27.03.1984
Sameinað þing: 70. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4185 í B-deild Alþingistíðinda. (3569)
429. mál, samanburðarkannanir á launakjörum kvenna og karla
Árni Johnsen:
Herra forseti. Ég vil taka undir mikilvægi þess að sú könnun sem hér er rætt um fari fram og það sem fyrst. Ég held að slík könnun á launum í landinu muni leiðrétta margs kyns misskilning og eyða tortryggni sem oft er reynt að ala á milli karla og kvenna, stundum af ærinni ástæðu en oft að ástæðulausu. Það er ugglaust víða pottur brotinn og ég reikna með að það halli meira á konur í þeim efnum en karla. En það er einnig hægt að nefna mörg dæmi um að konur njóti greiðslna umfram karla. Á það sérstaklega við í sambandi við einkafyrirtæki.
Það sem er mikilvægt í þessu sambandi er að fram fari hlutlaust mat. Það hefur svolítið borið á því í umræðum um karla annars vegar og konur hins vegar að undanförnu að ekki sé gætt nákvæmni eða hlutleysis. Ég vil nefna frétt í sjónvarpi fyrir fáum dögum þar sem fjallað var um tjáskipti kennara við skólabörn. Starfsmaðurinn, sem fjallaði um þetta mál, sagði að komið hefði í ljós að kennarar hefðu haft 60% tjáskipta við drengi og þar af leiðandi 40% við stúlkur. Það var ekki getið um hlutfall í þessu sambandi, ekki getið um nemendafjölda eða skiptingu, þótt yfirleitt sé reynt að skipta jafnt í bekki, og síðan endaði talsmaðurinn á því að segja að þetta þýddi að stúlkur nytu aðeins 1/3 af tjáskiptum. Þetta er mjög ónákvæmt, þó ekki sé nema af því að 1/3 er ekki það sama og 40% af dæminu. Þannig er blaðrað talsvert um þessi mál. Mér finnst það t. d. ónákvæmt hjá hv. þm. Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur, þar sem hún fjallar um þessi mál í ræðu hér áðan og ber saman án þess að nefna tölur, án þess að nefna í dæmum hvort um er að ræða sama vinnustundafjölda eða sömu vinnu, heldur er tekið meðaltal út í loftið. Þetta er ámælisvert þegar fjallað er um svo viðkvæmt mál sem hér um ræðir, mál sem skiptir svo miklu, sérstaklega í sambandi við kvennabaráttu.
Það var minnst á það hér af hv. þm. Salome Þorkelsdóttur að laun kennara væru orðin aftur úr. Það er einnig forvitnilegt í því sambandi að það eru mörg dæmi þess að kennarar, sem hafa lokið námi og notið námslána, lækka í launum. Þeir hafa minni peninga sér til framfæris í starfi en í námi. Við síðustu útreikninga á námslánum er miðað við 14 983 kr. frá 1. mars. Það eru dæmi þess að framfærslufé menntaðs fólks, sem fer í kennslu úr háskóla, minnkar. Þetta hlýtur að vera rangt. En kannanir eins og um er rætt í þessu máli gætu leiðrétt margs konar misskilning og gefið mynd af launastiga landsmanna almennt. Það væri mjög forvitnilegt án þess að tillit væri tekið sérstaklega til kvenna eða karla.