27.03.1984
Sameinað þing: 70. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4176 í B-deild Alþingistíðinda. (3557)
428. mál, fullorðinsfræðsla
Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. menntmrh. á þskj. 381 um það hvort frv. til laga um fullorðinsfræðslu verði lagt fram á yfirstandandi þingi. Ef svo er, hver verða helstu efnisatriði þess?
Í allmörg skipti hefur verið lagt fyrir Alþingi frv. til l. um fullorðinsfræðslu. Á 95. löggjafarþingi, fyrir 10 árum var frv. þar að lútandi fyrst lagt fram, en þá hafði nefnd starfað í þrjú ár að undirbúningi þess frv. Að nýju var málið lagt fyrir 96. löggjafarþing, fyrir 9 árum, síðan 97. löggjafarþing og enn fyrir 98. löggjafarþing. En allt kom fyrir ekki, málið fékk ekki afgreiðslu.
Í ágúst 1978 skipaði þáv. menntmrh. Vilhjálmur Hjálmarsson nefnd til að fjalla um fræðslu fullorðinna og gerði hún í formi lagafrv. tillögur um tilhögun og framkvæmd fullorðinsfræðslunnar. Það frv. var síðan lagt fram á 102. löggjafarþingi 1979–1980 og heldur ekki þá hlaut frv. afgreiðslu. Á 103. löggjafarþingi 1980–1981 lagði ég fram fsp. til þáv. menntmrh. Ingvars Gíslasonar um hvort á því þingi yrði lagt fram frv. til l. um fullorðinsfræðslu. Í svari þáv. menntmrh. kom fram að hann stefndi að því að frv. yrði lagt fyrir það þing sem þá sat. Af því varð ekki.
Af því sem ég hef hér sagt er ljóst að 10 ár eru liðin frá því að frv. um fullorðinsfræðslu var fyrst lagt fram á Alþingi. A. m. k. þrjár nefndir hafa verið skipaðar til að fjalla um málið og undirbúa frv. og málið hefur nokkrum sinnum farið út til umsagnar sérfróðra aðila. Óhætt er því að fullyrða að málið hefur fengið ítarlega skoðun. Þörfin fyrir skipulega fullorðinsfræðslu og heildarlöggjöf um það efni hefur lengi verið mjög brýn, en kannske aldrei eins og nú þegar við siglum hraðbyri inn í tölvuöld sem kallar á skipulagða og aukna starfsog endurmenntun.
Ég tel, herra forseti, að nóg sé komið af undirbúningi, nefndaskipan og athugun á þessu máli og brýnt sé orðið að Alþingi taki þetta mál föstum tökum svo að hér á landi verði komið á skipulagðri fullorðinsfræðslu sem byggi á heildarlöggjöf um það mál. Þvi er sú fsp. lögð fyrir hæstv. menntmrh. sem ég hef hér greint frá, hvort frv. verði ekki lagt fram á yfirstandandi þingi og hver verði helstu efnisatriði.