19.03.1984
Neðri deild: 59. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3847 í B-deild Alþingistíðinda. (3261)
144. mál, lánsfjárlög 1984
Guðmundur Einarsson:
Herra forseti. Ég þakka þau svör sem hafa borist úr þessum stóli við spurningum mínum og langar aðeins að ræða út frá þeim. Hæstv. fjmrh. spurði mig hvort ég væri vanþakklátur fyrir upplýsingafundi fjmrh. með stjórnarandstöðu þar sem gerð hefur verið grein fyrir ýmsum málum. Ég er ekkert að vanþakka þessa fundi. Það má alls ekki skilja það svo. Hins vegar veit ég ekki hvað ég yrði kátur að mæta á upplýsingafund um lánsfjárlagagatið og þurfa svo að þakka veittar upplýsingar eftir að vera búinn að standa hér í stól í margar vikur og gefa þessar upplýsingar. Það kæmi engum á óvart, það væri ekki verið að segja neinar nýjar fréttir þó boðaður yrði fundur um slæmt ástand í lánsfjárlögum ríkisins. Það er það sem ég var að tala um, hvort sem um er að ræða fjárlagaafgreiðslu eða lánsfjárlagaafgreiðslu að hér stendur stjórnarandstaðan og bendir á það hversu mátin eru illa útbúin. síðan eiga þeir að kvaka og þakka með titrandi tár eftir nokkrar vikur þegar þeim er boðið á upplýsingafund þar sem verið er að segja þeim það sem þeir voru að tala um fyrir nokkrum vikum. Það eru þessi vinnubrögð sem ég tel ekki sæmandi, hvorki þinginu, þjóðinni né ríkisstj. og það er það sem ég er að gagnrýna. Hér kemur hver ræðumaðurinn og bætir um betur og borar á fjárlögin göt. Ég tel að þetta sé ekki orðið vammlaust og ég tel að það verði leið stund í lífi okkar að þurfa sum að taka þátt í að afgreiða þetta í kvöld og önnur að horfa upp á það
Í sambandi við húsnæðislánakerfið spurði ég hæstv. fjmrh. um það hvort hann teldi að ríkisstj. bæri ábyrgð á þeim 1050 millj. kr. sem verja á skv. lánsfjáráætlun til húsnæðislánakerfisins. Í ljós kom að fjmrh. telur ríkisstj. ekki bera neina ábyrgð og ber það fyrir sig að ef eitthvað af þessari lánsfjáröflun bregðist þurfi Alþingi um það að fjalla. Vill hann þá ekki fá heimildarákvæði inn í þessi lánsfjárlög um að ef eitthvað stendur á peningunum frá lífeyrissjóðunum eða eitthvað stendur á peningum annars staðar frá fái ríkisstj. leyfi til að ganga frá þeim málum á sama hátt og heimildarákvæði er til að bjarga Flugleiðum ef í ljós kæmi eftir aðalfund fyrirtækisins að einhverjar krónur vantaði.
Þetta er bara spurning um hvað ríkisstj. vill og hvað ríkisstj. ætlar sér. Ef hún lítur á húsnæðismálin þeim augum að þau hafi forgang eins og önnur félagsmál í landinu er henni í lófa lagið að láta það koma fram hérna vafningalaust að hún muni tryggja þessa fjármuni, annað eins hefur maður nú horft upp á hérna.
Komið hefur í ljós af því hvernig hæstv. fjmrh. ræddi um þessa lánsfjáröflun, 1050 millj. kr. að hann lítur alls ekki á þetta frv. til lánsfjárlaga eins og hann beri neina ábyrgð í þessu máli. Hann sagði eitthvað á þessa leið: Ef bréfin seljast ekki eru þessir peningar ekki til og ég ráðlegg fólki að bíða með að byggja. — Þetta eru nú skilaboðin sem hæstv. fjmrh. flytur fólkinu í landinu og Húsnæðisstofnun. Hverjum á Húsnæðisstofnun að trúa?
Annars vegar stendur félmrh. sem segir: Þetta eru okkar tölur, við þetta ætlum við að standa. — Hins vegar er fjmrh. sem ræður kassanum og segir: Þetta er ábyrgðarlaust, við berum enga ábyrgð á þessu. Ef þessir peningar skila sér ekki frá lífeyrissjóðunum, ef þeir skila sér ekki úr skuldabréfunum verður bara svo að standa og þá verða menn að standa með sín hálfköruðu hús. — Þetta sagði fjmrh. um ábyrgð í sambandi við húsnæðislánakerfið. Hann ætlaði hins vegar að hafa miklu betri vara gagnvart Flugleiðum. Ekki er nóg að bíða og sjá til eftir aðalfund fyrirtækisins hvort því verður einhvers fjár vant. Þar á að setja undir lekann með því að setja inn heimildarákvæði núna til þess að hægt verði að bjarga þeim ef reikningar fyrirtækisins fullbúnir, lagðir fram á aðalfundi, sýni þörf á einhverjum stuðningi. Þar er tekin ábyrgð.
Ég lagði líka spurningar fyrir hæstv. félmrh. Fyrstu spurningarnar tvær voru í sambandi við skyldusparnað. Ég verð að viðurkenna að ég var að vísu ekki þingreyndur maður í haust þegar ég var viðstaddur umr. um húsnæðismálafrv. og ég er ekki þingreyndur maður enn, en það hefur algerlega farið fram hjá mér að í fyrirhuguðu frv. um Húsnæðisstofnun séu svo stórkostlegar breytingar f aðsigi f sambandi við framkvæmd skyldusparnaðar að ástæða sé til að ætla að undir vorið þegar frv. taki gildi geri það meira að segja meira en að skila 45 millj. kr. Samkvæmt áætlun stofnunarinnar stendur það í mínus 30 millj. kr. en svo gæti farið að ef það tekur gildi einhvern tíma í vor — það er ennþá í n. í fyrri deild — gæti það jafnvel skilað meira en 45 millj. kr. Það eru svo sannarlega veigamiklar breytingar.
