21.03.1984
Neðri deild: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4051 í B-deild Alþingistíðinda. (3450)
129. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Hv. 3. landsk. þm. fullyrðir að fjmrh. hafi lýst yfir að hann muni ekki standa að skattahækkunum. Margir hv. þm. hafa haldið því fram að ég leggi til skattahækkun skv. þskj. 465. Þessar sífelldu endurtekningar af þessu tagi hljóta að vera frambornar í von um að fólk fari að trúa þeim og með því takist að skapa óróa í landinu. Því finnst mér mætavel trúandi á Alþb., það er þeirra iðja og hefur verið um langan tíma, en ég skil ekki í hvaða tilgangi þm. nýrri þingflokkanna taka undir slíkan málflutning. Það er engin skylda, bara vegna þess að þeir tilheyra stjórnarandstöðu, að fylgja slíkum málflutningi og þeim lítið til sóma.
Stefna ríkisstj. hefur ekki breyst frá því að frv. á þskj. 164 var lagt fram, en þar segir í upphafi aths. við frv., eins og þm. geta lesið, með leyfi forseta:
„Frv. miðast við að skattbyrði tekjuskatts og sjúkratryggingagjalds verði í heild hin sama af tekjum greiðsluárs á árinu 1984 og á árinu 1983.“ Framhaldið geta svo virðulegir þm. lesið.
Á undanförnum árum hefur aðlögun skattstiga og annarra fjárhæða í tekjuskattslögum að breyttu raungildi peninga verið framkvæmd með því að hækka skattstigann í hlutfalli við tekjubreytingar milli tekjuára: Skatthlutföll hafa hins vegar ekki breyst milli ára. Þegar verðbólga snögglækkaði eftir valdatöku núv. ríkisstj. var sýnt að grípa þyrfti til sérstakra aðgerða. Ef venjulegum aðferðum hefði verið fylgt og látið duga að hækka skattvísitölu í hlutfalli við hækkun tekna á milli tekjuára hefði það leitt til stóraukinnar skattbyrði gjaldenda á árinu 1984.
Stefna ríkisstj. hefur því verið sú að skattbyrði beinna skatta til ríkissjóðs skyldi vera óbreytt sem hlutfall af tekjum greiðsluárs milli áranna 1983 og 1984. Til þess að ná þessu marki þurfti m. a. að lækka skatthlutföll, lengja skattþrep umfram skattvísitöluhækkun og hækka persónuafslátt nokkuð umfram skattvísitölu. Í samræmi við þá stefnu lagði ég sem fjmrh. fram frv. um tekju- og eignarskatt fyrir s. l. áramót. Hefði verið látið duga að hækka eldra skattkerfi á hefðbundinn hátt með beitingu skattvísitölu um 54% hefði það leitt til stóraukinnar skattbyrði á næsta ári og hefði heildarálagning orðið nærfellt 600 millj. kr. hærri en miðað var við í fyrrnefndu frv.
Upphaflegt frv. ríkisstj. tók mið af þjóðhagsspá þar sem gert var ráð fyrir því að meðaltekjur hvers manns hækkuðu um 20% milli ára 1983 og 1984. Í samræmi við fyrrgreinda stefnu var frv. ríkisstj. því við það miðað að krónutala álagðra skatta hækkaði um sama hlutfall. Í jan. s. l. var spá um tekjuþróun milli áranna 1983 og 1984 endurskoðuð í framhaldi af upplýsingum um minnkandi fiskstofna. Var nú áætlað að meðaltekjur hækkuðu um 16.5% á hvern mann í stað 20% áður. Í samræmi við stefnu ríkisstj. um óbreytta skattbyrði milli ára sem hlutfall af tekjum greiðsluárs lagði meiri hl. fjh.- og viðskn. Nd. því til að skattstigar yrðu lækkaðir frá því sem var í frv. þannig að krónutöluhækkun skatta hvers gjaldanda yrði að meðaltali 16.5% eða hin sama og tekjuhækkanirnar.
Eftir nýgerða kjarasamninga var áætlun um tekjuþróun milli áranna 1983 og 1984 enn endurskoðuð. Var hún nú áætluð nánast hin sama og var í upphaflegri tekjuspá þjóðhagsáætlunar eða 19.5% á mann. Í samræmi við margnefnda stefnu um óbreytta skattbyrði lagði fjh.- og viðskn. Ed. því til að frv. yrði aftur breytt þannig að krónutala skatta hækkaði um 19.5% milli ára eins og tekjurnar. Samþykkt þeirra brtt. sem fram koma á þskj. 465 tryggja það að greiðslubyrði milli ára haldist óbreytt. Þessa staðreynd verða virðulegir stjórnarandstæðingar að viðurkenna hvort sem þeim er það leitt eða ljúft.
