22.03.1984
Neðri deild: 62. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4079 í B-deild Alþingistíðinda. (3467)
129. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Þegar framtalsfrestur átti að renna út í febrúarmánuði ákvað hæstv. fjmrh. að framlengja framtalsfrest og tilkynnti þjóðinni að sú framlenging væri byggð á þeim rökum að almenningur í landinu ætti kröfu á að fá að vita hver skattstiginn yrði þegar framtalsfresturinn rynni út. Nú hefur það gerst í Ed. að ríkisstjórnarmeirihlutinn hefur ákveðið að svíkja þau fyrirheit sem fjmrh. gaf þjóðinni á þessum tíma og hækka skattstigann löngu eftir að framtalsfrestur er ,runninn út. Í þeim brtt. sem hér er verið að greiða atkv. um er lagt til að færa skattstigann á ný í það horf sem hann var þegar almenningur í landinu skilaði sínum skattframtölum og tryggja þannig að þingið og stjórnvöld stæðu við þau fyrirheit sem fólkinu voru gefin. Verði þessar till. hins vegar felldar er ljóst að ríkisstj. hefur ákveðið skattahækkun. Ólafur Jóhannesson hefur lýst því eindregið yfir að hér sé á ferðinni skattahækkun, sama hefur gert hv. þm. Ellert B. Schram, sama hefur gert Ásmundur Stefánsson og Alþýðusamband Íslands, sama hefur gert Kristján Thorlacius og BSRB. Það er því alveg ljóst og um það verður ekki deilt að um það er víðtæk samstaða í þjóðfélaginu að hér er á ferðinni skattahækkun og skoðun þm. er sú að það eigi að standa við gefin fyrirheit og koma í veg fyrir að þessi skattahækkun nái fram að ganga og samþykkja þær brtt. sem hér er verið að greiða atkv. um, og þess vegna segi ég já.