19.03.1984
Efri deild: 66. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3884 í B-deild Alþingistíðinda. (3301)
144. mál, lánsfjárlög 1984
Frsm. minni hl. (Ragnar Arnalds):
Virðulegi forseti. Mér þótti leitt að hæstv. fjmrh. skyldi koma sér undan að svara spurningu minni um það hver væri afstaða hans til þessarar nýju heimildar til niðurfellingar á lendingargjöldum Flugleiða með þeim einfalda hætti að vísa til þess að ég sem fyrrv. fjmrh. hefði stuðlað að því að Flugleiðir fengju styrk úr ríkissjóði nokkur ár í röð. Það er alveg rétt, það vita allir hv. þm. að Flugleiðir hafa fengið þennan styrk undanfarin ár. Það vita líka allir að áður en þetta var ákveðið fóru fram miklar umr. um það mál og sýndist sitt hverjum á tímabili en varð að lokum samkomulag um þá lausn sem valin var og var í því fólgin að veitt var til bráðabirgða lán til eins árs og síðan lánið gert upp árið eftir. Það kemur engum á óvart að ég stóð að því máli og það er ekki nein skýring eða svar við minni spurningu um það hver afstaða hæstv. fjmrh. nú er þegar aðstæður eru gjörbreyttar.
Það er aðalatriðið í málinu að þegar þessar ákvarðanir voru teknar af meiri hl. Alþingis stóðu Flugleiðir mjög illa. Þá var talið mjög tæpt að fyrirtækið gæti gengið með eðlilegum hætti og þetta var neyðarráðstöfun Alþingis til að tryggja rekstur Flugleiða. Nú eru hins vegar aðstæður gerbreyttar. Nú er ekki fyrirtækið lengur í neinni sérstakri hengingaról og því gilda ekki sömu rök og giltu fyrir 2–3 árum. Það sem ég spyr hæstv. ráðh. er: Hver er afstaða hans nú við þessar breyttu aðstæður úr því að hann var á móti því á sínum tíma þegar um neyðarástand var að ræða hjá Flugleiðum, að veita styrk úr ríkissjóði?
Ég gat ekki séð annað en að hæstv. ráðh. blandaði í svari sínu saman tveimur alveg óskyldum málum. Hann var að vekja athygli á því að það ætti eftir að greiða úr ríkissjóði seinasta lánið af þessum þremur. Það er búið að greiða lánið síðan 1981 og 1982 en það átti eftir að gera upp þetta seinasta lán. Það vita allir að sú saga var ekki alveg uppgerð. Það átti eftir að ljúka málinu. En það eina merkilega við þann þátt málsins var að hæstv. ráðh. upplýsir í fyrsta sinn fyrir Alþingi að hér er enn eitt gatið í fjárlögunum. (Gripið fram í.) Það var þó ekki í skýrslu fjmrh. til Alþingis á dögunum. Hvergi var getið um að þetta væri hluti af gatinu. Getið var um ýmiss konar göt sem væru á fjárlögunum en hér er fjmrh. í fyrsta skiptið að gera Alþingi og þar með þjóðinni grein fyrir því að þarna væri enn eitt gatið á fjárlögunum.
Það vantar alveg inn í fjárlögin þessar 64 millj. kr. sem þarf til að gera upp þetta seinasta lán sem veitt var Flugleiðum og mun að sjálfsögðu falla á ríkissjóð. Segja má því að þessi orðaskipti okkar hafi ekki verið til einskis úr því að það fékkst upp í umr. að hér er enn eitt stóra gatið á ferðinni. Upphæðin sem hæstv. ráðh. þyrfti að nefna er þá ekki 1850 millj. kr. heldur 1850 millj. kr. plús þessar 64 millj. kr. (Gripið fram í: Þetta er í því gati.) Nei, þetta er nefnilega ekki í því gati því að skv. því yfirliti, sem hæstv. ráðh. hefur gefið þinginu og með hliðsjón af öðrum upplýsingum, sem fengist hafa um þetta mál, er þetta viðbótargat.
En þetta uppgjör, sem hér er um að ræða, þ. e. uppgjör á láni sem útvegað var í Seðlabankanum á sínum tíma og þarf að gera upp á árinu 1984, er allt annað en niðurfelling á lendingargjöldunum sem núna er verið að tala um vegna þess að þetta 64 millj. kr. nýja gat sem við vorum að enda við að tala um, er uppgjör fyrir liðna tíð. En það sem hér er verið að tala um, lendingargjöldin, er niðurfelling á þeim gjöldum fyrir þann tíma sem er að líða nú. Ég heyri það á hæstv. ráðh. að hann blandar þessu algerlega saman. Það var á honum að heyra að það væri ekkert val hjá honum hvort ætti að nota þessa heimild eða ekki því að hann væri bundinn af gerðum mínum á sínum tíma. Þetta er stórkostlegur misskilningur. Hann er vissulega bundinn af gerðum fyrri ríkisstj. í því efni að hann verður að gera upp það lán sem ákveðið var að taka á sínum tíma og veita Flugleiðum. En lendingargjöldin fyrir tímabilið 1. okt. 1983 til haustsins 1984, sem er nýtt tímabil, er mál sem er nýtt á ferðinni og varðar ákvarðanir fjmrh. nú á þessum vetri, hvort hann er reiðubúinn til að greiða þessar upphæðir úr ríkissjóði.
Ég ætla svo ekki að fara að rökræða við hæstv. fjmrh. enn einu sinni um fjármál ríkisins á liðnum árum. Það væri að bera í bakkafullan lækinn að fara að taka upp þá rökræðu enn einu sinni. En afskaplega þykir mér slæmt að hlusta á hæstv. ráðh. blanda saman jafnóskyldum hlutum eins og gati í fjárlögum annars vegar og hins vegar aukafjárveitingum. Þar er um alveg óskyld mál að ræða.
Á undanförnum árum hefur verið talsverður munur á fjárlögum annars vegar og raunverulegri verðbólguþróun hins vegar. Tekjur og gjöld hafa hækkað nokkuð í takt og það hefur þurft að gefa út aukafjárveitingar vegna þess bæði á gjaldahliðina og tekjuhliðina, kannske fyrst og fremst á gjaldahliðina. Það þarf kannske ekki að veita formlegar aukafjárveitingar vegna teknanna. Þær koma af sjálfu sér og enga ákvörðun þarf til að taka við þeim. En gat tölum við ekki um öðruvísi en að . . . (Gripið fram í: . . . það sé gat.) Það sé gat, að það vanti tekjur á móti gjöldunum. Á þessu er reginmunur. Mönnum hefur oft verið ljóst í upphafi árs að verðbólguþróun kynni að verða með eitthvað öðrum hætti en spáð hefði verið og um meiri útgjöld mundi verða að ræða á árinu en reiknað var með og þá um leið meiri tekjur. En menn hafa líklega ekki í áratugi staðið frammi fyrir stóru gati í upphafi árs.