21.03.1984
Efri deild: 67. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3964 í B-deild Alþingistíðinda. (3382)
255. mál, almannatryggingar
Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):
Virðulegi forseti. Frv. það sem ég mæli hér fyrir er samið í framhaldi af yfirlýsingu ríkisstj. um að hún beiti sér fyrir úrbótum til handa þeim sem verst eru settir, með ákveðnum hækkunum bóta almannatrygginga. Tengist þessi ákvörðun m. a. þeim samningum sem nýlega voru gerðir á milli Alþýðusambands Íslands og Vinnuveitendasambands Íslands. Þegar hefur verið tekin afstaða til þeirra hækkana sem hægt er að framkvæma með reglugerðarbreytingu, en þær hækkanir snerta almennan grunnlífeyri elli- og örorkulífeyrisþega svo og hækkun á ráðstöfunarfé vistmanna á dvalarstofnunum aldraðra. Aðrar brtt. kalla á breytingar á lögum um almannatryggingar og fyrir því er þetta frv. hér komið fram.
Samkomulag er um það milli ríkisstj. og þeirra aðila sem áður hafa verið nefndir að bótum handa þeim hópum sem hér um ræðir verði best náð með sérstakri hækkun barnalífeyris, mæðra- og feðralauna, hækkun tekjutryggingar lífeyrisþega almannatrygginga, hækkun frítekjumarks og lækkun skerðingarprósentu, hækkun heimilisuppbótar og hækkun á ráðstöfunarfé vistmanna á dvalarstofnunum aldraðra og öryrkja.
Í frv. er fjallað um barnalífeyri og gerð till. um að óendurkræfur barnalífeyrir verði hækkaður úr 1615 kr. á mánuði í 2015 kr. eða árlegur barnalífeyrir verði 24 180 kr. Rétt er að benda á að gert er ráð fyrir að meðlagsgreiðslur fylgi þessum greiðslum svo sem verið hefur, enda þótt lög um almannatryggingar geti ekki um það, enda falla ákvarðanir um slíkar greiðslur undir barnalög nr. 9 frá 1981 en venjan hefur verið sú að þessar greiðslur héldust í hendur.
Gert er ráð fyrir því að mæðra- og feðralaun hækki þannig að með einu barni verði þau 1263 kr. á mánuði í stað 513 kr., með tveimur börnum 3309 kr. á mánuði í stað 1809 kr. og með þremur börnum 5869 kr. á mánuði í stað 3619 kr.
Hvað snertir tekjutrygginguna, þ. e. uppbót á lífeyri, er gerð till. um að tekjutryggingin hækki úr 3861 kr. á mánuði í 4728 kr., eða sem nemur 22.5%.
Með reglugerðarbreytingu, sem ég nefndi áður, er gert ráð fyrir að elli- og örorkulífeyrir, þ. e. grunnlífeyrir, hækki um 7%, þannig að heildarhækkun grunnlífeyris og tekjutryggingar verði 15.5% skv. frv. og reglugerð um hækkun bóta.
Hér er leitast við að gera hlut þeirra sem lægstar hafa tekjurnar sem bestan, þ. e. hækkun tekjutryggingar er miklu meiri en hækkun grunnlífeyris. Hvað snertir svokallað frítekjumark, þ. e. þær tekjur sem bótaþegi má hafa á ári án þess að réttur hans til tekjutryggingar skerðist, er gert ráð fyrir því að hafi bótaþegi tekjur umfram 29 084 kr. á ári skerðist uppbótin hér eftir um 45% þeirra tekna sem umfram það eru, en skv. gildandi lögum er miðað við 55% skerðingu. Skv. almannatryggingalögum er heimilt að hækka frítekjumark með reglugerð. Gildandi reglugerð gerir ráð fyrir frítekjumarki 26 440 kr. hjá einstaklingi þannig að með frv. þessu er lagt til að það hækki sem nemur 2644 kr. Hins vegar kemur þetta frítekjumark aftur til endurskoðunar, en það er yfirleitt um mitt ár.
Gert er ráð fyrir að hjónalífeyrir verði hlutfallslega óbreyttur og tekjuhugtakið verði óbreytt frá því sem verið hefur.
Enn fremur er gert ráð fyrir því að heimilisuppbót hækki um 10% og verði 1422 kr. á mánuði. Þessa uppbót fá einhleypingar sem njóta óskertrar tekjutryggingar og eru einir um heimilisrekstur án þess að njóta fjárhagslegs hagræðis af sambýli við aðra um húsnæðisaðstöðu eða fæðiskostnað.
Í frv. er gert ráð fyrir breytingu á lokamálsgrein 19. gr. gildandi almannatryggingalaga til að taka af allan vafa um tekjufjárhæðir vegna tekjutryggingar, þ. e. að þær skuli miðast við tekjur á árinu 1982 og þeim fjárhæðum skuli breytt 1. júlí árlega til samræmis við hækkanir bóta og annarra tekna milli ára. Um það hafa ekki verið ákvæði í lögum áður. Lögð var til sú breyting varðandi síðustu mgr. 51. gr. laganna að við ákvörðun vasapeninga eða réttara sagt um ráðstöfunarfé vistmanna á dvalarstofnunum aldraðra skuli heimildin miðast við 25% grunnlífeyris og tekjutryggingar, en í gildandi lögum takmarkast heimildin við lágmarkslífeyri, þ. e. eingöngu frumlífeyri.
Að lokum vil ég sérstaklega benda á útreikning Þjóðhagsstofnunar varðandi hækkanir á útgjöldum almannatrygginga er frv. þetta hefur í för með sér svo og þær reglugerðir sem ég áður vitnaði til. Á ársgrundvelli er reiknað með að hækkunin muni nema um 343 milljónum kr. eða sem nemur 280–290 millj. kr. miðað við það sem eftir er af árinu, en ætlað er að þessar bætur taki gildi frá og með 1. mars.
Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fara frekari orðum um þetta frv. en legg áherslu á að það fái skjóta afgreiðslu í þeirri þingnefnd sem fjallar um það. Vegna þess að þessar bætur eiga að gilda frá 1. mars er það nauðsyn að frv. verði afgreitt í byrjun næstu viku vegna útreikninga á bótum sem þurfa að fara inn í tölvu. Hér er um marga einstaklinga að ræða og væri mjög leitt ef þeir yrðu látnir bíða lengur. Veit ég að hv. alþm. skilja mjög vel þetta mál. Hér er eingöngu átt við þessar bætur þannig að það á ekkert að tefja afgreiðslu málsins.
Virðulegi forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn. og endurtek að ég legg áherslu á að hv. nefnd hafi samvinnu við n. í Nd. svo að málið geti fengið mjög hraða afgreiðslu í þinginu.