21.03.1984
Neðri deild: 60. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3974 í B-deild Alþingistíðinda. (3396)

210. mál, vísitala framfærslukostnaðar

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Ég vil í upphafi þakka hv. fjh.- og viðskn. fyrir afgreiðslu á þessu máli. Við 1. umr. þess urðu nokkrar umr. í sambandi við þá neyslukönnun sem framfærsluvísitalan grundvallast á. M. a. spurði hv. 3. þm. Reykv. mig hvort ég væri reiðubúinn að beita mér fyrir því, þó að lagafyrirmæli skorti í þeim efnum, að sérstök könnun fari fram á því hvernig háttað er neyslusamsetningu þess fjórðungs fjölskyldna í landinu sem lægstar hefur tekjurnar. Auk þess vék hv. 5. þm. Vestf. að því hvort ekki væri hægt að haga svo þessari neyslukönnun að sjá mætti mun á neyslugrunninum eftir landsvæðum.

Í sambandi við þetta vildi ég láta koma fram hér strax við 2. umr. eftirfarandi: Sem ráðherra hagstofumála mun ég gera ráðstafanir til þess að næstu neyslukönnun, sem lokið verði innan eins árs frá því hún er ákveðin, verði hagað þannig, að upplýsingar fáist um neyslusamsetningu og tekjur þess fjórðungs fjölskyldna sem lægstar tekjur hefur. Jafnframt megi innan hennar greina þann mun sem er á neyslugrunninum eftir landsvæðum. Tryggt verði í þessu sambandi að niðurstöður um þetta verði eins traustar og marktækar og heildarniðurstöður fyrir allar fjölskyldur sem könnunin tekur til.

Ég vænti þess að þessi mín yfirlýsing geti orðið til þess að svara því sem hér var spurst fyrir um við 1. umr. þessa máls, og að hún ásamt því sem fram hefur komið hjá hv. frsm. fjh.- og viðskn., hv. 2. þm. Norðurl. v., verði til þess að þetta frv. geti hlotið afgreiðslu á hv. Alþingi í dag.