21.03.1984
Neðri deild: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3990 í B-deild Alþingistíðinda. (3418)

Umræður utan dagskrár

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Reglugerð um ferskfiskmat hefur ekki verið breytt. Annaðhvort er hér um það að ræða að menn tala um það undir rós að ekki eigi að fara eftir reglugerðinni eða að þeir undirstrika að ekki hafi verið farið eftir reglugerðinni áður. Aðrir valkostir eru ekki til í þessu máli.

Ég vil undirstrika það að ef Ferskfiskmatið hefur ekki farið eftir reglugerð á undanförnum mánuðum er verið að brjóta lög. Það liggur alveg ljóst fyrir og ég vil benda á það í þessu sambandi að það kemur úr hörðustu átt ef það á sér stað þegar aflaleysi er við landið að þá telji menn ekki nauðsynlegt að framfylgja reglugerð um ferskfiskmat. Hvaða afleiðingar getur það haft fyrir afkomu þjóðarinnar ef við gætum ekki að grundvallaratriðunum varðandi veiðarnar, að hráefnið komi óskemmt að landi? Mér er það óskiljanlegt að hagsmunaaðilar þeir sem hafa látið í það skína að þeir ætli að láta sigla skipunum í land hafi íslenska sjómenn á bak við sig í þessu máli. Ég trúi því ekki. Ég trúi því ekki að íslenskir sjómenn leggi til að matið verði ekki framkvæmt með eðlilegum hætti á ferskum fiski, eins og reglugerð segir fyrir um. Eru menn að tala um það að dauðblóðgaður fiskur eigi að fara í 1. flokk? Hvað er á dagskrá? Hvers vegna er talað undir rós um þetta mál? Hvers vegna þora menn ekki að segja það hreint út hér, á að fara eftir reglugerðinni eða er búið að gera það að samningsatriði að koma með skemmdan fisk að landi og borga fullt fyrir hann? Ég óska eftir því að fá skýlaus svör.

Það er ástæðulaust, herra forseti, að tala lengi um þetta mál. En málið er stórt, ég vona að þingheimur geri sér grein fyrir því, og mín afstaða er sú að það eigi skilyrðislaust að fara eftir reglugerðinni, sérstaklega í árferði þegar lítið veiðist eins og nú.