21.03.1984
Neðri deild: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3998 í B-deild Alþingistíðinda. (3425)

Um þingsköp

Forseti (Ingvar Gíslason):

Þegar fundinum var frestað fyrir rúmum klukkutíma var verið að ræða annað dagskrármálið, tekjuskatt og eignarskatt. Nú hefur komið fram ósk um það frá hæstv. fjmrh. að umr. um það mál verði frestað þar til síðar á fundinum vegna þess að hæstv. ráðh. þarf að gegna sérstökum skyldum og getur ekki verið hér viðstaddur. Ég hygg að hv. 7. þm. Reykv. hafi verið í ræðustól þegar fundi var frestað.

Hins vegar hefur hv. 7. landsk. þm. óskað eftir að fá tækifæri til þess að koma að sínum athugasemdum við það mál nú vegna þess að hv. þm. þarf að vera annars staðar í kvöld þegar málið verður tekið fyrir að nýju.