26.03.1984
Neðri deild: 65. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4160 í B-deild Alþingistíðinda. (3540)
159. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Páll Pétursson:
Virðulegi forseti. Ég stend upp út af ræðu hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur. Það var mikið fljótræði hjá þm. að hneykslast yfir því að geta ekki fengið keyptan Þjóðviljann í kaupfélagsútibúinu í Varmahlíð. Það er vegna þess að dagblöðin eru ekki seld í kaupfélaginu í Varmahlíð og þá er náttúrlega ekki von á að Þjóðviljinn fáist þar heldur. (GHelg: Þetta er ekki rétt.) Það fást ekki dagblöð í kaupfélaginu. (GHelg: Ég keypti Morgunblaðið þar.) Það hefur verið eitthvað afbrigðilegt ástand því að ég er áreiðanlega miklu kunnugri í kaupfélagsútibúinu í Varmahlíð en þessi tiltekni þm., og ég hef ekki orðið var við að blöð væru seld þar. En hins vegar er sjoppa þarna við hliðina, sem einkaframtakið rekur, og þar er mér nær að halda að sé hægt að fá keypt öll dagblöðin, a. m. k. um ferðamannatímann. Í þessari sjoppu ber að leita Þjóðviljans og það mundi ég gera ef ég ætlaði að komast yfir það blað á þessum stað. (GHelg: Hann fæst ekki þar því kaupfélagið bannar það.) Kaupfélagið bannar enga sölu í shell-skálanum. Ég leyfi mér að fullyrða að það er rangt með farið hjá þm. að kaupfélagið hafi nokkur minnstu áhrif'á það hvað selt er og hvað seli er ekki í olíustöð Shell þarna í Varmahlíð. Ef þm. hefur fengið upplýsingar um þetta, þá eru þær rangar.
Varðandi ræðu hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar, sem ég hlýddi á byrjunina á með athygli, þá vil ég árétta það, til þess að enginn efi læðist nú að þeim gamla framsóknarmanni, hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni, sem fór nú yfir hugsjónargrundvöll allra þeirra flokka sem hann er búinn að prófa og líka þeirra sem hann á eftir að vera í, að stefna Framsfl. er enn sem fyrr að manngildið skuli vera ofar auðgildinu, og ég vona að Framsfl. haldi þeirri stefnu hér eftir sem hingað til.