01.11.1983
Sameinað þing: 11. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 482 í B-deild Alþingistíðinda. (351)

389. mál, málefni El Salvador á vettvangi Sameinuðu þjóðanna

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Svar við 1. lið þessarar fsp.: Umrædd nefnd var skipuð hinn 15. júlí 1981 í samræmi við samþykkt Alþingis og þál. um geðheilbrigðismál hinn 7. maí 1981. Í nefndina voru skipuð Ingvar Kristjánsson læknir, formaður, Högni Óskarsson læknir, ritari, Hulda Guðmundsdóttir félagsráðgjafi, Margrét Hróbjartsdóttir hjúkrunarfræðingur, Oddur Bjarnason læknir og Sigríður Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur.

Upphaflega var gert ráð fyrir því að nefnd þessi gæti lokið störfum fyrir árslok 1981, en fljótlega kom í ljós að viðfangsefnið var viðameira en svo að það gæti orðið.

Fyrstu skýrslu sína sendi nefndin 1. júní 1982 til heilbrrh. Fjallar skýrsla sú um meðferð geðsjúkra afbrotamanna og geðveikra manna í öryggisgæslu. Í skýrslu þessari og tillögum nefndarinnar er gert ráð fyrir að stofnuð verði sérstök réttargeðdeild ríkisins sem verði á vegum dómsmrn. Af þessum sökum ritaði heilbrrn. dómsmrh. bréf 21. júní 1982, þar sem segir svo m.a.:

„Ráðuneytið leyfir sér að senda dómsmrh. þessar tillögur, þar sem nefndin kemst að þeirri niðurstöðu, að hún leggur til að stofnuð verði réttargeðdeild ríkisins, og að hún heyri undir dómsmrh.

Þetta rn. telur að tillögur nefndarinnar séu í samræmi við gildandi lagaákvæði um meðferð geðsjúkra afbrotamanna og tekur því undir þær í öllum meginatriðum.

Svo sem tillögurnar bera með sér þá er gert ráð fyrir að enda þótt starfsemi réttargeðdeildar ríkisins, sem ráðgert er að stofnuð verði, sé sjálfstæð, þá hafi hún ákveðin tengsl við heilbrigðiskerfið að öðru leyti.

Þetta rn. er reiðubúið að ræða með hverju móti það geti orðið, ef til þess kæmi.“

Af þessari skýrslu og meðferð á henni hefur heilbr.og trmrn. ekki frekari fregnir.

Næsta skýrsla nefndarinnar er um bráðaþjónustu við geðsjúka og er dagsett í okt. 1982. Sú skýrsla var send öllum þáv. alþm. með bréfi rn. dags. 17. nóv. 1982. Í þessari áfangaskýrslu var gerð tillaga um það, að sett yrði á stofn bráðaþjónusta fyrir geðsjúka við Borgarspítalann í Reykjavík. Í niðurlagi bréfs rn. til alþm. frá 17. nóv. 1982 sagði svo:

„Ráðuneytið hefur fallist á tillögur nefndarinnar um að stofnað verði til viðræðna milli stjórnar ríkisspítalanna og Borgarspítalans í Reykjavík varðandi skipulag bráðaþjónustu fyrir geðsjúka í samræmi við þá fyrirmynd sem nefndin setur fram í áliti sínu. Hefur rn. þegar óskað eftir tilnefningu þessara aðila á fulltrúum til slíkra viðræðna.“

Nokkru áður en skýrsla þessi barst rn. höfðu yfirlæknar geðdeilda Borgarspítalans og Landspítalans hafið viðræður um samvinnu á þessu sviði. Niðurstaða þeirra viðræðna birtist í bréfi 18. nóv. 1982 til heilbr.- og trmrh., stjórnarnefndar ríkisspítalanna og stjórnar sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar. Í þessu bréfi segir m.a. svo:

„Hér með tilkynnist uni samkomulag sem yfirlæknar geðdeildar ríkisspítalanna og geðdeildar Borgarspítalans hafa gert með sér um fyrirkomulag bráðaþjónustu við geðsjúka.

