20.03.1984
Sameinað þing: 67. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3899 í B-deild Alþingistíðinda. (3325)
427. mál, endurgreiðsla söluskatts af snjómokstri
Fyrirspyrjandi (Páll Pétursson):
Herra forseti. Á þinginu í fyrra voru samþykkt lög um breytingu á lögum nr. 10/1960, um söluskatt, með síðari breytingum. Við 6. gr. laganna bættist með því eftirfarandi málsgr.: „Heimilt er að endurgreiða söluskatt af kostnaði sveitarfélaga við snjómokstur. Ráðh. setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd endurgreiðslunnar og tiltekur gögn er sveitarstjórnir þurfa að leggja fram til að öðlast rétt til endurgreiðslu.“ Og í 2. gr. sagði: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“ Þetta var samþ. á Alþingi 2. mars 1983.
Í grg. með frv. sagði ég á sínum tíma: „Ekki verður um það deilt, að mjög er óeðlilegt að ríkið hagnist á söluskatti af þeim kostnaði sem sveitarfélög verða fyrir vegna snjómoksturs.
Þessi skattheimta kemur mjög ójafnt niður á sveitarfélögin, og ekki verður séð að sæmandi sé að nota erfiðleika, sem skapast vegna ótíðar, sem tekjustofn fyrir ríkissjóð. Með frv. þessu, ef að lögum verður, er reynt að jafna að nokkru skilyrði til búsetu hvar sem er á landinu.“
Þáv. fjmrh., hv. 3. þm. Norðurt. v., Ragnar Arnalds, var mjög samþykkur þessu máli á sínum tíma og flutti reyndar frv. svipaðs efnis hér fyrr meir, þar sem hann lagði til að endurgreiddur yrði söluskattur af snjómokstri til sveitarfélaga í þéttbýli. En þetta er nú útfært þannig að það er sama hvernig sveitarfélag um er að ræða.
Núv. hæstv. fjmrh., Albert Guðmundsson, 1. þm. Reykv., var enn fremur, ef ég man rétt, mjög samþykkur þessu máli. En því miður hefur í ráðherratíð hvorugs þessara hæstv. ráðh. neitt gerst í málinu svo mér sé kunnugt. Þess vegna leyfi ég mér að bera fram á þskj. 370 svohljóðandi fsp. til hæstv. fjmrh.:
„Hvenær hyggst fjmrh. neyta heimildar í lögum nr. 24 frá 16. mars 1983, um breytingu á lögum um söluskatt, og endurgreiða söluskatt af kostnaði sveitarfélaga við snjómokstur?“