20.03.1984
Sameinað þing: 67. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3901 í B-deild Alþingistíðinda. (3327)

427. mál, endurgreiðsla söluskatts af snjómokstri

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Umr. um þetta mál nú eru í raun hrein endurtekning á umr. sem fram fóru fyrir tveimur mánuðum. Þá bar einn hv. þm. upp alveg hliðstæða fsp. Ég tók þátt í þeim umr. og lýsti undrun minni yfir því, að fjmrh. skyldi vera í einhverjum vafa um það hvort hann ætti að framkvæma lög sem samþykkt hefðu verið hér á Alþingi. Sérstaklega þegar hann lýsti því svo jafnframt yfir að lögin væru eðlileg og sanngjörn, eins og hann gerði í þessum umr.

Ég tel mig muna það rétt að lögin hafi verið samþykkt alveg undir lok seinasta þings vorið 1983 og þau munu ekki hafa verið staðfest og hlotið formlegt endanlegt gildi fyrr en fáum vikum áður en stjórnarskipti urðu. Hins vegar var þegar hafinn undirbúningur að setningu reglugerðar um þetta efni og vissulega var þar við viss vandamál að etja. Þeirri reglugerðarsmíð var lokið þegar stjórnarskipti urðu. Var því ekki um neitt annað að ræða en að treysta á það að sá ráðh. sem við tæki gengi endanlega frá mátinu. Og satt best að segja grunaði mig ekki að á því yrði neinn dráttur.

Ég viðurkenni að nauðsynlegt kann að vera að hafa sérstakt eftirlit með því að ekki sé um misnotkun að ræða á þessari heimild. Og það er alveg rétt, sem kom fram hjá hæstv. ráðh., að það er kannske erfitt að leggja þá byrði atfarið á eftirlitsmenn skattakerfisins. En þessi erfiðleiki er nú ekki óyfirstíganlegur. Mín till. er sú, að hæstv. ráðh. gangi þannig frá málinu að lögreglustjórum og sýslumönnum verði falið að gefa vottorð um þessi mál og stimpla þá reikninga sem sendir verða vegna snjómoksturs sveitarfélaga. Ég hygg að þeim eigi að vera í lófa lagið að fylgjast með þessu í hverri sýslu landsins. Þannig væri hægt að leysa þennan vanda.