26.03.1984
Efri deild: 68. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4096 í B-deild Alþingistíðinda. (3495)
255. mál, almannatryggingar
Stefán Benediktsson:
Virðulegi forseti. Ég skal reyna að verða stuttorður. Ég gat bara ekki orða bundist út af ummælum hv. 6. landsk. þm. vegna orða hv. 11. þm. Reykv., því að það var ekki nóg með að hann misskildi það sem hún var að segja, heldur sneri hann svo gersamlega út úr því að maður fer að efast um að menn séu hér virkilega með opin eyrun. Þegar maður síðan hlustar á áframhaldandi röksemdafærslu hv. þm. áttar maður sig á því að þessi málflutningur byggist náttúrlega ekki hvað síst á því, að hv. 6. landsk. þm. er í störfum sínum fyrir verkalýðshreyfinguna orðinn alveg ruglaður í því í raun og veru í hverra umboði hann er hvar og hvenær. Sem forustumanns í verkalýðshreyfingu er það hans hlutverk að semja um laun fyrir umbjóðendur sína. Þau laun eru síðan að sjálfsögðu sá kjaragrundvöllur sem þetta fólk þarf að búa við. Sem þm. er það hans hlutverk að semja lög sem lúta að möguleikum þessa fólks sem einstaklinga.
Það fer ekkert á milli mála að þær úrbætur sem hér voru réttar fram af hálfu ríkisins í hendur atvinnuviðsemjendum á vinnumarkaði, bæði atvinnurekendum og launþegasamtökum, eru nauðsynlegur grundvöllur fyrir verkalýðsfélögin til að réttlæta siðferðilega þá samninga sem þau höfðu náð. Þetta var í sjálfu sér ekki ávinningur sem verkalýðshreyfingin sem slík náði fram, heldur var þetta tilboð sem kom fram af hálfu ríkisstj. til að greiða fyrir samningum og gera verkalýðsforingjunum mögulegt að réttlæta þá í augum sinna umbjóðenda. Og það að fagna því að fá svona dulu til að breiða yfir þá stöðu sem launþegar eru í í dag gerir manni ljóst að umbjóðendur verkalýðsins eru gersamlega búnir að tapa sjónum af því hvert þeirra hlutverk er. Þetta leiðir hugann að öðru máli, sem ég veit ekki hvort við fjöllum hér um í dag, en a. m. k. á næstunni. Það er frv. um stéttarfélög og vinnudeilur, þar sem einmitt er verið að fara fram á það að einstaklingar og hópar þeirra öðlist rétt til að semja um sín kjör án beinnar íhlutunar forustu verkalýðsstéttarinnar. Ég held að álíka uppákomur og þessi hérna sanni hverjum hugsandi manni nauðsyn þess að einstaklingar eigi þennan rétt og geti notað hann þegar þeim þykir henta.