22.03.1984
Neðri deild: 63. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4083 í B-deild Alþingistíðinda. (3475)

196. mál, lausaskuldir bænda

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Virðulegur 7. þm. Reykv. beindi til mín spurningum. Ég hélt að ég hefði svarað fyrri spurningunni í gærkvöld, eins og kom fram hjá honum, en þar upplýsti ég að viðsk.- og bankamálaráðherra og landbrh. ættu fundi í dag, eftir þeim upplýsingum sem ég hafði þá og ég vona að þær hafi verið réttar, með Seðlabankastjórum til að ræða um fjármögnun á því skuldbreytingarláni bænda sem hér er á dagskrá. Þetta er sama svarið og ég gaf í gærkvöld. En það er rangminni hjá hv. 7. þm. Reykv. að ég hafi átt fund með seðlabankastjórum um þetta mál.

Önnur spurning var: verður tekið erlent lán? Ég geri ekki ráð fyrir því. Þess vegna er nú verið að ræða við Seðlabankann um að reyna að leysa þetta vandamál á innlendum markaði. Það er stefna ríkisstj. að fara ekki í prósentum yfir 60% í erlendum lánum miðað við þjóðarframleiðslu þegar þessi ríkisstj. tók við. Erlent lán verður því ekki tekið ef það þýðir að farið verði yfir 60% af þjóðarframleiðslu. Eins og hv. 7. þm. Reykv. veit er sú prósenta nú um 59%.