31.10.1983
Neðri deild: 9. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 458 í B-deild Alþingistíðinda. (326)

13. mál, endurmat á störfum láglaunahópa

Guðmundur H. Garðarsson:

Herra forseti. Í því frv. sem hér liggur fyrir er komið inn á mjög stórt mál og viðkvæmt. Þess vegna er ekki alveg sama hvernig þetta mál er kynnt á Alþingi né fyrir þjóðinni. Ég verð því miður að segja það, að ég var ekki nægilega ánægður með það hvernig hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir lagði þetta mál fyrir hv. Alþingi. En áður en ég vík máli mínu að því vil ég fara örfáum orðum um það sem hæstv. félmrh. sagði hér áðan.

Hann sagði að það væri undrunarefni að aðilar vinnumarkaðarins skuli ekki hafa upplýsingar um þetta efni, þ.e. um stöðu láglaunafólks í landinu. Ég held að þessi ummæli ráðh. séu á miklum misskilningi byggð eða hann hafi ekki fengið réttar upplýsingar þar sem hann leitaði þeirra, fyrir utan það að hér er um augljóst mál að ræða. Það skiptir ekki meginmáli eða ræður úrslitum um stöðu þessa fólks hvort meiri eða minni upplýsingar liggja fyrir á pappírum eða í skýrslum, vegna þess að þeir sem þekkja þessi mál til hlítar og hafa fjallað um þau í áratugi, þar á ég við aðila vinnumarkaðarins, annars vegar verkalýðsfélögin og hins vegar vinnuveitendur, vita hvar láglaunafólkið er að finna í landinu.

Það eru ekki upplýsingarnar sem vantar endilega, þótt ég út af fyrir sig geti mælt með því að þetta endurmat eigi sér stað sem frv. gerir ráð fyrir. Það eru ekki upplýsingarnar sem vantar. Það sem vantar er að það sé réttur skilningur í íslensku þjóðfélagi á stöðu láglaunafólks og einnig stöðu þeirra manna sem þurfa að semja um kaup og kjör þessa fólks. Það eru ekki aðeins foringjar eða forustumenn verkalýðshreyfingar eða vinnuveitenda sem fjalla um þessi mál heldur ríkið sjálft. Það þarf því ekki að fara langt til að komast að raun um það hvar láglaunafólkið er. Og það fer ekki eftir kyngreiningu hvort maður er láglaunamaður eða ekki. Ég vildi leyfa mér að orða þetta eitthvað á þessa leið: Leiðin frá þessu fólki til hæstv. Alþingis er of löng. Það mætti e. t. v. mæla þessa leið í árum. Og þegar ég tala um það að mæla þessa leið í árum þá mæli ég hana — ja, ég vil segja miðað við kosningar.

Þetta mál, umhyggjan fyrir láglaunafólki, er ofarlega á baugi yfirleitt alltaf hjá stjórnmálamönnum fyrir hverjar kosningar. Hér erum við því kannske að fjalla um mál sem stjórnmálamenn vilja taka þátt í að leysa fjórða hvert ár. Ég er þeirrar skoðunar að það séu litlar líkur fyrir því að stöðu og afkomu láglaunafólks á Íslandi verði bjargað úr sölum Alþingis. Nægir að benda á það að hér í hæstv. sölum Alþingis hafa kjör þessa fólks verið skert í gegnum árin og áratugi, og nægir núna t.d. að geta þess að afnám samningsréttar hjálpar ekki til að skapa mönnum stöðu til að bæta afkomu launafólks.

Það sem mér finnst skipta máli þegar verið er að ræða um stöðu þessa fólks er að reyna að gera sér grein fyrir hvers vegna fjöldi láglaunafólks er svona mikill, ekki aðeins á samningssviði verkalýðshreyfingarinnar og vinnuveitenda, þ.e. aðila vinnumarkaðarins, heldur einnig hjá ríkinu. Og þar kemur margt fleira til greina en hv. þm. kom inn á í ræðu sinni. Ég vil, áður en ég fjalla um þau atriði, víkja örlítið að því sem hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir sagði í sambandi við verkalýðshreyfinguna.

