21.03.1984
Neðri deild: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3988 í B-deild Alþingistíðinda. (3416)
Umræður utan dagskrár
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Ég skal reyna að eyða ekki löngum, dýrmætum tíma deildar utan dagskrár. En ég hef kvatt mér hljóðs til þess að gera að umræðuefni í sem stystu máli þær umr. og þau skrif sem átt hafa sér stað undanfarið vegna ferskfiskmatsins. Mörg orð hafa þar verið sögð og harðlega gagnrýnt að mistök hafi átt sér stað að því er varðar Ferskfiskmatið og forstöðumann þess. Ég skal ekki gera það að umræðuefni, vil aðeins rifja upp að við fiskverðsákvörðun var um það rætt, það ég best veit, að nýjar fiskmatsreglur yrðu upp teknar og fiskverð grundvallað á þeim. Frá því var horfið og um það varð samkomulag að hinar nýju reglur skyldu til reynslu teknar upp við hlið hinna fyrri og það mundi gilda á yfirstandandi verðtímabili án þess að það yrði látið gilda sem greiðsluviðmiðun.
Nú hefur það komið upp, að ég held, að einhvers staðar hefur verið greitt skv. hinum nýju reglum sem að mati sjómanna skerða verulega þeirra hlut. Ég tel því nauðsynlegt að fá um það ótvíræða yfirlýsingu hæstv. sjútvrh. að séð verði til þess að samkomulagið, sem gert var við fiskverðsákvörðun í febrúar s. l., verði í gildi, en einstökum aðilum innan Ferskfiskmatsins, hvort sem um er að ræða forstöðumann þeirrar stofnunar eða aðra, líðist ekki að beita þessum nýju reglum sem þýða í raun og veru að mati sjómanna stórkostlega tekjurýrnun þeim til handa.
Mín ósk er því sú að fá um það ótvíræða yfirlýsingu hæstv. ráðh. að séð verði til þess að það samkomulag sem gert var verði í fullu gildi þann tíma sem um var talað. Ég hygg að það sé affarasælast fyrir alla aðila að það megi treysta því að samkomulag, sem gert er með þessum hætti, standi. Mér sýnist að á því hafi orðið misbrestur. Koma verður í veg fyrir að slíkt gerist. Ég vænti þess að hæstv. ráðh. geti gefið þá yfirlýsingu hér að til þess verði séð að samkomulag um þessi atriði, sem gert var, standi.