19.03.1984
Neðri deild: 59. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3822 í B-deild Alþingistíðinda. (3249)
144. mál, lánsfjárlög 1984
Félmrh. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Vegna ræðu hv. 2. landsk. þm. varðandi erfðafjárskatt vil ég til viðbótar því sem ég sagði við 2. umr. um lánsfjárlög taka fram að eftir er að ganga frá skilum við gildistöku nýrra laga um málefni fatlaðra að því er varðar erfðafjárskatt og Erfðafjársjóð. Það mál er núna í undirbúningi og þegar hafnar viðræður milli rn. um það mál. Því liggur ekki endanlega fyrir hver stefnan verður á þessu ári.
Ég ætla að leitast við að svara nokkrum spurningum sem hv. 4. landsk. þm. beindi til mín í sambandi við húsnæðismálin. Þetta verður einhvers konar framhaldsþáttur því ég á ósvarað mörgum spurningum hv. þm. í fyrirspurnatíma. Væntanlega verður um þetta framhaldsþáttur á morgun á þingi.
Í sambandi við skyldusparnaðinn vil ég endurtaka það, sem ég hef áður sagt, að í nýju frv., sem er til afgreiðslu á hv. Alþingi, í félmn. þessarar deildar, eru vissir möguleikar á breytingum að því er varðar skyldusparnaðinn. Hann er furðulegur. Gegnum skyldusparnað fóru t. d. yfir 500 millj. kr. s. l. ár, en niðurstaðan varð sú að sparnaður var mínus í árslok í staðinn fyrir að vera plús. Reglurnar um skyldusparnað í þessari veru eru því greinilega orðnar úreltar og þarf að gera á þeim breytingar. Ég geri ráð fyrir, miðað við þá athugun sem við höfum látið fara fram, að með tiltölulega litlum breytingum, sem lagt er til að gera á títtnefndu frv., verði hægt að hægja á gegnumstreymi skyldusparnaðarins svo nemi miklu stærri upphæðum en nú, jafnvel stærri en gert er ráð fyrir í lánsfjárlögunum sjálfum. Þetta verður að sjálfsögðu ítrekað við hv. félmn. þegar málið verður lagt fyrir til 2. umr., sem væntanlega verður innan skamms.
Þar með tel ég að fyrstu og annarri spurningu hv. þm. hafi verið svarað.
Þriðja spurningin var um hvort ráðh. telji að sérstök fjáröflun, 200 millj., og fjáröflun frá lífeyrissjóðunum muni skila sér. Ég get aðeins endurtekið það sem ég hef sagt áður: Ég tel að svo verði. Ég vil bæta því við í sambandi við lífeyrissjóðina, eins og raunar kom fram hjá hæstv. fjmrh. áðan, að um þetta var fundað sérstaklega hvað eftir annað með fulltrúum lífeyrissjóðanna og náðist við þá viðunandi samkomulag að okkar mati. Ég lýsti því hér við 2. umr. um þetta mál að fyrstu tveir mánuðir þessa árs bentu til þess að lífeyrissjóðirnir hefðu tekið við sér að því er þetta varðar þar sem skil þeirra til Byggingarsjóðs ríkisins í janúar og febrúar voru tæpar 100 millj. kr. á móti aðeins 36 millj. fyrstu tvo mánuði ársins 1983. Á þetta mun reyna. Ég hef enga ástæðu til á þessari stundu að vefengja lífeyrissjóðina um þetta hlutverk þeirra. Ég mun leggja mjög sterka áherslu á það og hef þegar gert það við Húsnæðisstofnun að gerður verði samningur við hvern lífeyrissjóð út af fyrir sig um greiðsluskil ársins 1984. Það hefur aðeins verið beðið eftir samþykkt lánsfjáráætlunar til þess að hægt væri að ganga formlega að slíkum samningum, en undirbúningur undir þá samninga er þegar hafinn og eru þeir tilbúnir til útsendingar.
Fjórða spurning hv. þm. var um hvort ég áliti að ríkisstj. væri skuldbundin að leggja 1050 millj. kr. í húsnæðiskerfið miðað við lánsfjárlögin. Ég hef þegar svarað að því er varðar lífeyrissjóðina og ég get bætt því við að ég tel að mismuninn, sem er 360 millj., sé tvímælalaust skylda ríkissjóðs að tryggja, þ. e. sérstök fjáröflun upp á 200 millj., skyldusparnaður 45 millj. og lán frá Atvinnuleysistryggingasjóði 115 millj. Ég endurtók við 2. umr. málsins að skv. lögum á ríkissjóður að tryggja Atvinnuleysistryggingasjóði það fjármagn sem löggjafinn skyldar hann til að láta af hendi. Samþykkt lánsfjáráætlunar leggur skyldu á Atvinnuleysistryggingasjóð sem ríkissjóður er þar með skuldbundinn að sjá um að verði innt af hendi.
Í 5. og 6. spurningu hv. þm. vitnar hann í framkvæmdaáætlun frá húsnæðismálastjórn, sem fjh.- og viðskn. hafði fengið frá stjórninni, þar sem kemur fram að að þeirra mati muni vanta 437 millj. kr. Ég hef ekki annað svar við þessu en það að sú áætlun er byggð á óskalista Húsnæðisstofnunar. (Gripið fram í.) Ég hef lagt það fyrir Húsnæðisstofnun og það veit hv. 3. þm. Reykv. að er venja að Húsnæðisstofnun gerir áætlun miðað við það fjármagn sem henni er ætlað á fjárlögum og lánsfjárlögum. Þegar þessi fjárlög hafa verið samþykkt mun húsnæðismálastjórn gera nákvæma sundurliðun á þessari áætlun, sem hún hefur þegar gert fyrir mig, en verður senn gerð opinber, og eftir henni verður að sjálfsögðu farið. Ríkisstj. leggur þess vegna ekki til við húsnæðismálastjórn sérstakan niðurskurð á neinum hennar till. Hún gerir tillögur í samræmi við það sem Alþingi ætlast til með samþykktum fjárlögum og lánsfjárlögum. Þetta er einföld útskýring sem ég vænti að hv. alþm. átti sig á.
Ég vil geta þess hér þessu til viðbótar, sem ég kom lauslega inn á við 2. umr. þessa máls, að til viðbótar við till. í lánsfjárlögum samþykkti ríkisstj. að viðskrh. og félmrh. hæfu viðræður við Seðlabanka og fulltrúa viðskiptabanka og sparisjóða um að þessir aðilar tækju að sér að veita sérstakt framkvæmdalán til framkvæmdaaðila í byggingariðnaði. Þessi lán voru áætluð á bilinu 115–140 millj. kr. Viðræður um þessa fjáröflun eru hafnar og búið að halda tvo fundi um þetta og þeim viðræðum verður haldið áfram. Ef samningar nást, sem ég hef vissar ástæður til að halda, er það viðbótarfjármagn við það sem kemur fram í lánsfjárlögum og lánsfjáráætlun og kemur örugglega að mjög góðum notum við framkvæmd þessa máls.
Ég held, herra forseti, að ég sjái ekki ástæðu til að lengja þessar umr. Ég tel að þessar skýringar frá minni hálfu séu í samræmi við þá túlkun sem ég hef á þessu máti og ég vík ekki frá henni í neinum atriðum.