26.03.1984
Neðri deild: 65. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4135 í B-deild Alþingistíðinda. (3531)
255. mál, almannatryggingar
Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Út af fsp. hv. 10. landsk. þm. er rétt að geta þess að ég lagðist gegn því að verið væri að samþykkja sérstakt frv. um ekki veigameira atriði en hér er um að ræða, en ég sagði formanni n. að ég væri alveg sammála þessu ákvæði. Það er unnið að breytingum á lögum um almannatryggingar. Ég hafði í hyggju að leggja til í ákvæðum til bráðbirgða hvað þetta snertir og ef svo skyldi fara að það fæddust þrjú börn eða fleiri að fæðingarorlof mundi ná einnig til þeirra. Það er um töluverðar breytingar að ræða í sambandi við almannatryggingar, sem eru meiri vinna en ég bjóst við, svo endurskoðun hefur tafist. Ég get ekki alveg sagt upp á dag hversu lengi. En ég mun geta þess og ekkert liggja á því að hv. þm. flutti þetta frv. Það var eingöngu af fyrrgreindum ástæðum að ég taldi ekki rétt að vera að samþykkja frv. um þetta eina atriði þegar þarf að gera aths. við og breytingar á fleira.
Það er rétt varðandi samræmingu á hinum svonefndu vasapeningum að ósamræmi er á milli laga. Það er líka rétt að geta þess að þessir svokölluðu vasapeningar koma ákaflega misjafnlega niður. Þeir eiga kannske ekki alveg skýlausan rétt á sér. Þeir þykja ekki miklir eða burðugir hjá þeim sem eru færir um að eyða og hafa löngun til þess og fá þetta og hitt sem ekki beint tilheyrir stofnunum. Það er líka til fólk sem hefur ekkert með vasapeninga að gera, en fær þá, fólk sem er gjörsamlega út úr heiminum. Þetta er því ekki auðvelt mál að koma saman og ég held að það eigi ekki að verða neitt pólitískt bitbein. Hér er um að ræða nauðsyn á samræmingu og það hefur tekið mun lengri tíma en ég reiknaði með. Um það mun verða haft samráð við þm. eða þingflokka áður en það mál verður lagt fram á Alþingi.