27.03.1984
Sameinað þing: 70. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4183 í B-deild Alþingistíðinda. (3565)

429. mál, samanburðarkannanir á launakjörum kvenna og karla

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég vil taka mjög ákveðið undir það sjónarmið sem fram kemur í þessari fsp. að gerð verði samanburðarkönnun á launakjörum kvenna og karla. Ég tel að sá kostnaður sem hlýst af slíkri könnun skipti næsta litlu miðað við nauðsynina á því að leiða sem skýrast í ljós hver raunveruleg staða þessara mála er. Það hefur þegar komið fram við upplýsingar sem hér hafa verið fram reiddar á hv. Alþingi sem nú situr að hér er mjög víða pottur brotinn á vegum hins opinbera og ástæða er til að ætla að svo sé einnig á hinum almenna vinnumarkaði.

Ég þekki það raunar nokkuð af eigin reynd, eftir að hafa starfað í rn., hversu rík tilhneiging er til þess að meta störf kvenna lakar en karla þótt um sambærilega menntun og verkefni sé að ræða. Það er satt að segja nánast ótrúlegt hvað hin óbeinu áhrif og gömul viðhorf eru enn ríkjandi inni í þessari mynd. Ég held að ýta þurfi á eftir á öllum sviðum ef unnt á að vera að leiðrétta það mikla misræmi sem ríkir á vinnumarkaðnum milli kynja. Einn þáttur þess máls, fyrir utan samanburðarkannanir eins og hér er lagt til, er sá að störf láglaunafólks, þar sem konur skipa mikinn meiri hluta, verði virt að verðleikum. Ég nefndi þar sérstaklega starfsfólk í almennum iðnaði þar sem konur eru í meiri hluta og í fiskvinnslu. Maður hlýtur að spyrja sig: Hvað veldur því að verið er að löggilda og veita starfsréttindi í ýmsum greinum iðju og iðnaðar en það fólk sem vinnur hin almennu framleiðslustörf í iðnaði, þ. á m. í fiskiðnaði, fær ekki slíka viðurkenningu? Ég tel að það mál þurfi að taka til sérstakrar meðferðar til þess að laða fólk þar til starfa og lyfta þeim störfum einnig launalega séð og afneita með þeim hætti það mikla misrétti sem konur búa við varðandi launakjör á vinnumarkaðinum.