Mér finnst það þungur dómur, eins og hún sagði sjálf, yfir íslenskri verkalýðshreyfingu með hvaða hætti hún kynnti þetta frv. og ómaklegur. Hv. þm. sagði m.a. að verkalýðshreyfingin hefði ekki látið sig þessi mál varða, þ.e. verkalýðshreyfingin hefði látið hagsmuni og afkomu láglaunafólks afskiptalaus. Hv. þm. talaði um að baráttuaðferðir verkalýðshreyfingarinnar í sambandi við þetta mál væru úreltar. Hv. þm, talaði um sofandahátt og ekki vitrænar leiðir. Ég veit nú ekki hvað vitrænar leiðir eru hjá hv. þm., það kemur örugglega næst. (Iðnrh.: Það eru hinar leiðirnar.) Það eru hinar leiðirnar, já. Við skulum þá láta það standa. En að tala um það að íslensk verkalýðshreyfing hafi verið afskiptalaus um stöðu láglaunafólks á Íslandi finnst mér svo furðuleg ummæli, að ég gat ekki setið á mér að standa upp. Ég mótmæli því fyrir hönd íslenskrar verkalýðshreyfingar að sú forusta sem þetta fólk hefur kosið yfir sig á liðnum áratugum hafi ekki dugað í baráttunni fyrir íslenskan verkalýð. En það eru mörg önnur atriði sem hafa ber í huga, sem hafa haft mikil áhrif á það að þróa upp þessa láglaunahópa, sem ég skal víkja núna að. Áður en ég geri það vil ég þó aðeins árétta það að mikið hefur áunnist fyrir íslenskan verkalýð fyrir tilstuðlan þeirra sem mynda verkalýðshreyfinguna, fyrir tilstuðlan þeirra sem semja fyrir verkalýðshreyfinguna og einnig fyrir tilstuðlan þeirra sem hafa haft forustuna í íslensku atvinnulífi.

Ég minni á það og dreg fram hvað gerst hefur á síðustu áratugum. Í fyrsta lagi vil ég geta þess og undirstrika, sem ekki er rætt oft hér í sölum Alþingis, að í íslenskum fiskiðnaði er komið algjörlega nýtt launakerfi. Það er komið nýtt launakerfi sem hefur gjörbreytt tekjumöguleikum fólks í fiskiðnaði. Þetta á við bæði um hraðfrystiiðnaðinn og vinnslu saltfisks. Ég vek einnig athygli á því að með tilkomu nýju skuttogaranna stórbatnaði hlutur íslenskra sjómanna þannig að þegar vel aflast og vel gengur má flokka íslenska sjómenn undir hátekjufólk.

Þá vil ég í þriðja lagi vekja athygli á því að í ýmsum nýjum starfsgreinum, sem hefur fjölgað mjög á síðustu árum, eru komin ný launakerfi sem gefa fólki möguleika til mjög góðra tekna. (Gripið fram í.) Ég spyr á móti: Hvaða maður á Íslandi þarf ekki að leggja hart að sér? Ég þekki ekki þá Íslendinga sem þurfa yfirleitt ekki að leggja hart að sér í vinnu, hvort sem það er láglaunafólk eða annað fólk. Í hvaða veröld lifir hv. þm.? (Iðnrh.: VR-veröld.) Ja, hún gekk nú úr stjórn félagsins og helgaði sig stjórnmálastörfum.

En svo vil ég einnig koma með nokkur önnur atriði sem skipta máli í þessu sambandi, því mér finnst það ósæmilegt að ráðist skuli á verkalýðshreyfinguna með þeim hætti sem gert var hérna áðan. (KP: Þú getur það.) Ég geri það af því þú hafðir ekki rænu á að standa upp. Verkalýðshreyfingin hefur t.d. gert samninga um stórbættar tryggingar. Árið 1970 varð bylting í lífeyrismálum íslenskrar verkalýðshreyfingar með þeim samningum sem þá voru gerðir á hinum frjálsa vinnumarkaði. Þá hafa verið samþykkt lög á Alþingi sem m.a. fela í sér stórbætta aðstöðu í sambandi við fæðingarorlof, auk samninga um aðrar tryggingar. Þá hefur orlof verið lengt stórlega á síðasta áratug, vinnutími styttur og sérhæfðir hópar, þ.e. nýir þjóðfélagshópar, ný þre5un, sem hefur komið inn í. fengið stórbætta aðstöðu og mjög góð kjör. Ég nefni sem dæmi flugfólk, sem hv. þm. þekkja vel til, lækna, hundruð manna sem eru farin að vinna við tölvur o.s.frv.

