21.03.1984
Neðri deild: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3991 í B-deild Alþingistíðinda. (3420)

Umræður utan dagskrár

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir þá yfirlýsingu sem hann gaf. Ég tel að hún sé alveg ótvíræð um að staðið verði við það samkomulag sem sjómannasamtökin féllust á í febrúar þar til þessu vertíðartímabili lýkur og þá verði annað tekið upp, að ég vona, í samráði við sjómenn. Ég tek undir það sem hv. síðasti ræðumaður sagði, ég hef enga ástæðu til þess að ætla að sjómenn vilji ekki koma með sem bestan afla að landi. Sjómannasamtökin hafa hins vegar krafist þess að samræmt mat væri framkvæmt, ekki að geðþóttaákvörðun einstaklinga á hinum viðkomandi stöðum heldur að samræmd verði reglugerð um hvernig matið ætti að fara fram þannig að allir byggju við sama hlut, en það er það sem hefur á skort.

Ég met það svo að bréf það sem Framleiðslueftirlitið hefur sent út í morgun til matsmanna sé orðað með þeim hætti að skilja megi að aðrar reglur hafi gilt það sem af er marsmánuði en í febrúar því beðið er um það sérstaklega að tekin verði upp sömu vinnubrögð við mat og voru við það í febrúar, þar til annað verður ákveðið. Mér sýnist að þarna sé einmitt komin viðurkenningin á því að forstöðumaður Framleiðslueftirlitsins hafi þarna gengið feti lengra en honum var heimilt, þarna hafi ekki verið farið eftir gildandi reglugerð um matið. Því ítreka ég þakkir mínar til hæstv. ráðh. fyrir það að nú hefur það verið stöðvað og ég vænti þess að því verði fylgt eftir að einstökum embættismönnum í kerfinu líðist ekki að ganga fram hjá gildandi reglum og haga sínum vinnubrögðum að geðþótta eftir því sem þeim sýnist hverju sinni.

Ég fagna því að yfirlýsing af þessu tagi er komin fram. Ég taldi nauðsynlegt og öllum til góðs að yfirlýsing af þessu tagi, væri hún fáanleg, kæmi fram á Alþingi svo að sjómannasamtökunum, sjómönnum almennt og öllum þeim sem hlut eiga að máli sé ljóst að hægt er að treysta því að yfirvöld sem þarna hafa umsjón, þ. e. hæstv. sjútvrh. og rn., muni fylgja því fast eftir að við samkomulagið verði staðið þó að út af því hafi verið brugðið í einhverjum tilfellum eins og mér sýnist vera ljóst.