Þegar hafa verið gerðar ráðstafanir til að þessi þjónusta hefjist 1. des. n.k. í samræmi við samkomulagið. Hefur m.a. verið rætt við yfirlækni slysavarðstofu Borgarspítalans og nokkra samstarfsmenn hans, sem mest hafa með dagleg störf að gera, og eru þessir aðilar fúsir til samstarfs á grundvelli samkomulagsins. Einnig hefur verið rætt við yfirlækna þeirra deilda Landspítalans sem þjónustan þarf frekast á að halda og hafa þeir tjáð sig fúsa til að láta í té aðstoð sinna deilda, eftir því sem þörf krefur. Þá hefur samkomulagið verið kynnt forstjóra ríkisspítalanna og framkvæmdastjóra Borgarspítalans.“

Þar með taldi rn. að komin væri á sú bráðaþjónusta sem umrædd nefnd taldi einna mest aðkallandi úrbót í geðheilbrigðismálum í áfangaskýrslu sinni frá því í okt. 1982.

Í tilefni af fsp. á þskj. 275 í febr. s.l. frá sama fyrirspyrjanda til fyrrv. heilbrrh. um sama efni óskaði heilbr.- og trmrn. eftir upplýsingum frá yfirlæknum geðdeilda Borgarspítalans og Landspítalans um það, hvernig samkomulag þetta hefði reynst í raun og hvernig væri staðið að þeirri bráðaþjónustu sem þar var ákveðið að taka upp. Í svarbréfi Hannesar Péturssonar, yfirlæknis geðdeildar Borgarspítalans, segir svo m.a.:

„Geðdeildirnar ásamt slysadeild Borgarspítalans hafa lagt sig fram um að þjónustan yrði sem best og að hún verði sambærileg við þá bráðaþjónustu sem veitt er sjúklingum með aðra sjúkdóma. Þessu markmiði verður best náð með aukinni verkaskiptingu milli geðdeildanna og tryggja þannig sem hagkvæmasta nýtingu mannafla og mannvirkja.

Að því er varðar geðdeild Borgarspítalans sérstaklega, þá hófst hér bráðaþjónusta með vaktinni 8. des. s.l. Á tímabilinu fram til 15. febr. s.l. hafa 51 einstaklingur komið í bráðamóttöku deildarinnar sem staðsett er við slysadeild Borgarspítalans. Enn fremur hafa læknar deildarinnar veitt sjúklingum og/eða aðstandendum ráðleggingar símleiðis og verið á annan hátt til aðstoðar þeim aðilum sem á einhvern hátt tengjast meðferð eða umönnun geðsjúkra.“

Í bréfi Tómasar Helgasonar, yfirlæknis geðdeildar Landspítalans, segir svo m.a.:

„Samkomulagið var gert að undangengnum löngum og ítarlegum umræðum annars vegar innan geðdeilda ríkisspítalanna og hins vegar milli yfirlækna þeirra og yfirlæknis geðdeildar Borgarspítalans. Samkomulagið var sent heilbrmrh. með bréfi hinn 18. nóv. s.l. og vísast til þess.

Framkvæmd samkomulagsins hefur gengið eins og til var ætlast og hnökralaust. Í samkomulaginu var gert ráð fyrir að það væri í stöðugri endurskoðun. Sérstaklega myndi fara fram athugun eftir sex mánuði frá því framkvæmdin hófst á hvernig gengið hefði og hverjir hefðu leitað bráðaþjónustunnar, hvað hefði verið að og hvaða úrlausnir hefðu verið veittar.

