20.03.1984
Sameinað þing: 67. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3923 í B-deild Alþingistíðinda. (3354)
437. mál, undirbúningsframkvæmdir við Fljótsdalsvirkjun
Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Það kann vel að vera að hv. 7. þm. Reykv. trúi því að Sverrir Hermannsson beri fram frv. til breyt. á lögum um breytta röð virkjana frá því sem nú er ákveðið um virkjun Blöndu og því næst Fljótsdalsvirkjunar. Það gerir áreiðanlega enginn annar en hann hér í þessum sal, ég fullyrði það. Þess vegna er honum alveg óhætt að geyma trúnaðarmálin sem hann fæst við í stjórn Landsvirkjunar hjá sjálfum sér. Þetta endemis blaður og æðibunugangur hjá þessum hv. þm. í öllum málum, sem hann hefur ekkert vit eða þekkingu til að bera í né vill hafa það, er að verða dálítið langdregið á hinu háa Alþingi.
Eins og ég segi: Þó að ég bæði um, sem sjálfsagður hlutur er, að hafa til reiðu lagafrv., heimildarfrv., ef og þegar mönnum sýnist að leggja þau fram, kemur það þessu máli ekki nokkurn skapaðan hrærandi hlut við. Þetta er bara hin gamla tilraun til þess að reyna að blekkja, eins og þessi hv. þm. stundar og þeir Alþb. menn í öllum málum hér á hinu háa Alþingi. (ÓRG: Frv. er til.) Frv. er til, það er rétt, og mér hefur aldrei dottið í hug að draga neina dul á það. Ég óska eftir því að fá að sjá slíkt frv. og fá það í hendur til þess að ég geti þá látið meta þegar þar að kemur hvort það ætti erindi og þyrfti á því að halda. Þetta eru engar nýjar fréttir.
Herra forseti. Ég hef ekki fleiri orð um þetta. En eins og ég segi: Þeim er auðvitað sjálfrátt, Alþb.-mönnum og vinum mínum af Austurlandi sérstaklega, að halda áfram að klappa þann steininn að sá dagur muni renna að Sverrir Hermannsson beri fram lagabreytingar um breytta tilhögun um virkjanaröð frá því sem nú er. Hv. 5. þm. Austurl. mætti kannske minnast þess að hann hefði aldrei komið þeim lögum á nema með aðstoð þess sem hér talar.