20.03.1984
Sameinað þing: 67. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3918 í B-deild Alþingistíðinda. (3347)

436. mál, snjóflóðavarnir

Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. hans upplýsingar sem hér hafa komið fram, eins og ég hef raunar þegar gert. Ég vil aðeins taka fram að ég vefengi ekki hæfni þeirra manna sem eru í þeirri nefnd sem hann hefur skipað, það eru valinkunnir menn. Mín ábending var um það að það væri sérkennilegt að ekki væri leitað til innlendra verkfróðra aðila sem hafa sérhæft sig í þessum málum og hafa mikinn vilja til að leggja þar lið og ég treysti því að það verði gert. En ég vil nefna það hér og inna hæstv. ráðh. eftir því sérstaklega hvort fyrir liggi samþykki Viðlagatryggingar Íslands við kostnaðarþátttöku í kortagerð, kortlagningu og öðrum undirbúningi til þess að unnt sé að meta snjóflóðahættu við þéttbýlisstaði og m. a. kortleggja þau snjóflóð sem þekkt eru. Ég held að mjög þýðingarmikið sé að það liggi fyrir og sé alveg ljóst ef Viðlagatrygging hefur gert samþykkt um þetta efni.