19.03.1984
Neðri deild: 59. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3850 í B-deild Alþingistíðinda. (3262)

144. mál, lánsfjárlög 1984

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég leyfði mér hérna í umr. í dag að leggja nokkrar spurningar fyrir hæstv. fjmrh. og ég get ekki sagt að ég sé mjög sáttur við svör hans. Það er ekki vegna þess að ég sé honum ósammála, heldur vegna þess að ég tel að hann hafi engin svör gefið við þeim spurningum sem lagðar voru fram, því miður. Það er að nokkru leyti vegna þess að ráðh. getur ekki gefið svörin. Það eru svör sem er ekki á hans færi að gefa á þessari stundu af ýmsum ástæðum, m. a. vegna þess að ekki hafa verið teknar nauðsynlegar ákvarðanir í fjmrn. í þessu efni.

Mínar fsp., til að fyrirbyggja misskilning, voru ekki bornar upp við hæstv. fjmrh. til að koma svo upp á eftir og hía á hann, svo ég noti hans eigin orð. Ég hef engan áhuga á því. Hæstv. fjmrh. þarf ekki að vera svona spéhræddur þó hann sé spurður af alþm. í stjórnarandstöðu. Ég er þeirrar skoðunar að við séum í góðri trú að reyna að feta okkur í gegnum þessi lánsfjárlög og lánsfjáráætlunina og reyna að skilja hvert annað og átta okkur á efnistökum með og á móti hinum ýmsu þáttum í málinu.

Ég tel að ég hafi farið mjög samviskusamlega yfir þessa hluti hér í dag eins og ég hafði best þekkingu til. Ég rakti hér margar tölur sem liggja fyrir, m. a. í gögnum frá ríkisstj., og ég óskaði eftir að fá um þetta efnislega umr. Umr. um málið á hv. Alþingi eru ekki bara spurningar og svör. Þetta er ekki fsp.-tími. Við erum hér til að skiptast á skoðunum um meginatriði efnahagsmála. Vissulega er lánsfjáráætlunin grunnplagg í því efni. Ég segi það alveg eins og er að ég hef orðið fyrir vonbrigðum með þessi skoðanaskipti. Mér finnst ekki að þau hafi farið alveg heiðarlega fram. Annars vegar hafa menn komið og lagt fram sínar athuganir á málinu og hins vegar koma ráðh. og segja: Ég trúi því að skattbyrði aukist ekki — og annar segir: Ég trúi því að allt verði í himnalagi með húsnæðismálin. Það kemur að vísu ekki fram á hverju þessi trú er byggð, þ. e. hvaða trúarsetningum. Þegar menn kjósa að rökræða með þessum hætti. að segja nánast við stjórnarandstöðuna „o, víst“ eins og krakkarnir segja, og víst er það svona en ekki hinsegin, þá er komið að vendipunkti, þá verður ekki um að ræða nein vitsmunaleg skoðanaskipti, þá eru menn farnir að pexa og þar með er málið á enda runnið.

Ég harma að ráðh. skuli vera gangandi, eða öllu heldur sitjandi, rökþrotabú eins og þeir reynast vera hér í dag. Þeir hafa engin rök, engin svör, engin rök af neinu tagi til að rökstyðja sitt mál með eðlilegum hætti. Ég óttast að þeir viti ekki hvað þeir eru að gera og þeir viti jafnvel stundum ekki hvað þeir eru að segja, sem er þó ábyrgðarhluti þegar um ráðh. er að ræða vegna þess að þá á að vera hægt að taka mark á orðum þeirra. Svo kemur hér hæstv. forsrh., sem á daginn eins og oft áður hér. Það höfðu komið fram yfirlýsingar frá hæstv. fjmrh. um að hann tæki enga ábyrgð á þessari lánsfjáráætlun í sambandi við húsnæðismálin, ekki nokkra. Svo kemur hæstv. félmrh. og segir: Þetta stendur allt. — Og þá kemur hæstv. forsrh., sem er nú framsóknarmáður, til að skýra málið aðeins betur og segir: Ég er sammála báðum, þ. e. bæði hæstv. fjmrh. og hæstv. félmrh. Þannig hefur forsrh. á þessu máli eins og flestum öðrum a. m.k. tvær skoðanir og er einatt svo leikinn að hann kemur iðulega báðum fyrir í einni og sömu ræðunni. Þetta væru megintíðindi af hálfu hæstv. forsrh., en ég ætla að endurtaka spurninguna. Ég óska eftir því að hæstv. forsrh. greini frá því hvorum hann er sammála. Stenst lánsfjáráætlunin? Ætlar ríkisstj. að standa við þau fyrirheit sem gefin eru húsbyggjendum í lánsfjáráætlun? Ég spyr hæstv. forsrh. vegna þess að ég vil fá það svar að þetta eigi að standast og ríkisstj. ætli sér að láta það standast. En ég segi líka við hæstv. félmrh.: Það er ábyrgðarhluti, að mínu mati, af honum að láta þetta fara þannig út úr deildinni hér í dag að það standi líka sú yfirlýsing hæstv. fjmrh. að fjmrn. beri ekki ábyrgð á því að þessi áætlun verði framkvæmd. Ég tel hættulegt fyrir hæstv. félmrh. að leggja upp með áætlun húsnæðismálastjórnar án þess að fjmrh. taki orð sín aftur í þessu efni og lýsi því líka yfir með hæstv. félmrh. að við áætlunina verði staðið í einu og öllu. Ég óska eftir að það komi fram hjá hæstv. fjmrh. og hæstv. forsrh. að við lánsfjáráætlunina verði staðið í einu og öllu á þessu ári, hún verði framkvæmd eins og efni standa til. Ég óska eftir að þessar yfirlýsingar verði gefnar algerlega skýlaust.

