21.03.1984
Neðri deild: 60. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3974 í B-deild Alþingistíðinda. (3395)
210. mál, vísitala framfærslukostnaðar
Frsm. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti fjh.- og viðskn. varðandi frv. til l. um vísitölu framfærslukostnaðar og skipan Kauplagsnefndar. Nefndin hefur rætt þetta mál á fundum sínum. Á nefndarfundi kom það fram að ráðherra hagstofumálefna mun gefa yfirlýsingu hér við 2. umr. málsins.
Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt og stendur saman að nál., en einstakir nm. skrifa undir með fyrirvara.
Þeir sem skrifa undir með fyrirvara eru Svavar Gestsson, Guðmundur Einarsson og Kjartan Jóhannsson. Aðrir nm., Halldór Blöndal, Friðrik Sophusson, Þorsteinn Pálsson og Páll Pétursson, skrifa undir án fyrirvara.