01.11.1983
Sameinað þing: 11. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 481 í B-deild Alþingistíðinda. (349)
385. mál, gróðurvernd
Fyrirspyrjandi (Steingrímur J. Sigfússon):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. landbrh. fyrir svörin. Það er ánægjulegt að heyra að gróðurverndarnefndir hafa nú alls staðar verið kosnar og starfa sjálfsagt með miklum sóma, ekki er ég að draga það í efa. En því miður fannst mér nokkuð skorta á að svörin væru jafnskýr og ég hefði kosið hvað varðaði nákvæmlega stöðu mála um gróðurkortlagninguna og ekki heyrði ég í svari ráðh. hvenær menn hefðu áform um að ljúka þeirri vinnu. Ég veit að það mun rétt vera að grunnkortlagning landsins er ekki sem skyldi. Það hafa verið gerðar nokkrar atrennur að því verkefni, en skort hefur á samræmingu og alllangt er í land, að mér skilst. Það er auðvitað nauðsynlegt að ljúka þeirri vinnu sem fyrst svo koma megi þessari gróðurkortlagningu á endanlegt form og á framfæri til almennings. En það er þó engu að síður mikilvægt að þær upplýsingar, sem þegar liggja fyrir, verði nýttar. Samkv. því, sem hér var sagt, að kortlagningu sé lokið af miðhálendinu og verulegum hluta annars hálendis, sem þýðir m.ö.o. að flestallar afréttir landsmanna eru þegar kortlagðar, hefur þar með skapast grundvöllur til að nýta þær upplýsingar til að skipuleggja betur afnot af þessu gróðurlendi en hingað til hefur verið.
Það er ekkert leyndarmál að heilar afréttir og jafnvel heilir landshlutar eru fullnýttir — og ofnýttir á köflum. Þessu verður að breyta og það sem fyrst. Það er mín skoðun, að þegar eigi að hefjast handa um skipulagningu á þessum sviðum á grundvelli þeirra upplýsinga sem nú liggja fyrir. Og þó að ekki séu til grunnkort til að gefa þetta út í endanlegu formi til almennra nota, þá þykist ég vita að sérfræðingar í þessum efnum séu það læsir á þau gögn sem fyrir liggja að þeir geti nýtt sér þau til slíkrar vinnu.
Ég skora á hæstv. landbrh. að fylgja þessu fast eftir. Gaman væri að fá að heyra af því hér á Alþingi, þó að síðar verði, að hann hafi uppi um þetta einhver áform. Svo þakka ég svörin.