Um skuldbindingu ríkisstj. á 1050 millj. kr., eins og það horfir við frá hæstv. félmrh., er svolítið annað hljóð í strokknum. Tekið var sérstaklega fram að ríkisstj. beri tvímælalaust ábyrgð á þeim 360 millj. kr. sem eigi að koma úr Atvinnuleysistryggingasjóði, úr skyldusparnaði og sérstakri fjáröflun, það er algerlega án nokkurs fyrirvara hjá hæstv. félmrh.
Í sambandi við 690 millj. kr. sem eiga að koma frá lífeyrissjóðunum minnir mig raunar að hann hafi ekki tekið tvímælalaust af skarið, jafn sterklega þar, en hins vegar vísaði hann til mjög traustvekjandi funda sem þeir fjmrh. og hann höfðu haldið með forsvarsmönnum samtaka sjóðanna.
En það var enginn vafi á því að það var tvímælalaust ábyrgð ríkisstj. að standa klár á þessum 360 millj. og þar í eru 200 millj. í sérstakri fjáröflun sem átti að afla með skuldabréfasölu og sem hæstv. fjmrh. var nýbúinn að sverja af sér og segja: Ja, ef bréfin seljast ekki þá verða engin lán. (Fjmrh.: Það er ekki mér að kenna.) Ég fer nú að fá ríka ábyrgðartilfinningu út af þessu máli öllu saman, enda lagði ég til ásamt öðrum sem stóðu að minnihlutaáliti að þessu frv. yrði vísað aftur til ríkisstj. þannig að okkur gæfist betri tími til þess að leita saman lausnar á vandanum.
Í sambandi við 437 millj. kr., sem ber á milli í áætlunum Húsnæðisstofnunar annars vegar og síðan áætlunum ríkisstj. tók hæstv. félmrh. skýrt fram að þær væru byggðar á óskalista Húsnæðisstofnunar. Hvað er óskalisti Húsnæðisstofnunar? Óskalisti Húsnæðisstofnunar er í fyrsta lagi byggður á gildandi lögum og reglugerðum í sambandi við þessi mál og í öðru lagi bráðabirgðaumsóknum sem stofnunin hefur þegar til þess að skipuleggja þessi mál. Maður getur spurt: Á hvaða óskalista byggist áætlunin sem ríkisstj. gerði þá um sínar áætluðu lánveitingar? Hérna er um að ræða áætlun frá stofnun sem við skulum ekkert reikna með að sé að gera einhverja óskalista út f bláinn. Þeir eru að reyna að byggja upp grundvöll fyrir lánastarfsemi á ári sem þegar er liðið að 1/4.
Ef við tökum saman þetta sérkennilega samspil fjmrh. og félmrh. í þessu máli og síðan það finale sem hæstv. forsrh. gaf lítur það svona út: Fjmrh. tekur ekki ábyrgð á lánsfjáráætlun enda telur hann að hann geti það ekki þar sem tilhlutan Alþingis þyrfti ef til nýrrar fjáröflunar þyrfti að koma. Gott og vel. Ef bréfin seljast ekki eru engin lán og fólki er sagt að það verði þá bara að hætta að byggja og það sé ábyrgðarhluti að segja því að það gæti hugsanlega byggt á þessu ári. Þetta segir fjmrh.
Félmrh. segir: Tvímælalaus ábyrgð á 360 millj. kr. a. m. k., þar með taldar hinar 200 sem fjmrh. var að vísa af sér. Síðan kemur hæstv. forsrh. samhentrar og styrkrar stjórnar og segir að hann taki undir með báðum og það sé stefna ríkisstj. Ég held að bæði þingið, húsbyggjendurnir og Húsnæðisstofnunin eigi rétt á því að fá svolítið styrkari og samhentari svör frá hæstv. ríkisstj. f þessu efni.
Síðan ég talaði í fyrri umferðinni hafa ýmsar upplýsingar bæst við. Í 2. umr. á miðvikudaginn var sagði hæstv. félmrh., með leyfi forseta:
„Húsnæðismálastjórn hefur ekki endanlega gengið frá neinni lokaáætlun um árið 1984, sem er ekki eðlilegt. Það er beðið eftir þessari afgreiðslu sem hér liggur fyrir og reiknað er með 925 nýbyggingum á árinu 1984. Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að við það verði staðið miðað við óbreyttar tölur sem hér eru til grundvallar. Ég vil geta þess að í þeirri áætlun sem kemur fram í fskj. minni hl. eru ekki þær tölur sem ég hef nýjastar frá Húsnæðisstofnun í sambandi við þessa áætlun.“
Við höfum heyrt þær tölur sem eru nýjastar frá Húsnæðisstofnun og það er ekki gert ráð fyrir 925 nýbyggingalánum, gert er ráð fyrir 760 ef ég man rétt. Þetta eru nú styrk og samhent svör styrkrar og samhentrar stjórnar í málaflokki sem ætlar að ganga illa að fá þann sess sem honum ber í flokki með öðrum félagsmálum eins og heilbrigðismálum og menntamálum sem ekki eru sett á gaddinn þó illa gangi.