Ég spurði hæstv. fjmrh.: Hvað segir þú um þá auknu skattbyrði sem hv. þm. Ólafur Jóhannesson gagnrýnir? Og hv. fjmrh. svarar: Ég trúi því ekki að skattbyrðin aukist. Önnur rök hefur hann ekki og þar með punktur. Og ég segi: Ég trúi engu öðru en því að ég hef fyrir framan mig upplýsingar sem gera ráð fyrir að skattbyrðin hækki. — En ef það dugar ekki, ef staðreyndir duga ekki til að hreyfa skrúfu fjmrh., þá nær málið ekki lengra.

Ég spurði hæstv. fjmrh.: Hvar spara menn 5% og 2.5% í rekstri og launum hjá ríkinu? Svarið er ekkert. Svarið er núll. Svarið er: Ég hef skipað nefnd. — Ég vil greina hæstv. fjmrh. frá þeirri reynslu minni að áður hafa verið skipaðar nefndir um svipuð verkefni hjá ríkinu án þess að það hafi skilað ýkja miklum árangri.

Í þriðja lagi segir hæstv. fjmrh., og það var í raun og veru eina efnislega svarið sem frá honum kom, að hann ætlaði að skera niður upp í þær 300 til 400 millj. sem vantaði upp á innlendu lánsfjáröflunina. Hann sagði: Ég sker niður upp í 300–400 millj. — Það þýðir að hann ætlar ekki að taka erlend lán í þetta og hann ætlar sér ekki að láta prenta peninga í Seðlabankanum út á þetta. Eftir því verður gengið að ljóst verði af hans hálfu að hann standi við þessi orð sín betur en ýmsar aðrar yfirlýsingar um ríkisfjármál sem hann hefur gefið á undanförnum árum og hafa varla staðið sólarhringana út, satt best að segja.

Hæstv. félmrh. kom hér og kveinkaði sér undan því að ég væri að halda hér hrokaræður um húsnæðismál. Ég skil ekki hvers lags málflutningur þetta er. Ég veit ekki betur en ég hafi verið hérna í hverri ræðunni á eftir annarri að leggja félmrh. lið í húsnæðismálum og boðist til þess að stjórnarandstaðan, a. m. k. Alþb., legði sig fram um að hjálpa félmrh. í þeirri stöðu sem hann er í, þröngri stöðu. Af hverju heldur hann að ég sé að reyna að pína fram yfirlýsingar frá hæstv. fjmrh. og forsrh. nema til þess að hæstv. félmrh. standi betur að vígi í slagnum þegar hann fer að framkvæma þessa hluti á árinu 1984? Hann á ekki að vera að taka því illa þó menn gagnrýni, heldur á hann að meðhöndla þá gagnrýnisþætti sem fram koma af fullri sanngirni. En í svari hans, ef svar skyldi kalla, kom ekkert fram. Það var 0.0.

