20.03.1984
Sameinað þing: 67. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3901 í B-deild Alþingistíðinda. (3328)
427. mál, endurgreiðsla söluskatts af snjómokstri
Fyrirspyrjandi (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. svarið þó að það sé vissulega ófullkomið og valdi manni miklum vonbrigðum. Það hefur mikið snjóað s. l. tvo mánuði og menn hefðu átt að geta hugsað um þetta mál og fundið greiða leið út úr því. Ég tel að það sé eintómur fyrirsláttur að ekki sé hægt að framkvæma þetta. Það eru margar leiðir til þess. Ráðh. er fatið að setja með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd endurgreiðslunnar og tiltaka þau gögn er sveitarstjórnir þurfa að leggja fram til að öðlast rétt til endurgreiðslu. Þetta ber ráðh. náttúrlega að gera. Ef um einhver vafatilvik væri að ræða, eins og að tæki gætu verið notuð til annarra verka, þá sýnist mér að ráðh. hefði það í hendi sinni að vísa frá þeim reikningum. Venjulega er það alveg ljóst hvernig tækið er notað. Snjóblásari er ekki notaður nema í snjóblástur. Í hríðarveðri er veghefill ekki notaður nema til snjóruðnings. Þetta á að liggja allt saman ljóst fyrir. Varðandi það hvenær lögin hefðu tekið formlegt endanlegt gildi, eins og fyrrv. fjmrh. hæstv. orðaði það, þá tóku þau formlegt endanlegt gildi 16. mars 1983 og þá átti sá ráðh. eftir að sitja rúma tvo mánuði í stól fjmrh.
Alþingi hefur samþykkt þessi lög og veitt ráðh. þessa heimild. Ég veit að ráðh. er allur af vilja gerður til að nýta þessa heimild, en þó hefur ekkert gerst í málinu.
Þetta er sanngirnismál, sem hér er um að ræða, og ég tek ekki trúanlegt að þetta sé óframkvæmanlegt. Reikningarnir um kostnaðinn liggja fyrir og það er rétt að endurgreiða þennan söluskatt og óverjandi annað en að gera það. Ríkissjóður þarf að vísu á tekjum að halda, en ég vona að fjmrh. sé sammála mér um það að þetta sé ófær tekjustofn. Ég heiti á hæstv. fjmrh. að kippa þessu máli í lag og nota þessa heimild. Vilji Alþingis liggur fyrir. Þetta ber að framkvæma. Allt annað er bara fyrirsláttur.