20.03.1984
Sameinað þing: 67. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3922 í B-deild Alþingistíðinda. (3352)
437. mál, undirbúningsframkvæmdir við Fljótsdalsvirkjun
Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Hv. 2. þm. Austurl. heimilast að hafa uppi þær efasemdir um Fljótdalsvirkjun sem honum sýnist, en óþarft er hjá honum að nota það orðalag að áform séu uppi meðan lög eru í gildi. Hann gæti þá fyrst farið að efast ef menn bæru fram lagabreytingar á hinu háa Alþingi. Um virkjanaröð gilda lög og það hefur enginn gert tillögur um að breyta þeim. Allt er þetta því heldur ómerkilegt snakk.
Ég tók ekkert fram um ártal á kísilmálmverksmiðju í ræðu minni úti á Loftleiðum núna fyrr í morgun og það er ekki dagskrárefni hérna heldur.
En hv. 5. þm. Austurl. undrast að hér skuli ekki vera stærri áform uppi en 13 millj. kr. til undirbúnings framkvæmda í Fljótsdal austur. Á síðasta ári bað hann um og fékk frá verkfræðideild Landsvirkjunar áætlun til undirbúnings virkjunarframkvæmda upp á 13 millj. kr. Það vill nú svo til að það er sama fjárhæðin og nú. Í lánsfjárlögum höfðu verið áformaðar 25 millj. kr. Hann hafði engar aths. fram að færa við þessa tillögugerð um 13 millj. frá verkfræðideildinni. Og þannig kom ég að því máli. Það er 17. maí sem hann fær þetta sent. Ýmisleg verk tókst honum nú að vinna á tímabilinu frá 17.–26. maí, en engar aths. voru við þetta gerðar.
Við þessa áætlun er unað í fyrra, 13 millj. kr., miðað við að virkjunin kæmist í gagnið árið 1990. Þá skyldi maður nú ætla, ef þess þarf sérstaklega núna að taka stórfé til undirbúnings útboðsgagna í ár, miðað við að hún komist í gagnið 1991, að sama þörfin hefði verið fyrir ári liðnu, miðað við að hún tæki til starfa ári fyrr en nú er áformað.
Allt er þetta á eina bók lært. Það rekur sig hvað á annars horn í þessum málflutningi, sem er afar léttvægur svo ekki sé meira sagt. Það minnir mann á Siglósíld, þar sem menn höfðu aðallega uppi gagnrýni á söluverð fyrirtækisins, þó það mætti lesa beinum og berum orðum út úr kaupleigusamningi sem fyrrv. ríkisstj. hafði gert við annað fyrirtæki á Siglufirði. Það er eins og að fletta upp í þessum mönnum sjálfum þegar maður tekur til við að svara þeim og þeirri gagnrýni sem frammi er höfð. Ef samningar verða gerðir um 50% stækkun álversins í Straumsvík, sem tæki til starfa 1986–1988 kann að vera að skynsamlegt væri að hraða framkvæmdum við Blöndu. En ef svo er þarf að leita til Alþingis um það sérstaklega. Þó er of snemmt að dæma um það nú og kann vel að vera að ekkert liggi fyrir í því máli áður en þingi lýkur og þá verður því vitanlega ekki við komið. En auðskilið er það auðvitað, að ef menn ætla að bæta við framkvæmdir einhvers staðar og þurfa að taka til þess lánsfé verður að leita til hins háa Alþingis með það.
Það er aftur svo allt annað mál að þá yrði metið sérstaklega að við værum þá að gera nýjan samning um líklega hagstæðasta stóriðjukost okkar nú og nýjan orkusölusamning sem gæti staðið undir slíkri nýrri, aukinni fjáröflun. Ella yrði það ekki lagt til.