En þá skulum við líta á hina hliðina, það sem hefur raunverulega verið að gerast þessu samfara. Það er tvíþætt. Í fyrsta lagi hefur skipting þjóðartekna á Íslandi gjörbreyst á liðnum áratug. Dreifingin er orðin meiri. Það hefur átt sér stað áður óþekkt þjóðfélagsþróun, nýir tekjuhópar hafa komið til skjalanna, nýir árgangar sem krefjast síns hlutar af íslenskum þjóðartekjum. Þetta eru, ég vil segja fyrir mann á mínum aldri, börnin okkar. Þetta er fólkið sem hefur verið að koma inn á vinnumarkaðinn á síðustu tveim áratugum með nýjar og öðruvísi þarfir en fyrri kynslóðir. Aukning þjóðartekna á Íslandi hefur ekki verið jafnhröð og hinar auknu þarfir, þrátt fyrir aukna menntun og aukna tækni.

Þá má einnig bæta því við að vegna þeirra launatengdra atriða sem ég taldi upp áðan, orlof, tryggingar, styttri vinnutíma o.fl., hefur skipting launakostnaðar í þjóðfélaginu breyst. Og það hefur komið mjög hart niður á þeim sem eru með lægstu launin. Hlutfallið milli útborgaðra launa og launatengdra gjalda hefur gjörbreyst þannig að útborguð laun hafa hlutfallslega lækkað en launatengd gjöld hafa hækkað. Þetta hefur haft mjög skaðleg áhrif gagnvart láglaunafólki, sérstaklega í mikilli verðbólguþróun.

(Forseti: Mig langar að spyrja hv. ræðumann hvort hann geti lokið máli sínu á mjög stuttum tíma — eða hvort hann kysi heldur að halda áfram á framhaldsfundinum kl. 6?)

Nei, ég skal ljúka máli mínu. Mér finnst að þegar verið er að ræða um svona viðkvæm mál þá sé mjög þýðingarmikið að talsmenn þess, því þetta er gott mál sem vert er að kanna, geri það með jákvæðum hætti þannig að þeir eignist bandamenn en ekki andstæðinga og alla vega að málflutningurinn valdi ekki misskilningi. Mér finnst það einnig þýðingarmikið, þegar verið er að ræða um þessi atriði. að menn geri sér grein fyrir því að hér eru margþættar ástæður að verki. Að mínu mati hefur þessi neikvæða þróun gagnvart láglaunafólki fyrst og fremst orðið vegna mikillar sérhæfingar og auk þess, ef við lítum til stöðu konunnar, þá hafa þær því miður orðið undir í samkeppninni við karlmanninn í þessari þróun sem hefur átt sér stað á Íslandi á undanförnum árum.

Því verður auðvitað að breyta. Ástæður þess að konur eru komnar í meiri hluta í láglaunahópunum eru svo margþættar að það má ekki einblína á eitt eða tvö atriði. Það má ekki gera konur að einhverjum fórnardýrum út af fyrir sig. Við eigum að reyna að breyta þessu. Það sem við eigum að gera er að bæta stöðu konunnar, bæta samkeppnisaðstöðu hennar til þess að taka þátt í hinni nýju þróun sem á sér stað, færa konur upp úr láglaunahópunum inn í sérhæfðu hópana, gefa þeim aukna og betri möguleika. En ekki einblína á stöðuna eins og hún er í dag heldur horfa til framtíðarinnar. Og þar finnst mér að Alþingi geti komið til skjalanna m.a. með því að skapa konum betri skilyrði til aukinnar menntunar, sérstaklega á sérsviðum. Það þarf að auðvelda þeim konum sem þess óska að fara út á vinnumarkaðinn, með öllum tiltækum ráðum, þannig að þær verði þátttakendur í hinni nýju atvinnuþróun en sitji ekki eftir.

Að lokum vil ég segja það, að það er eitt atriði sem tengist þessu mjög, sem ég held að eigi eftir að vera konunum mjög í hag. Það er sú fjarskipta- og tölvuþróun sem á sér stað í heiminum núna. Þessi þróun mun hafa það í för með sér að störfin færast aftur frá stóru vinnustöðunum til smærri eininga. Þar kemur inn í ný staða og betri möguleikar konunnar sem og annarra á heimilinu. Fjarskipta- og örtölvutæknin er það stórt mál í sniðum að það verður að bíða betri tíma til ítarlegrar umræðu.