Vegna fyrirspurnar rn. var gerð lausleg talning á þeim sem leitað höfðu til bráðaþjónustunnar á geðdeildum ríkisspítalanna fram til 14. febr. Til þess tíma höfðu sjúklingar komið í bráðaþjónustu geðdeildar ríkisspítalanna í 101 skipti, en símaviðtöl voru 186. Af þeim sem komu í bráðaþjónustuna voru 25 sjúklingar lagðir inn á geðdeildir, en á sama tíma voru samtals 295 sjúklingar lagðir inn á geðdeildirnar, þar af helmingurinn á móttökudeild áfengissjúklinga.

Talsverður hluti af þeim innlögnum, sem átt hafa sér stað fyrir utan bráðaþjónustuna, eru bráðainnlagnir svarandi til þess sem alla tíð hefur verið, en geðdeildirnar hafa veitt mjög umfangsmikla bráðaþjónustu, þótt hún hafi ekki verið skipulögð með þeim hætti fyrr sem nú er.“

Með þessum svörum taldi rn. sýnt að sú bráðaþjónusta sem upp var tekin af deildum Borgarspítala og Landspítala væri í réttum farvegi og væri því, að svo stöddu, ekki ástæða til frekari aðgerða í tilefni af skýrslu nefndarinnar um bráðaþjónustu við geðsjúka.

Samkv. upplýsingum formanns nefndarinnar í gær er næsta verkefni, sem unnið er að innan nefndarinnar, skýrsla um geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga. Er sú skýrsla talin væntanleg innan nokkurra vikna. Ekki er hægt að fullyrða hver viðbrögð rn. geta orðið við þeirri skýrslu fyrr en hún liggur fyrir.

Önnur verkefni, sem formaður nefndarinnar taldi að hún væri að vinna að, er könnun á sjúklingaflæði og könnun á aðstöðu fyrir geðheilbrigðisþjónustu við gamalt fólk. En hér á landi er ekki starfrækt nein sérhæfð elligeðdeild og er þörfin á stofnun slíkrar deildar mjög knýjandi, eftir því sem yfirlæknar geðdeildar telja.

Svar við 2. lið fsp.: Í sambandi við vinnu umræddrar nefndar hafa komið fram ótal ábendingar og álitsgerðir fagfélaga um geðheilbrigðismál. Í þeim ábendingum hefur m.a. verið lögð áhersla á varnarstarf og er þá átt við þær aðgerðir sem ýti undir betra heilsufar og dragi úr áhættuþáttum. Talið er að að þessu starfi megi vinna með rannsóknum á orsökum geðrænna truflana, með fræðslu og upplýsingum til almennings, með markvissri leit að áhættuhópum og áhættuaðstæðum (félagslegum og atvinnubundnum). Bent er á að hugmyndafræði um varnarstarf hafi ekki náð eyrum þeirra sem fjármagni stjórna og því renni fjármagn til félags- og heilbrigðismála einkum til annars og þriðja stigs þjónustunnar en lítið sem ekkert til fyrsta stigs, fyrirbyggingarinnar. Rn. á því von á tillögum frá nefndinni um aðgerðir í forvarnarstarfi. Að svo stöddu er því ekki hægt að skýra nánar frá því hver áform verða ofan á í þessum málum.

Svar við 3. lið fsp.: Eins og fram kemur í svörum við 1. og 2. lið hér að framan hefur eitt forgangsverkefni í þessum málaflokki nú þegar komist í framkvæmd, þ.e. bráðaþjónustan við geðsjúka. Að því er varðar önnur hugsanleg forgangsverkefni verður ekki undan því skotist að bíða tillagna umræddrar nefndar um það, þar sem hér á, samkv. ályktuninni frá 1981, að vera um heildarúttekt á geðheilbrigðismálum á Íslandi að ræða. samkv. viðtali, sem fulltrúi rn. átti við formann nefndarinnar í gær, mun nefndin reikna með því að þurfa enn að starfa í 3–4 ár til að ljúka þessu verkefni sínu.