22.03.1984
Sameinað þing: 69. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4057 í B-deild Alþingistíðinda. (3456)
2. mál, könnun á raforkuverði á Íslandi
Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Hv. 5. landsk. þm. hefur borið fram brtt. við tillgr., sem er til bóta og að vísu alveg nauðsynleg að mínu áliti, að kveðið sé á um að kostnaður við störf slíkrar nefndar greiðist úr ríkissjóði. Og þess vegna fylgir þessi brtt., ef svo skyldi á standa að meirihlutavilji sé fyrir samþykkt till. þessarar. Ég bar fram á síðasta fundi, þar sem þetta mál var til umr., till. til rökstuddrar dagskrár. Ýmsir fundu mjög að þeirri málsmeðferð þar sem till. mín var skriflega flutt, og breytti þar engu um þótt afbrigði væru fúslega veitt. Ég lýsti því þá yfir að mér væri sú málsmeðferð ekki föst í hendi og gæti þess vegna hugsað mér að kalla aftur till. mína til rökstuddrar dagskrár, sem ég geri hér með, hæstv. forseti. Á hinn bóginn vil ég greiða atkv. gegn till. þessari og legg til að svo geri fleiri, með vísan til þeirra raka sem ég flutti fyrir dagskrártillögu minni á síðasta fundi. Sem sagt, að athugun þessi væri í höndum nefndar á vegum rn. og lægju enda fyrir margháttaðar upplýsingar um orkuverðsmyndunina.