19.03.1984
Neðri deild: 59. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3861 í B-deild Alþingistíðinda. (3276)

144. mál, lánsfjárlög 1984

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Fram hefur komið að eina ástæða þess að verið er að afgreiða þetta frv. hér í kvöld er sú að hæstv. ríkisstj. er komin í eindaga erlendis með að taka erlend lán. Verði frv. ekki afgreitt hér í kvöld verður ríkisstj. af þessum lántökumöguleika.

Einnig hefur komið fram við þessa umr. að hæstv. ríkisstj. hefur verið boðið af hálfu stjórnarandstöðunnar að afgreiða eingöngu þá grein þessa frv. sem snertir hina erlendu lántöku, en láta aðra þætti, sem mjög hefur verið deilt um við þessa umr. og allir eru í mikilli óvissu, bíða. Þessu tilboði hefur hæstv. ríkisstj. neitað að taka. Þess vegna liggur ljóst fyrir að hæstv. ríkisstj. er staðráðin í að fá hér afgreitt frv. til lánsfjárlaga sem er svo mikilli óvissu háð að það gefur í raun og veru enga vísbendingu um efnahagsstjórnina á því ári sem nú er að líða. Þetta frv. er botnlaust frv., þetta frv. er merkingarlaust frv. og það er ekki skv. sóma Alþingis að afgreiða þetta frv. hér og nú.

En fyrst ríkisstj. vill sitja uppi með þennan gjörning verður hún að eiga þá ákvörðun. Ég tek þess vegna ekki þátt í afgreiðslu þessa máls og sit hjá.