20.03.1984
Sameinað þing: 67. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3903 í B-deild Alþingistíðinda. (3332)
426. mál, fjármögnun húsnæðismála
Félmrh. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Þessi mál hafa verið mjög til umr. síðustu sólarhringa og raunar um leið og lánsfjárlög voru samþykkt á hv. Alþingi s. l. mánudag. Ég vil þó leitast við að gefa hv. 4. landsk. þm. svar við þeirri fsp. sem hann bar fram á sínum tíma á þskj. 370. Ég mun aðeins fara almennum orðum um húsnæðismálin. Eins og hv. alþm. vita ákvað ríkisstj. í byrjun valdaferils síns á s. l. ári að húsnæðismálin fengju sérstaka meðferð til að rétta hlut húsbyggjenda sem stóðu mjög illa að vígi í verðbólguástandi sem allir þekkja.
Fyrstu aðgerðir voru brbl. um frestun hluta greiðslu afborgana, vaxta og verðbóta, sem þýddi í raun lengingu lána. Rúmlega 3000 aðilar notfærðu sér þessa aðgerð á s. l. ári.
Ríkisstj. gerði samkomulag við viðskiptabanka og sparisjóði um sérstök skuldbreytingarlán til húsbyggjenda þar sem skammtímalánum var breytt í allt að 8 ára lán. Skv. upplýsingum þessara aðila svo og lífeyrissjóða nam þessi skuldbreyting rúmum 160 millj. kr. á s. l. ári.
Ríkisstj. ákvað að veita sérstök viðbótarlán til að létta vanda húsbyggjenda og húskaupenda á árunum 1981–1983 með því að hækka afgreidd lán um 50%. Skv. upplýsingum sem eru alveg nýjar voru 4884 gildar umsóknir um slík lán afgreiddar frá Húsnæðisstofnun að fjárhæð 302 millj. 893 þús. kr. og hefur Veðdeildin nú svo til afgreitt öll þessi lán að fullu.
Ríkisstj. ákvað jafnframt að frá og með 1. janúar s. l. skyldu öll lán frá Húsnæðisstofnun ríkisins hækka um 50%. Jafnframt yrðu nýbyggingarlán til þeirra sem byggja eða kaupa í fyrsta sinn greidd í tveimur hlutum, fyrri hluti mánuði eftir fokheldisstig og seinni hlutinn 6 mánuðum frá útborgun fyrri hluta. Afgreiðsla á þessum lánum hefjast nú frá Húsnæðisstofnun n. k. mánudag.
Ríkisstj. lagði fram frv. að nýrri húsnæðislöggjöf sem er til meðferðar á hv. Alþingi og vonast er til að verði að lögum fyrir þinglok í vor. Í frv. eru mörg þýðingarmikil nýmæli, m. a. stefnubreyting í fjáröflun til húsnæðismála sem kemur til með að draga úr óvissu um fjármögnun kerfisins. Í athugasemdum með fjárlagafrv. þessa árs er eftirfarandi um húsnæðismál:
„Í fyrsta lagi er lögð áhersla á húsnæðismál. Ríkisstj. skipaði nefnd til þess að endurskoða gildandi lög um Húsnæðisstofnun ríkisins. Frv. til laga um Húsnæðisstofnun ríkisins verður lagt fyrir Alþingi í þingbyrjun. Ríkisstj. hefur samþykkt að öll lán hjá Byggingarsjóði ríkisins verði hækkuð um 50% um næstkomandi áramót . . . Þetta eykur fjárþörf til Húsnæðisstofnunar ríkisins verulega, en hér er um að ræða málaflokk, sem verið hefur í algerri sjálfheldu, sem mikils er um vert að brjótast úr, sérstaklega fyrir ungt fólk, sem er að hefja lífsstarfið. Með þessum aðgerðum er einnig að því stefnt að jafna aðstoð ríkisins við þá sem byggja eigið húsnæði og þeirra sem fá svonefnt félagslegt húsnæði í verkamannabústöðum.“
Í lánsfjáráætlun 1984 er þessi útskýring á bls. 15: „Fjárþörf íbúðarlánasjóðanna er mjög mikil á árinu 1984 vegna ákvörðunar ríkisstj. um hækkun lána til íbúðabyggjenda. Framlag úr ríkissjóði er skv. fjárlagafrv. 400 millj. kr. Lánsfjáröflun til sjóðsins er fyrirhuguð þannig að 690 millj. kr. verði aflað hjá lífeyrissjóðum og 200 millj. kr. verði aflað með sérstakri útgáfu skuldabréfa. Að auki er gert ráð fyrir lánsfjáröflun eins og undanfarin ár, þ. e. 45 millj. kr. af skyldusparnaði og 115 millj. kr. lántöku hjá Atvinnuleysistryggingasjóði. Alls nemur því lántaka byggingarsjóðanna 1050 millj. kr. Ríkisstj. stefnir að því að ná samningum um að bankakerfið fjármagni svonefnd framkvæmdalán húsbyggingakerfisins að fjárhæð alls 115 millj. kr. án beinnar milligöngu húsnæðislánasjóðanna.
Útlán íbúðarlánasjóðanna 1984 eru áætluð 1 milljarður 572 millj. kr., eins og fyrr greinir, sem skiptist þannig að Byggingarsjóður ríkisins lánar 1166 millj. kr. og Byggingarsjóður verkamanna 406 millj. kr.“
Skv. þessu eru byggingarsjóðirnir settir upp í áætlun til lánveitinga á bls. 28 og 29 í lánsfjáráætlun sem hv. þm. hafa séð. Við þetta hef ég litlu að bæta. Lánsfjárlögin hafa verið samþykkt. Húsnæðismálastjórn ríkisins mun að sjálfsögðu byggja sína útlánaáætlun á samþykkt Alþingis, þ. e. samþykktum fjárlögum og samþykktum lánsfjárlögum, með tilvísan til samþykkta ríkisstj. um sérstakan forgang húsnæðismála og ákvarðanir um hækkun lána geng ég út frá því að ríkisstj. sjái um að við samþykkt fjárlög og lánsfjárlög verði staðið varðandi þennan mikilvæga málaflokk þannig að áætlun húsnæðismálastjórnar til útlána í samræmi við það standist.
Hins vegar er mér fullkomlega ljóst að meira fjármagn þarf til húsnæðismála, ekki síst til Byggingarsjóðs verkamanna. Um þann vanda mun ríkisstj. að sjálfsögðu fjalla áfram. En með tilliti til efnahagsvandans í þjóðfélaginu var ekki fært að ganga lengra á þessu ári jafnhliða þeim stórtæku aðgerðum sem ríkisstj. framkvæmdi til að bæta stöðu húsbyggjenda vegna áranna 1982 og 1983, sem ég þegar hef lýst hvernig staðið var að. Með samþykkt á hinu nýja húsnæðisfrv. skapast nýr grundvöllur, ný stefna, til að fjármagna húsnæðismálin í samvinnu við bankakerfið og lífeyrissjóðakerfið í landinu. Jafnframt er nú verið að undirbúa nýja áætlun til 2–3 ára um þörf á byggingu fétagslegra íbúða, þ. e. verkamannabústaða og leiguíbúða.
Herra forseti. Þetta er svar mitt við fsp. hv. 4. landsk. þm. á þskj. 370.