20.03.1984
Sameinað þing: 67. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3910 í B-deild Alþingistíðinda. (3341)

433. mál, breytingar á byggingarreglugerð

Félmrh. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Sem svar við þessari fsp. á þskj. 399 er það að segja að þann 6. mars s. l. gaf félmrn. út umrædda reglugerð, þ. e. reglugerð um breyt. á byggingarreglugerð nr. 292 16. maí 1979. Þessi reglugerð reikna ég með að komi í opinberum auglýsingaformum og verður hún send til kynningar ýmsum aðilum. Hún á að taka gildi 1. júní 1984.

Aðdragandinn að því að þessi reglugerð var sett er bréf til rn. frá orkusparnaðarnefnd dags. 23. des. 1983, þar sem formaður nefndarinnar skýrir frá því að nefndin hafi á fundi sínum rætt um nauðsyn þess að herða kröfur um einangrun húsa í byggingarreglugerð vegna upphitunarkostnaðar og í framhaldi af því falið einum nm., Birni Marteinssyni verkfræðingi, að gera tillögur um breytingar á byggingarreglugerðinni í þá átt. Það hafði hann gert og fór nefndin fram á að rn. breytti reglugerðinni til samræmis við þá till. Félmrn. sendi þetta bréf og þessa till. til umsagnar skipulagsstjóra ríkisins með bréfi 29. desember 1983. Skipulagsstjóri mælti með þeim breytingum sem tillagan fól í sér með lítils háttar breytingum, þó ekki efnislegum, og var það gert í samráði við ýmsa sérfróða aðila á þessu sviði.

Þær breytingar. sem nú hafa verið gerðar á þessari reglugerð miða að því að einfalda reglurnar um einangrun húsa og herða þær til samræmis við tilsvarandi reglur á Norðurlöndum. Þegar haft er í huga það verð sem nú er bæði á hitaveitum, raforku og olíu til upphitunar er hagkvæmt, bæði fyrir einstaklinga þegar til lengdar lætur og þjóðfélagsheildina, að auka kröfur um einangrun húsa, eins og nú hefur verið gert með þessari reglugerð.

Þessar reglur um einangrun kveða á um lágmarkseinangrun húsa, þannig að mönnum er frjálst að einangra hús sín betur ef þeir vilja. Samkvæmt könnun sem nýlega hefur verið gerð í Danmörku kom í ljós að mjög margir einangruðu hús sín betur eða umfram það sem krafist var, en þar eru mjög áþekkar kröfur gerðar til einangrunar húsa og nú eru gerðar hér með þessari reglugerð.

Það helsta sem breytingin felur í sér er það, að numinn er á burt sá munur sem gerður var á kröfum til heildareinangrunar húsa eftir því hvort um er að ræða hús á hitaveitusvæðum eða utan hitaveitusvæða og hertar kröfur gerðar til húsa á hitaveitusvæðum. Kveðið er nánar á um hvernig reikna skuli út leiðnitap og kólnunartölur. Hert er nokkuð á kröfum um rakavarnir og hertar eru kröfur um þéttleika húsa og vindvarnir. Samkvæmt reglugerðinni eins og hún nú er voru lágmarkskröfur um einangrun í veggjum í húsum á hitaveitusvæðum 6–7 cm af glerull eða frauðull eða frauðplasti, en verða nú 9 cm. Í þökum var lágmarksþykkt einangrunar 12.5 cm, en verður nú 22 cm. Á gólfum á fyllingu var lágmarksþykkt einangrunar á bilinu 2–9 cm, en verður nú 5–12 cm frauðplast. Samkvæmt reglugerðinni eins og hún var var yfirleitt nægjanlegt að hafa tvöfalt gler í gluggum, en skv. þessari reglugerð þurfa 40% glerflatar í húsi þrefalt gler.

Ég vil geta þess í sambandi við þessa reglugerð, að eins og hér hefur komið fram er nú á döfinni hjá félmrh. og iðnrh. sérstakt samstarf um átak í orkusparandi aðgerðum í sambandi við íbúðarhúsnæði og mun það væntanlega koma fram mjög á næstunni. Útgáfa þessarar reglugerðar verður stuðningur við þá ákvörðun sem þar verður tekin.

Ég vænti þess að allir sem hlut eiga að máli taki þessari reglugerðarsetningu vel og hún verði til að skapa öryggi í þessum málum fyrir húsbyggjendur og auki raunar hagkvæmni fyrir þjóðina í heild.