetta út. Ef Alþingi ætlast til þess að ég borgi meira en ég hef milli handanna þá verður Alþingi að benda mér á leiðir til að gera það. En ég tel heiðarlegra, vegna þeirra sem hugsanlega sækja um lán, að segja: Ef peningar eru ekki til þá verður að fresta framkvæmdum. Það tel ég heiðarlegra en að hleypa fólki út í framkvæmdir sem verða þá kannske stöðvaðar og standa á dýrum vöxtum ónotaðar á einhverju byggingarstigi. En ég er alls ekkert að útiloka það heldur að alþm. eða þá ríkisstj. finni einhverja aðra leið til að standa skil á þessum 1050 millj sem virðulegur 4. landsk. þm. gat um.

Þá er eftir síðasta spurningin sem hv. þm. beindi til mín, varðandi lendingargjöld Flugleiða, að þau verði niður felld. Það kom bráðabirgðauppgjör frá Flugleiðum á mitt borð sem ég hef ekki tekið afstöðu til. Ég hef hugsað mér að bíða með ákvarðanir. Þarna er um að ræða heimild fjmrh. til að fella niður lendingargjöld. Og heimild fjmrh. er ekki notuð af neinum öðrum en honum. En ég hafði hugsað mér að bíða eftir aðalfundi Flugleiða, sem mun verða 29., til að fá reikninga félagsins og biðja þá rétt til kvadda aðila, ríkisendurskoðanda og e. t. v. fleiri, a. m. k. ríkisendurskoðanda að gefa mér þær upplýsingar sem ég þarf til að taka ákvarðanir um niðurfellingu eða ekki niðurfellingu á lendingargjöldum til Flugleiða.

Ég verð nú, virðulegi forseti, að fá að spyrja þá tvo virðulegu þm. sem í hlut eiga hvort ég hafi svarað þeim spurningum sem til mín var beint. Má ég fyrst spyrja virðulegan 7. þm. Reykv.? (ÓRG: Öllu má nú nafn gefa.) Öllu má nú nafn gefa. Það þýðir já á hans máli. (ÓRG: Ég var ekki búinn. Hæstv. ráðh. svaraði ekki þessu með skattstigann.) Ég svaraði því með skattstigann. Ég er með punktað hérna niður það sem ég sagði og ég skal endurtaka það: Að stefna ríkisstj. væri óbreytt, að skattbyrði mundi ekki hækka á milli ára.Þessu svaraði ég.