26.03.1984
Efri deild: 69. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4103 í B-deild Alþingistíðinda. (3507)
252. mál, fjarskipti
Helgi Seljan:
Virðulegi forseti. Ég átti sæti í umræddri endurskoðunarnefnd og það er mála sannast, sem hv. síðasti ræðumaður kom inn á, að endurskoðun þarf sífellt að vera í gangi varðandi þessi lög, því að óvíða mun um örari breytingar að ræða. Ég vil hins vegar í framhaldi af þessu nefndarstarfi varpa fram þeirri spurningu hér hversu unnið skuli að svo tæknilegum hlutum sem hér er um að ræða og hverjir skuli að þeim vinna.
Við höfum að vísu í þessari nefnd ágæta ráðgjöf, ég dreg ekkert úr því. En ég dreg örlítið í efa, og mæli þar af persónulegri reynslu, skynsamlega tilhögun þess að láta þá fást við slíka endurskoðun sem verða að styðjast við tæpt brjóstvitið eitt í þessum efnum, svo mjög sem hér reynir á hina tæknilegu hlið þessara mála. Vitanlega geta menn kynnt sér og eiga að kynna sér og setja sig inn í þessi mál, þó leikmenn séu, svo sem t. d. hv. síðasti ræðumaður gerði og við urðum vitni að á fundum nefndarinnar. En ég hygg að þegar leikmenn fást við endurskoðun tæknilegra atriða eins og þessara muni það frekar heyra til undantekninga en reglunnar að menn lesi niður í kjölinn um þau atriði sem tæknilegs eðlis eru og verða ekki í löggjöf sett með góðu móti nema tæknimenn komi þar að. Þar með er ég ekkert að draga úr því að mörg þeirra atriða sem við fjölluðum um, mörg þeirra álitamála sem upp koma voru þess eðlis að brjóstvitið kom sér líka vel.
Auðvitað var það einkaréttur ríkisins í heild sem þarna var mest um rætt. Ég neita því ekki að ég lét það koma fram í nefndinni að hjá mér væri um mikla fastheldni að ræða á þann rétt. Ég tel það öllum fyrir bestu. Ég tel það mönnum sérstaklega fyrir bestu til að tryggja þjónustu og jafna aðstöðu þegnanna og álít að menn hafi gengið fyllilega nógu langt með þeirri undanþágu sem gerð er varðandi notendabúnaðinn. Við vitum það öll að mismunun viðgengst hér enn í fjarskiptamálum, bæði í aðstöðu manna og ekki síður í kostnaði, þrátt fyrir þá áfanga sem náðst hafa til að jafna þann mikla mismun sem viðgengist hefur allt of lengi. Þessi lög snerta þetta að vísu ekki en þau tengjast því óneitanlega hverjir með þessi mál skuli fara, hvort það skuli vera ríkið og Póst- og símamálastofnunin fyrir þess hönd eða hvort þar skuli einkaaðilar koma til í enn frekari mæli og gróðasjónarmiðin þá verða alls ráðandi eins og alls staðar þar sem þeim er sleppt lausum.
Að sjálfsögðu var annað meginverkefni okkar einnig það að færa þetta til nútímahorfs eins og hv. síðasti ræðumaður kom inn á. Ég heyrði því miður ekki framsögu hæstv. ráðh. en efa ekki að hann hafi gert málinu í heild góð og glögg skil og engin ástæða til endurtekninga þar á.
Varðandi 3. gr. og notendabúnaðinn lýsi ég því yfir að ég var út af fyrir sig ekkert sérstaklega hrifinn af því að þessi undanþága væri veitt varðandi notendabúnaðinn. En ég féllst á það. Þetta var staðreynd, sem var þegar orðin skv. reglugerð sem út hafði verið gefin, og menn voru þegar farnir að framkvæma þetta á þann máta sem gerist. Það var lítið annað að gera en að viðurkenna það í lögum. En málið sjálft er þó þannig að ég er ekkert ýkja hrifinn af því. Ég óttast að það kunni að verða veitt lakari þjónusta í þessum efnum, enda þótti nefndinni sérstök ástæða til að setja inn í 3. gr. orðrétt með leyfi hæstv. forseta:
„Hver sá sem flytur inn eða smíðar notendabúnað, er tengja á við fjarskiptakerfi ríkisins, skal fyrir fram fá yfirlýsingu Póst- og símamálastofnunarinnar um að hver og ein tegund eða gerð tegundar notendabúnaðar eða hlutar hans uppfylli þær tæknikröfur sem gilda um notendabúnað á hverjum tíma.“
Og síðar segir svo aftur um það:
„Innflytjandi eða framleiðandi skal ætíð sjá til þess, að fyrir hendi séu varahlutir og viðhaldsþjónusta“ og: „ ... þeir sem annast uppsetningu eða tengingu notendabúnaðar hafa til þess tilskilinn réttindi sem nánar skulu tilgreind í reglugerð.“
Við reyndum því að setja þarna undir þann leka að þetta frjálsræði, sem menn tala svo mikið um sem allsherjarlausn mála en ég er ekki eins viss um að leiði til þess, hefði það ekki í för með sér að neytendur yrðu þegar fram liðu stundir að búa við lakari þjónustu og verri kost en verið hefur.
Ég tek svo undir það með hv. síðasta ræðumanni að vel þarf að fylgjast með og gæta þess að við stöðnum ekki á þessari leið og í þessum málum, þó að oft sé rétt að fara með fullri gát og kynna sér allt sem best áður en til breytinga er gengið, en ekki breyta aðeins breytinganna vegna.