Ég vil að gefnu tilefni svara hv. 3. þm. Reykv. vegna margendurtekinna ummæla í báðum virðulegum deildum Alþingis um niðurfellingu gjalda vegna Flugleiða. Af nótu sem ég hef hér frá gjaldadeild fjmrn. og ætla með leyfi forseta að lesa upp má kannske ráða hvað hendur fjmrh. eru bundnar af samningum sem fyrirrennari minn í starfi hafði gert og ég er hér með ljósrit af, áamt þeirri undirskrift sem þarf til þess að þeir séu löglegir. Nótan hljóðar svo:
„Í fjárlögum fyrir árið 1982 er ákvæði í 6. gr. sem veitir fjmrh. heimild til sjálfskuldarábyrgðar til handa Flugleiðum er nemur 1.6 millj. Bandaríkjadala.“ Enn fremur segir í sambandi við uppgjör lánsins að lendingargjöld, leigugjöld vegna aðstöðu á Keflavíkurflugvelli, svo og tekju- og eignarskatt, launaskatt og önnur gjöld beri félaginu að greiða á réttum gjalddögum. En þann hluta þeirra gjalda sem rekja má til Norður-Atlantshafsflugs félagsins fær félagið endurgreiddan við skuldauppgjör.
Þá segir enn fremur að í fjárlagafrv. fyrir árið 1983 skuli till. gerð um hlutdeild ríkissjóðs í uppgjöri þessa láns með hliðsjón af rekstrarafkomu fyrirtækisins á ofangreindri flugleið umrætt tímabil, að teknu tilliti til þeirrar endurgreiðslu sem um ræðir í 2. mgr. og miðað við þær tekjur sem telja má að ríkissjóður hafi haft undanfarin ár af flugi á umræddri flugleið. Ákvæði þessi eru tvíþætt. Annars vegar skulu Flugleiðir fá öll gjöld tengd nefndu flugi frádregin frá lántöku. Hins vegar ef rekstrarafkoma er neikvæð skal hafa hliðsjón af því í uppgjöri lánsins.
Hjálagt er bréf frá Ríkisendurskoðun, dags. 7. nóv. 1983, þar sem segir að tap félagsins á umræddu tímabili nemi 4.5 millj. Bandaríkjadala á starfsemi félagsins á Norður-Atlantshafsflugleið. Miðað við framansagt er ljóst að þau skilyrði sem kveðið er á um í heimildargrein um að ríkissjóður taki á sig umrætt lán að fjárhæð 1.6 millj. Bandaríkjadala vegna rekstrartímabils 1. okt. 1981 til 30. sept. 1982 eru fyrir hendi og ætti því að gjaldfæra lánið miðað við framkvæmd þess máls árið 1982 sem framlag ríkissjóðs á árinu 1983. Í fjárlögum 1983 var gert ráð fyrir framlagi að fjárhæð 33 millj. kr. en greiðslan nam 47 millj. kr. og hefur ríkissjóður greitt þá upphæð.
Í fjárlögum 1983 er samsvarandi heimildargrein fyrir lántöku að fjárhæð 1.9 millj. Bandaríkjadala vegna rekstrartímabilsins 1. okt. 1982 til 30. sept. 1983. Lán þetta fellur í gjalddaga á árinu 1984 í þrennu lagi, 1. mars, 1. júní og 1. sept., og má ætla að greiðsluþörfin sé um 62 millj. kr. Í fjárlögum árið 1984 er ekki gert ráð fyrir neinum fjármunum til að mæta þessum greiðslum.
Haft var samband við Flugleiðir hf. og af þeirra hálfu var upplýst að ekki lægi fyrir endanlegt rekstraruppgjör fyrir árið 1983 fyrr en í apríl/maí n. k. en fram kom að talið er að rekstrarhalli mundi verða á því ári. Þá var enn fremur upplýst, og þá vitna ég í hjálagt bréf og samning, að fyrirtækið mundi ekki geta borgað af lánum og því ljóst að til greiðslu kæmi hjá ríkissjóði nú 1. mars vegna þessa máls.
Við áritun framangreinds skuldabréfs hefur viðkomandi fjmrh. notað heimildir í 6. gr. fjárlaga með þeim ákvæðum sem þar um getur og árituð eru á skuldabréfið og því ljóst að ef þau skilyrði eru fyrir hendi, um afkomu og fleira er þetta varðar, verður ríkissjóður að standa skil á greiðslu vegna þessarar sjálfsskuldarábyrgðar. Síðan kemur hér bréf frá endurskoðuninni sem getur um tap upp rúmlega á 7.9 millj. dollara og af því megi rekja tæplega 4.6 millj. dollara til starfsemi félagsins á Norður-Atlantshafsleiðinni.
Þetta er sá arfur sem gjaldkeri Alþb. í ríkisstj., hæstv. fyrrv. fjmrh., skilur eftir handa núv. ríkisstj. Vil ég nota þetta sem svar við ádeilum hv. 3. þm. Reykv., formanns Alþb., fyrirliða í þeirri ríkisstj. sem skildi við eins og alþjóð veit og nú tekur sér það í munn að deila á að hluti af þeirri fyrirgreiðslu sem Flugleiðir hafa notið hingað til skuli vera veittur í ár líka og af sömu ástæðum.