22.03.1984
Neðri deild: 62. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4080 í B-deild Alþingistíðinda. (3470)

196. mál, lausaskuldir bænda

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Hér er á ferðinni mikið réttlætismál fyrir launafólk í þessu landi, einkum húsbyggjendur, sem brýnt er að koma til móts við einmitt í dag. Í dag gerðist það að veðdeild Landsbanka Íslands var lokað fyrir húsbyggjendum vegna fjárskorts. Það er niðurstaðan eftir margítrekaðar yfirlýsingar hæstv. félmrh. um að þar sé allt í góðu lagi og það verði tryggt að fjármunir verði til staðar. Þessi endemis stjórn á þessum málum hvetur til þess að komið verði til móts við þetta fólk með öðrum hætti og því segi ég já við þessari till.