19.03.1984
Efri deild: 66. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3873 í B-deild Alþingistíðinda. (3294)
144. mál, lánsfjárlög 1984
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Við afgreiddum þetta mál frá þessari hv. deild á sínum tíma. Síðan hefur Nd. gert á því ýmsar breytingar og þar hafa orðið um það miklar umr. Hefur nú reyndar komið í ljós, sem sagt var hér, að ekki stendur nú steinn yfir steini í þessu frv. til lánsfjárlaga lengur. Það er gersamlega marklaust plagg í hvívetna. Það hefur komið mjög rækilega fram hér hvað eftir annað og málið er komið hingað aftur vegna breytinga sem á því voru gerðar í Nd.
Í Nd. lögðu stjórnarandstöðuflokkarnir til að málinu yrði vísað til ríkisstj. þar sem þetta væri marklaust plagg orðið og þyrfti að vinna það allt upp á nýtt og endurskoða tölur. Í Nd. var það fellt. Ég geri síður ráð fyrir að við förum að endurflytja þá till. hér, heldur munum að líkindum sitja hjá við afgreiðslu málsins. Sú verður a. m. k. afstaða míns flokks.
En þetta er eins og ég sagði botnlaust plagg. Það er ekki einu sinni hægt að segja um það að botninn sé suður í Borgarfirði því það er engin botn í þessu. Það hefur t. d. verið bent á það mjög rækilega í umr. um þetta að húsnæðislánadæmið er gersamlega galopið og ófyrirsjáanlegt hvernig vanda húsbyggjenda verður mætt. Ljóst er að þar þarf að útvega mörg hundruð milljónir. Engar till. eru uppi um hvernig það verður gert. Ljóst er að þetta mun snerta a. m. k. þúsund fjölskyldur í landinu. Þannig er þetta allt með sömu endemunum. Svo er aftur hægt að koma hér og koma þar við sögu. Fjmrh. er heimilt að ábyrgjast lán með sjálfskuldarábyrgð, allt að 30 millj. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt, til að lána kartöflubændum og aðrar 30 millj. til að lána bændum vegna ótíðar. Það má segja ekki munar um einn kepp í sláturtíðinni. Hvað eru 30 millj. hér og hvað eru 30 millj. þar? En allt safnast þetta nú saman og hækkar áætlanir nokkuð. Það er raunar umhugsunarefni að því er kartöfluræktendur varðar. Mér er tjáð að fáar búgreinar, jafnvel í meðalárum hvað þá í góðum árum, hafi gefið jafnvel af sér og kartöflurækt, en þegar kemur eitt slæmt ár er staðan þannig í þeirri grein að ríkissjóður verður að hlaupa undir bagga.
30 millj. þar og 30 millj. hér munar ekki mikið um, en á frv. til lánsfjárlaga eru alvarlegir ágallar, eins og komið hefur fram, og mætti tala um það hér verulega langt mál. Nú hefur komið fram að öll eru þessi mál komin í eindaga ef þetta frv. verður ekki að lögum í kvöld eða nótt missir ríkisstj. rétt til að hefja lán sem samið var um og sótt til Japan að manni skilst með ærnum tilkostnaði. Þá er sá kostnaður sjálfsagt farinn í súginn. Ég leiði engum getum að því hver hann hefur verið, en þá er sá kostnaður farinn í súginn og þess vegna er sjálfsagt brýnt að þetta mál verði afgreitt með einhverjum hætti í kvöld eða nótt. Það verður náttúrlega að vera alfarið á ábyrgð stjórnarinnar og stuðningsmanna hennar.
Við stjórnarandstæðingar höfum komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé meira og minna út í hött. Fyrst koma fjárlög sem eru út í hött og það rennur upp fyrir hæstv. fjmrh. þegar þrír mánuðir eru liðnir af nýju ári að fjárlögin eru með 1700 millj. kr. gati. Það rennur upp fyrir hæstv. fjmrh. eftir þrjá mánuði og hann skýrir alþjóð frá því hér á Alþingi og mun væntanlega skýra alþjóð enn þá betur frá því í sjónvarpinu annað kvöld þar sem þessi mál verða til umr., og verður fróðlegt að hlýða á það. En við frábiðjum okkur að bera ábyrgð á þessu plaggi. Fyrst eru fjárlögin marklausu samþykkt og síðan kemur frv. til lánsfjárlaga sem er enn þá minna að marka en fjárlögin. Allt mun þetta koma í ljós síðar. Og þetta verða þungar byrðar að bera fyrir hæstv. ríkisstj. og hæstv. fjmrh.
Nú þykist ég vita að hæstv. fjmrh. eru þessi vinnubrögð ekki að skapi, ef ég þekki hann rétt. Þess vegna hefði verið sæmst að samþykkja þá till. sem fram var borin í Nd. um að ríkisstj. tæki þetta mál til endurskoðunar. Það hefði verið sjálfsagt að samþykkja þá grein er lýtur að erlenda láninu sem ekki verður hægt að hefja á morgun nema sú grein verði samþykkt. Mér finnst sjálfsagt að stjórnarandstaðan bjóði ríkisstj. að samþykkja þá grein sérstaklega, þannig að ekki komi til þess að áfallinn kostnaður fari í súginn, en að ríkisstj. taki aðrar greinar, sem bent hefur verið á að ekki eru í réttu samræmi við raunveruleikann, og endurskoði þær og komi síðan aftur með málið til Alþingis. Mér finnst sjálfsagt að ríkisstj. sé boðið að hafa þann hátt á, en ég þykist vita að það verði hér með sama hætti og í Nd., að skellt verði skollaeyrum við öllum slíkum tilboðum til sátta og samvinnu og málið keyrt í gegn. En ég endurtek að það er þá alfarið á ábyrgð hæstv. ríkisstj. og þeirra sem hana styðja. Við frábiðjum okkur að bera þar nokkra ábyrgð.