26.03.1984
Efri deild: 68. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4095 í B-deild Alþingistíðinda. (3493)

255. mál, almannatryggingar

Karl Steinar Guðnason:

Virðulegi forseti. Ég fagna því að þetta frv. er fram komið og vænti þess að það fái fljóta afgreiðslu. En ástæðan fyrir því að ég kveð mér nú hljóðs er undrun mín á málflutningi hv. 11. þm. Reykv. sem mótmælir því hvernig þetta er til komið, hvernig einstæðar mæður fái hærri bætur, hvernig aðrir, sem þetta frv. gerir ráð fyrir að fái auknar bætur, fái hærri tekjur.

Það var mikil fýla í þessum ummælum, ólund yfir því að verkalýðshreyfingin skyldi dirfast að taka að sér að semja um þessa þætti til bóta fyrir þær konur sem eiga um sárt að binda. Hvað á svona málflutningur að þýða? Ég er viss um að verkafólk skilur hvað hér er á ferðinni, verkakonur gera sér grein fyrir því að hér er um að ræða bætur sem skipta þær miklu máli. Ég hygg að aðrir í verkalýðshreyfingunni telji sjálfsagt að semja um þessa þætti eins og aðra. Þetta eru kjör fólks sem verið er að semja um.

Ég vil benda á að allar helstu úrbætur í almannatryggingum á umliðnum áratugum hafa átt sér stað fyrir þrýsting verkalýðshreyfingarinnar. Allar helstu félagslegu umbætur sem hafa komið til handa þeim sem verr eru settir í þjóðfélaginu hafa komið til vegna samninga verkalýðshreyfingarinnar, vegna krafna verkafólksins í landinu, vegna þess að fólkið í verkalýðshreyfingunni hefur talið það höfuðatriði að fá betri kjör en ekki það hvernig þau eru fengin. Saga verkalýðshreyfingarinnar sýnir að hún álítur fleira kjör en krónu.

Ég furða mig á því ef hér finnast raddir fólks sem mótmælir því að þessar aðferðir séu notaðar til að bæta úr fyrir þeim sem illa eru staddir. Verkalýðshreyfingunni er það ljóst að gera þarf betur í þessum málum. Verkalýðshreyfingunni er ljóst — og þá einkum eftir þá kjarakönnun sem fór fram nú nýlega — að þar sem borið er niður varðandi bæturnar eru aðstæðurnar hvað verstar. Það er þess vegna sem verkalýðshreyfingin taldi rétt að beina kröftum sínum í það að fá þessar bætur hækkaðar. Þetta frv. er árangurinn af þeim kröfum. Fólkið sem nýtur þessara bóta finnur og skilur hvað verkalýðshreyfingin var að gera þó að einhverjir hér inni skilji það ekki.