26.03.1984
Neðri deild: 65. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4151 í B-deild Alþingistíðinda. (3537)
159. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Páll Pétursson:
Virðulegi forseti. Ég get upplýst hv. 3. þm. Reykv. um að þessi frv., 159. og 160. mál, höfum við í Framsfl. gaumgæft mjög vei. Þingflokkur framsóknarmanna tilnefndi tvo menn til þess að taka þátt í samningu þessara frv., þá hv. þm. Davíð Aðalsteinsson og Geir Geirsson endurskoðanda hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga. Þeir unnu að því ásamt með tveimur sjálfstæðismönnum, Þorsteini Pálssyni og Eyjólfi Konráði Jónssyni. Með þeim starfaði einnig formaður nefndarinnar, Ólafur Nílsson löggiltur endurskoðandi.
Eftir að þeir fimmmenningar höfðu skilað áliti til ríkisstj. tókum við við þessu máli og fórum vandlega yfir það. Okkur sýndist að hér væri um eðlilegt og gott mál að ræða sem við vildum styðja og vildum standa að að yrði lögfest.
Varðandi það að þetta mál hafi ekki verið sent Sambandi ísl. samvinnufélaga til sérstakrar umsagnar þá eru það að sjálfsögðu fjöldamörg þingmál sem ekki eru send því til umsagnar. En hafi hv. 3. þm. Reykv. Svavar Gestsson fram að færa ósk um það að álits fyrirsvarsmanna Sambandsins sé leitað þá er sjálfsagt að verða við því, úr því að hann setur þá ósk fram. Ég mun beita mér fyrir því að Erlendur Einarsson eða einhver annar af fyrirsvarsmönnum Sambandsins komi til viðtals við fjh.- og viðskn. á fundi hennar á miðvikudag til þess að upplýsa hv. þm. Svavar Gestsson um skoðun sína á þessu máli, svo og aðra nm.
Mér þykir til hlýða að taka þetta mál enn og aftur fyrir í n. þar sem komin er fram brtt. frá hv. þm. Guðrúnu Helgadóttur við þetta mál á þskj. 503 og nýverið voru veitt afbrigði fyrir. Það verður ekki til þess að tefja framgang málanna.
Það er gott til þess að vita að hv. þm. Svavar Gestsson er farinn að bera fyrir brjósti hagsmuni samvinnuhreyfingarinnar. Hann var hér harmi lostinn í fyrri viku og flutti langar og magnaðar ræður um svínaríið að hinar litlu innlánsdeildir kaupfélaganna skyldu eiga kost á því að losna við skuldbreytingarbréf upp í bindiskyldu. (SvG: Þetta eru ósannindi, hv. þm.) Þetta þótti hv. þm. heldur illa að staðið. (SvG: Þessar ræður voru aldrei haldnar.) Þú skalt lesa það sjálfur í þingtíðindum sem þú hefur verið að segja. Við munum hvað þú sagðir og hvernig þú lést og ég er ekkert banginn við að rifja upp alla þá sögu um framferði þitt og hv. 7. þm. Reykv. við þetta lausaskuldamál. (SvG: Ólafur Ragnar sagði þetta.) Ertu ekki ábyrgur fyrir því sem Ólafur Ragnar segir? Ég kem á framfæri við þig þessum ræðum þínum þegar þær hafa birst í þingtíðindum og þá skaltu sannfærast um það hvað þú sagðir, því að ég held þér veitti ekki af því að rifja það upp og skammast þín.