Ég spurði um hina nýju áætlun Húsnæðisstofnunarinnar, leyniplaggið sem hann var með hérna í síðustu viku, og hvort það ætti að lána 760 ný lán á þessu ári. Hann svaraði engu. En s. l. miðvikudag sagði hæstv. félmrh. að ætlunin væri að lána skv. áætluninni 7. febrúar 960 lán. Ég tel að meðan ekki kemur önnur yfirlýsing frá félmrh. standi hún sem hans afstaða — og ég bæti því við: Félmrh. hefur með afstöðu sinni og yfirlýsingu s. l. miðvikudag einnig lýst því yfir í raun að húsbyggjendur, sem gera fokhelt á tilteknum tíma og eiga rétt á lánum í nóvember og desember, fái sinn fyrsta lánshluta, það sé ekki ætlun hans að skera þar niður. Ef félmrh. mótmælir þessum skilningi mínum ekki núna á eftir tel ég að hann sé að segja við þessa húsbyggjendur: Þið fáið lánin eins og verið hefur í nóv. og des. 1984. — Standi þetta svona, þá er vel. En eftir því verður tekið hver niðurstaðan verður í þessu efni. Ef hann ekki mótmælir þessu hér á eftir lít ég svo á að við þetta sé miðað og þar með sé mótuð afstaða ríkisstj. og félmrh. í þessu efni. Og þá mun ég fyrir mitt leyti beita mér fyrir því og koma því á framfæri þar sem ég get að fólk fái að vita af þessu, þannig að félmrh. fái ekki aðeins stuðning stjórnarandstöðunnar, heldur einnig hins almenna húsbyggjanda við að halda utan um þessa hluti.

Hæstv. félmrh. svaraði engu um Byggingarsjóð verkamanna. Hann sagði ekki aukatekið orð um hann. Það er sem sagt ætlunin hjá ríkisstj. — eða hvað? — að skera niður allar framkvæmdir verkamannabústaðanna um 1/4. Er það ætlunin, hæstv. félmrh., að skera þetta niður um 1/4? Er það ætlunin að skera framkvæmdir niður hjá Byggingarsjóði verkamanna í Reykjavík, eins og ég gerði grein fyrir fyrr í dag, þannig að þeir sem eru núna að fá tilkynningu um að þeir fái úthlutað íbúðum fái á morgun tilkynningu um að því sé frestað fram á árið 1986? Er það svona sem á að vinna. Ætlar ríkisstj., ætlar hæstv. félmrh. að halda fast við að fresta þessum 1/4? Ég skora á ráðh. að svara þessu á eftir.

Ég bað hæstv. félmrh. að gera grein fyrir því hvernig honum sýndist skyldusparnaðurinn innheimtast betur skv. því frv. sem liggur fyrir þinginu. Hann hefur engu svarað um það. Ég bað hann að benda á greinar í frv. Hann hefur engar greinar bent á í því efni. Ég tel því miður, hæstv. félmrh., að frv. hafi stórversnað frá því sem það var í fyrra einmitt í þessu efni. Þar var gert ráð fyrir nokkuð ströngum ákvæðum í sambandi við skyldusparnaðinn. Ég vil taka það fram, ef um það gæti orðið samkomulag í sambandi við húsnæðismálin, að ég væri fyrir mitt leyti tilbúinn að beita mér fyrir því að laga stórlega kafla frv. um skyldusparnaðinn, þannig að hann skilaði betri tekjum fyrir húsnæðislánakerfið en nú er um að ræða, vegna þess að eins og sakir standa er stór spurning hvort það er nokkur ávinningur af því fyrir húsnæðislánakerfið að hafa skyldusparnaðinn á sínum vegum. Það er stór spurning miðað við þá miklu fyrirhöfn sem þetta kerfi hefur í för með sér.

Herra forseti. Ég ætla ekki að sinni að ræða miklu frekar um þessi mál, það er orðið þröngt um tíma, en áður en ég vík úr ræðustól vil ég minna á tvennt.

Í fyrsta lagi buðust fulltrúar stjórnarandstöðunnar í fjh.- og viðskn. Nd. Alþingis til að afgreiða sérstaklega erlendu lánsfjárábyrgðina í þessu frv., þannig að hún fengi hraða meðferð í gegnum Alþingi. Með þessu móti hefði verið hægt að flýta því máli mjög og taka hér upp ítarlegri umr. um aðra þætti lánsfjáráætlunarinnar. Þessu góða boði stjórnarandstöðunnar var hafnað, þannig að ríkisstj. getur kennt sjálfri sér um þann vanda sem nú er um að ræða í sambandi við afgreiðslu málsins á kvöldfundi þeim sem senn hefst.

Í öðru lagi vil ég minna á að sem fulltrúi Alþb. í fjh.og viðskn. Nd. bauðst ég til þess fyrir hönd míns flokks að stuðla að því að lánamál bænda fengju afgreiðslu um leið og fjárfestingar- og lánsfjáráætlunin og lánsfjárlögin. Einnig því góða boði Alþb. var hafnað.